Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna gruns um mansal á unglingsstúlkum: Önnur ólétt og hin HIV-smituð

Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna gruns um mansal á unglingsstúlkum: Önnur ólétt og hin HIV-smituð
Kefla­vík­ur­flug­völlur – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Lög­reglan á Suð­ur­nesjum hefur haft íslenskan karl­mann í haldi í eina viku vegna gríð­ar­lega umfangs­mik­illar rann­sóknar sem snýr meðal ann­ars að man­sali og skipu­lögðu smygli á fólki. Samkvæmt RÚV er grunur um að fleiri teng­ist mál­inu.

Sögðust vera dætur mannsins

Fram kemur í gæslu­varð­halds­úr­skurði Hér­aðs­dóms Reykja­víkur fyrir viku, að tvær ung­lings­stúlkur undir átján ára aldri, hafi komið til lands­ins með flugi 4. júlí 2023. Hafi þær sagst vera komnar til að heim­sækja föður sinn en það er mað­ur­inn sem síðar var hand­tek­inn og hnepptur í gæslu­varð­hald. Var hann ekki á land­inu á þeim tíma. Búið er að afmá upp­lýs­ingar um það hvaðan stelp­urnar voru að koma og hvaða þjóð­erni þær hafi gefið upp, úr úrskurð­inum sem birtur var á vef Lands­réttar í dag.

Samkvæmt frétt RÚV fletti lög­reglan stúlk­unum upp en að þá hafi komið i ljós að þeim hefði verið veitt dval­ar­leyfi sem börnum Íslend­ings. Þá var mað­ur­inn skráður faðir þeirra í kerfum íslenskra stjórn­valda. Sögðu þær að vinur föður þeirra væri mættur í flug­stöð­ina til að sækja þær og gáfu upp síma­númer hans. Reyndist það vera maður með ótíma­bundið dval­ar­leyfi á Íslandi. Stúlk­urnar voru færðar í úrræði á vegum barna­verndar Suð­ur­nesja­bæjar og dvöldu þær þar í nokkra daga sem fylgd­ar­laus börn en þegar mað­ur­inn kom aftur til lands­ins fóru þær til hans.

Grunur um slæmar aðstæður

Vitnað er í grein­ar­gerðar lög­reglu um málið í gæslu­varð­halds­úr­skurði hér­aðs­dóms en þar segir að lög­reglan sé með rök­studdan grun um að stúlk­urnar búi við slæmar aðstæður. Önnur þeirra sé barns­haf­andi en óvíst er með fað­ernið og hin stúlkan er HIV-smituð og á ungan son erlendis sem hún hefur ekki aðgang að nema í gegnum mann­inn sem nú situr í gæslu­varð­haldi.

Stúlk­urnar og mað­ur­inn voru látin gang­ast undir DNA-rann­sókn af Útlend­inga­stofnun en sú rann­sókn sýndi fram á að mað­ur­inn er ekki faðir þeirra. Í hús­leit lög­reglu á heim­ili manns­ins fyrir viku fund­ust skjöl sem stað­festu DNA-rann­sókn­ar­nið­ur­stöð­una og að hann hafi vitað áður en þær fengu dval­ar­leyfið, að hann væri ekki faðir þeirra.

Sennilega ekki einn að verki

„Það er grunur lög­reglu að varn­ar­að­ili sé vís­vit­andi og með skipu­lögðum hætti að blekkja íslensk stjórn­völd og gefa upp rangar upp­lýs­ingar í því skyni að fá dval­ar­leyfi fyrir aðila á fölskum for­sendum og [eftir atvikum] hag­nýta sér þau í man­sali og hagn­ist á því,“ er haft eftir lög­reglu í úrskurð­inum. „Þá er það einnig grunur lög­reglu að varn­ar­að­ili standi ekki einn að verki heldur njóti lið­sinnis, sam­starfs og [eftir atvikum] sam­vinnu ann­arra aðila.“

Í rök­stuðn­ingi lög­regl­unnar varð­andi gæslu­varð­halds­kröf­una kemur fram að rann­sóknin væri „mjög umfangs­mikil“, að til rann­sóknar væri grunur um man­sal, rangan fram­burð hjá stjórn­valdi, skjala­fals og eftir atvikum brot á útlend­inga­lögum, „s.s. skipu­lagt smygl á fólki“.

Bæði Hér­aðs­dómur og Lands­réttur féllust á að gæslu­varð­haldið haldi til klukkan fjögur í dag. Ekki hafa komið fram upp­lýs­ingar um það hvort gæslu­varð­haldið hafi verið fram­lengt eða hvort þess verði kraf­ist í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina