InnlentMeð byssu í bænum – Hinir grunuðu voru gripnir Ansi mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt; eins og segir í skeyti lögreglunnar – dagbókini góðu. Barst til dæmis tilkynning um að menn í sjálfrennireið hefðu sést brúka loftbyssu í miðborginni. Uppi varð fótur og fit og meira en talsverður viðbúnaður var vegna þessa. Hinir grunuðu voru gripnir; kom þá á daginn að um leikfangabyssu...
InnlentKallar yfirvöld Bandaríkjanna ólígarkastjórn:„Sækja æ meira fé í velferðarkerfin og verja í hernað“ Gunnar Smári Egilsson kallar yfirvöld Bandaríkjanna „ólígarkastjórn“ í nýrri Facebook-færslu. Sósíalistaforinginn Gunnar Smári Egilsson skrifaði Facebook-færslu í dag þar sem hann talar um Evrópustefnu Bandaríkjanna og hversu slæm áhrif hún hefur á Evrópu. „Í stuttu máli er Evrópustefna óligarkastjórnar Bandaríkjanna sú að egna til stríðs í Evrópu og kljúfa á milli Rússlands og annarra ríkja, annars vegar til að koma...
InnlentMaðurinn sem fannst látinn er Ungverjinn Illes Benedek Incze Maðurinn sem fannst látinn á Reynisfjalli í gær er Illes Benedek Incze en hans var leitað frá því á mánudag. Lögreglan á Suðurlandi var að staðfesta rétt í þessu að maðurinn sem fannst látinn á Reynisfjalli í gær er Ungverjinn Illes Benedek Incze sem búsettur var í Vík í Mýrdal. Mikil leit stóð yfir frá því Incze var saknað á...
InnlentMikill meirihluti vill ekki að stjórnvöld styrki Víking um 50 milljónir aukalega Háværar umræður hafa skapast í íþróttasamfélaginu undanfarnar vikur um þátttöku Víkings í Evrópukeppni í fótbolta. Ástæðan var sú að mögulegt var að liðið spilaði þá heimaleiki sem framundan eru erlendis vegna þess að enginn íslenskur knattspyrnuvöllur, fyrir utan Laugardalsvöll, stenst þær kröfur sem UEFA setur. Ekki verður þó hægt að spila leikinn á Laugardalsvellinum þar sem verður farið í framkvæmdir...
InnlentStyrktarreikningur opnaður fyrir börn Hjördísar Ernu sem varð bráðkvödd á dögunum Fjölmargir minnast Hjördísar Ernu Þorgeirsdóttur á samfélagsmiðlunum en hún varð bráðkvödd 13. september, aðeins 39 ára að aldri. Styrktarreikningur hefur verið stofnaður fyrir börnin hennar tvö. Systir Hjördísar Ernu, Valdís Helga Þorgeirsdóttir, skrifaði eftirfarandi færslu þar sem hún segir frá styrktarreikningi sem stofnaður hefur verið fyrir tvö ung börn Hjördísar. Valdís Helga gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi til að byrja færsluna:...
InnlentSkerjafjarðarskáldinu er gróflega misboðið: „Í mínum huga hreinlega glæpsamlegt“ Skáldinu Kristjáni Hreinssyni er gróflega misboðið og hreiniega krefst þess að fá afsökunarbeiðni frá pistlahöfundi sem dirfðist að nefna grein sína eftir heiti á lagatexta sem Kristján samdi. Skerjafjarðarskáldið Kristján Hreinsson skrifaði harðorða færslu á Facebook í morgun þar sem hann hneikslast á nafngift greinar sem Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifaði í gær. Greinin ber heitið „Dansaðu vindur“ og fjallar um...
InnlentLíkfundur í Reynisfjalli Lík af karlmanni fannst í Reynisfjalli seint í gærkvöld. Ekki var hægt að nálgast líkið landleiðina og var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð til aðstoðar. Leitað hefur verið að Illes Benedek Incze, ungverskum ríkisborgara búsettum í Vík, frá því í byrjun vikunnar. Síðast sást til hans um klukkan þrjú aðfararnótt mánudagsins 16. september. Lögreglan hefur ekki staðfest að líkið sé af Ungverjanum....
InnlentFjórir farþegar en enginn bílstjóri þegar löggan birtist – Drukkinn rafskútumaður flaug á höfuðið Lögreglumenn þurftu að taka á honum stóra sínum þegar þeir komu að manni sem gekk berserksgang. Berserkurinn reyndist vera óviðræðuhæfur þegar búið var að yfirbuga hann. Grunur er um að hann hafi verið undir annarlegum áhrifum. Maðurinn var læstur inni í fangaklefa í þágu rannsóknar máls hans. Lögregla sinnti tveimur útköllum þar sem óvelkomnu og ölvuðu fólki var vísað á...
InnlentKristinn er látinn Kristinn Már Stefánsson, fyrrverandi landsliðsmaður og landsliðsþjálfari í körfubolta, er látinn. Hann var 79 ára gamall en Morgunblaðið greinir frá þessu. Kristinn fæddist árið 1945 og ólst upp í Vesturbænum. Eftir nám í Melaskóla, Hagaskóla og Verzlunarskóla Íslands starfaði hann sem bókari nánast alla starfsævi sína. Kristinn er þó þekktastur fyrir íþróttaafrek sína en hann var gallharður KR-ingur og var...
InnlentHvítabjörn genginn á land í Jökulfjörðum – Fólk beðið að halda sig innandyra Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út eftir að lögreglunni á Vestfjörðum barst tilkynning um að hvítabjörn hafi gengið á land á Höfðaströn í Jökulfjörðum. Í tilkynningu lögreglunnar á Vestfjörðum kemur fram að hún hafi, að höfðu samráði við Umhverfisstofnun, kallað út þyrlu Gæslunnar auk þess sem björgunarbáturinn Kobbi Láka var sendur af stað með tvo lögreglumenn frá Ísafirði. Ætlunin er...
InnlentNafn mannsins sem lést í Árborg Eiríkur Rúnar Eiríksson er maðurinn sé féll fram af fjölbýlishúsi í byggingu í Árborg á þriðjudag en um vinnuslys var að ræða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Eiríkur varð fimmtugur á árinu
InnlentÍslendingur í gæsluvarðhaldi vegna gruns um mansal á unglingsstúlkum: Önnur ólétt og hin HIV-smituð Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft íslenskan karlmann í haldi í eina viku vegna gríðarlega umfangsmikillar rannsóknar sem snýr meðal annars að mansali og skipulögðu smygli á fólki. Samkvæmt RÚV er grunur um að fleiri tengist málinu. Sögðust vera dætur mannsins Fram kemur í gæsluvarðhaldsúrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur fyrir viku, að tvær unglingsstúlkur undir átján ára aldri, hafi komið til landsins með...