Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna rifjar upp hið mannskæða Estonia-slys: „Hún kom aldrei til baka“

Anna rifjar upp hið mannskæða Estonia-slys: „Hún kom aldrei til baka“
Estonia Mynd: Wikipedia

Þrjátíu ár eru liðin frá einu mann­skæð­asta sjó­slysi sög­unnar er far­þega­ferjan Estonia fórst í Eystra­salti. Anna Krist­jáns­dóttir rifjar upp þegar fregnir bár­ust um slysið en hún kann­að­ist við einn far­þeg­ann sem fórst.

„Í nótt voru liðin 30 ár frá þessu hræði­lega sjó­slysi.

Ég var á næt­ur­vakt við Häs­sel­by­verket, kraft­varma­veri í Hässelby í úthverfi Stokk­hólms, nýlega komin heim til Stokk­hólms frá Eystra­salts­löndum og ég var á ket­il­vakt­inni sem gengur út á það að allir gufukatlar eru skoð­aðir frá toppi og niður úr, athug­aður eld­ur­inn og allir brenn­arar sem og kvarnir, verk sem tók kannski tvo til þrjá tíma í upp­hafi hverrar vaktar og síðan gjarnan annar styttri hringur þegar leið á vakt­ina. Þegar verk­inu var lokið fór ég upp í setu­stofu stjórn­stöðvar þar sem allir sátu þög­ulir fyrir framan sjón­varpið. Ég hélt fyrst að þeir hefðu verið að horfa á ein­hverja kvik­mynd því texta­ræma rann niður eftir skjánum.“ Þannig hefst nýjasta dag­bók­ar­færsla vél­stjór­ans Önnu Krist­jáns­dóttur en færslan er af afar skilj­an­legum ástæðum í alvar­legri kant­inum enda um að ræða gríð­ar­lega mann­skætt sjó­slys.

Anna heldur áfram:

„Þetta var ekki texta­ræma eftir kvik­mynd heldur voru þetta texta­boð í beinni útsend­ingu frá SVT um hvað var að ger­ast á þeirri stundu í Eystra­salt­inu. Ferjan Estonia sem var á leið frá Tallinn til Stokk­hólms hafði farist og fjöldi fólks að berj­ast fyrir lífi sínu í sjónum. Skip og bátar voru á leið­inni að slys­stað sem og allar til­tækar björg­un­ar­þyrlur.

Ég ætla ekki að byrja á að þylja upp sögur af ferj­unni né orsökum þess að henni hvolfdi, en þessa nótt fór­ust 852 mann­eskur með skip­inu, far­þegar og áhöfn, en ein­ungis 137 komust af. Af þessum 852 var 461 Svíi, sumar heim­ildir segja 501 Svíi. Þetta sjó­slys er eitt versta sjó­slys nærri Evr­ópu­ströndum á frið­ar­tímum. Það var átak­an­leg að heyra lýs­ingar þeirra sem komust af eða eins og einn eft­ir­lif­andi orð­aði það: Hetj­urnar dóu, ein­ungis þeir sem hugs­uðu bara um að bjarga sjálfum sér, lifðu af.“

Anna kann­að­ist við eitt fórn­ar­lambið í slys­inu, hana Irmu og segir frá stuttum kynnum sínum af henni:

„Þremur vikum fyrr hafði ég sótt nýtt vega­bréf á lög­reglu­stöð­ina í Jak­obs­berg og sú sem afgreiddi mig og var orðin kunnug mér, (merki­legt nokk, þá átti ég stundum erindi á lög­reglu­stöð­ina og alltaf tók Irma vel á móti mér og skráði kvart­anir mínar), fór einmitt að segja mér að hún væri sjálf að fara fljót­lega í ráð­stefnu­ferð til Tallinn með Estonia ásamt stórum hóp borg­ara­legra starfs­manna lög­regl­unnar í Stokk­holms län. Því miður er ég búin að gleyma hinu finnska eft­ir­nafni hennar, en mig minnir að nafn hennar hafi verið Irma. Hún kom aldrei til baka. Að sögn Jöru vin­konu minnar, íslenskrar starfs­konu hjá lög­regl­unni í Stokk­hólmi sem komst ekki með í ferð­ina, voru heilu deild­irnar hjá lög­regl­unni nán­ast mann­lausar eftir slysið.Það var ekki far­inn annar ket­il­hringur þessa nótt sem var mér ógleym­an­leg sem og öðrum sem voru vak­andi þessa nótt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina