Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skerjafjarðarskáldinu er gróflega misboðið: „Í mínum huga hreinlega glæpsamlegt“

Skerjafjarðarskáldinu er gróflega misboðið: „Í mínum huga hreinlega glæpsamlegt“
Kristján Hreins­son.

Skáldinu Krist­jáni Hreins­syni er gróf­lega mis­boðið og hreini­ega krefst þess að fá afsök­un­ar­beiðni frá pistla­höf­undi sem dirfð­ist að nefna grein sína eftir heiti á laga­texta sem Kristján samdi.

Skerja­fjarð­ar­skáldið Kristján Hreins­son skrif­aði harð­orða færslu á Facebook í morgun þar sem hann hneiksl­ast á nafn­gift greinar sem Berglind Ósk Guð­munds­dóttir skrif­aði í gær. Greinin ber heitið „Dansaðu vindur“ og fjallar um einka­væð­ingu orku­linda og vind­myllur. Af hverju hneikslar nafn­giftin skáldið? Nú, hann samdi þekkt jóla­lag með sama nafni.

„MÉR ER MISBOÐIÐ

Ég sá í gær full­kom­lega óvið­eig­andi aðdróttun að heiðri lista­manns. Reyndar er þetta alvöru árás á höf­unda­rétt og þar eð ég á hlut að máli, vil ég að á mig verði hlustað.

Forsagan er sú að Berglind Ósk Guð­munds­dóttir (sem ég þekki ekk­ert og veit ekk­ert um), skrifar 19. sept­em­ber ’24 grein sem ber tilil frægs söng­texta. Greinin heitir „Dansaðu vindur“ og fjallar um vind­myllur og einka­væð­ingu orku­linda.“ Þannig hefst færsla Krist­jáns og heldur síðan áfram:

„Þar segir: „Á Íslandi er eft­ir­spurnin eftir raf­orku mikil. Það er jákvætt að atvinnu­lífið sé svo blóm­legt að umfram­eft­ir­spurn hafi mynd­ast en nei­kvætt ef stjórn­völd ná ekki að tryggja að af fram­kvæmdum verði vegna seina­gangs í upp­bygg­ingu á raf­orku­kerf­inu.“ Að nota nafn á einu fræg­asta jóla­lagi Íslend­inga til þess að opna fyrir að örfáir auð­menn nái að eign­ast alla raf­orku á Íslandi, það er í mínum huga hrein­lega glæp­sam­legt. Þessi texti er mörgu fólki ást­kær og hefur ekk­ert með vind­myllur að gera.“

Í næstu orðum sínum hótar skáldið lög­sókn á þá vind­myllu­sinna sem ætli sér að nota slag­orð sem sótt er beint í kveð­skap þess:

„Ef þeir sem heimta að öll raf­orka verði einka­vædd og gera kröfu um að vind­myllum verði komið fyrir á víð og dreif um Ísland, ætla að nota slag­orð sem beint er sótt í minn kveð­skap þá munu kæru­mál fara af stað. Með því að nota titil frægs söng­texta, Dansaðu vindur, í póli­tískum til­gangi, er alvar­lega vegið að sæmd­ar­rétti mínum. Á Wikipedia segir rétti­lega um þennan hluta höf­unda­réttar: „Sæmd­ar­réttur leiðir af þeirri hug­mynd að verk höf­undar sé fram­leng­ing á per­sónu hans. Sæmd­ar­rétt­ur­inn er þannig oft­ast per­sónu­bund­inn (aðeins höf­und­ur­inn sjálfur getur verið máls­að­ili) og ófram­selj­an­legur, öfugt við hinn meg­in­hluta höf­unda­réttar, fjár­hags­legu rétt­indin“.“

Að lokum krefst Kristján þess að Berglind Ósk biðji hann opin­ber­lega afsök­unar.

„Í fyrstu er það ósk mín að Berglind Ósk Guð­munds­dóttir, biðji mig opin­ber­lega afsök­unar og fjar­lægi texta­heiti mitt af grein sinni. Öllu sóma­kæru fólki ætti að skilj­ast að svona gerir maður ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina