Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sigmundur Þórisson er látinn

Sigmundur Þórisson er látinn
|

Sig­mundur Þórisson, raf­magns­iðn­fræð­ingur og fyrrum for­maður Knatt­spyrnu­fé­lags Akur­eyrar er lát­inn, 78 ára að aldri. Sig­mundur fædd­ist 30. mars 1946 í Reykja­vík en lést á Hjúkr­un­ar­heim­il­inu Hlíð á Akureyri 20. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Akureyri.net segir frá and­lát­inu.

For­eldrar Sig­mundar voru þau Þórir Högni Berg­steins­son múr­ara­meist­ari og Þuríður Sig­munds­dóttir, hús­móðir og skrif­stofu­maður. Systkini hans eru þau Svava Ragn­hildur Eatough, fædd 1. apríl 1940, búsett í Banda­ríkj­unum og Örn Þórisson, fæddur 3. jan­úar 1958, búsettur í Reykja­vík.

Sig­mundur kvænt­ist sér­kenn­ar­anum Minnie Egg­erts­dóttur, fædd 13. maí 1946, þann 9. ágúst 1969 en þau slitu sam­vistir árið 2004.

Synir Sig­mundar og Minnie eru:

1) Freyr Gauti fæddur 17. jan­úar, 1972 en hann er bækl­un­ar­skurð­læknir búsettur í Svíþjóð. Eig­in­kona hans er Sylvía Húnfjörð tann­læknir. Börn þeirra eru: Halldóra Minnie fædd 2006, Kara Dögg fædd 2007 og Þórir Steinn fæddur 2009.

2) Eggert Högni fæddur 21. febr­úar 1974 en hann er sjáv­ar­út­vegs­fræð­ingur búsettur á Akureyri. Sam­býl­is­kona hans er Árný Þóra Ármanns­dóttir náms- og starfs­ráð­gjafi. Með fyrr­ver­andi konu sinni Sólrúnu Óla­dóttur á Eggert syn­ina: Tómas Frey fæddur 2001, Ísak Óla fæddur 2004 og Egil fæddur 2013.

3) Þórir Svavar fæddur 6. mars 1979 svæf­inga- og gjör­gæslu­læknir búsettur í Reykja­vík. Eig­in­kona hans er Hulda Stein­gríms­dóttir við­skipta­fræð­ingur. Synir þeirra eru: Þorri Steinn fæddur 2007, Elís Agnar fæddur 2011 og Axel Sigmar fæddur 2014.

Fram kemur á Akureyri.net að Sig­mundur hafi lokið sveins­prófi í raf­véla­virkjun frá Iðn­skól­anum í Reykja­vík 1968 og útskrif­ast sem raf­magns­iðn­fræð­ingur frá Tækni­skóla Íslands 1971. Frá 1971 til 1974 starf­aði hann sem raf­magns­iðn­fræð­ingur hjá Raf­magns­veitu Reykja­víkur og sem yfir­eft­ir­lits­maður hjá Raf­magns­eft­ir­liti rík­is­ins frá 1974. Þá var hann umdæm­is­eft­ir­lits­maður með aðsetur á Akureyri frá 1977 þar til raf­magns­eft­ir­litið var lagt niður. Sig­mundur starf­aði eftir það hjá Raf­magns­veitum rík­is­ins og sat meðal ann­ars í stjórn félags eft­ir­lits­manna með raf­orku­virkjun frá 1988 til 1990.

Sig­mundur var afar áhuga­samur um íþróttir og gengdi trún­að­ar­störfum fyrir íþrótta­hreyf­ing­una og var sæmdur fjölda heið­urs­merkja fyrir störf sín. Þegar Sig­mundur var ungur lék hann hand­bolta með KR en eftir að fjöl­skyldan flutti norður á Akureyri fylgdi hann sonum sínum eftir í íþróttum og gerð­ist KA maður. Árið 1987 var Sig­mundur kos­inn í stjórn Knatt­spyrnu­fé­lags Akur­eyrar og var for­maður félags­ins frá 1989 til 1998. Þá var hann heið­urs­fé­lagi frá 2008. Er hann gengdi for­mennsku stóð hann meðal ann­ars fyrir bygg­ingu íþrótta­húss KA og tók þátt í hraðri upp­bygg­ingu félags­ins í fjöl­mörgum íþrótta­greinum ásamt fleira góðu fólki.

Útför Sig­mundar Þór­is­sonar fer fram frá Akur­eyr­ar­kirkju föstu­dag­inn 4. októ­ber kl. 13.00.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ