InnlentByggðasafn Skagfirðinga rænt: „Til að stela slíkum grip þarf einbeittan brotavilja“ Byggðasafn Skagfirðinga var nýlega rænt en dýrmætu úr og festi var stolið en ekki liggur fyrir hvenær nákvæmlega úrinu var stolið. „Mannskepnan getur verið ólíkindatól. Starfsfólk safnsins hefur af og til orðið vart við að munir hverfi úr sýningu, að þeir séu teknir ófrjálsri hendi. Á undanförnum árum hafa m.a. horfið reiðsokkar (háleistar) og tóbaksponta, svo eitthvað sé nefnt. Steininn...
InnlentMilla Ósk segir móðurhlutverkið vera rússíbana: „Þetta var algjörlega sturlað tímabil“ Lögfræðingurinn Milla Ósk Magnúsdóttir opnaði sig um móðurhlutverkið í nýlegu viðtali á RÚV en Milla á eitt barn með Einari Þorsteinssyni borgarstjóra og tvær stjúpdætur. Hún var þó ekki viss um að hún myndi sjálf vilja eignast börn. „Við eigum gott samband og ég hugsaði, þetta er nóg. Það er yndislegt að hafa þær, fá að vera með þeim og...
InnlentFjársvikari borðaði sig saddan og hvarf sporlaust – Ökuníðingur eltur uppi í miðborginni Svikahrappur mætti á veitingastað í Múlunum og át sig saddan af lystisemdum staðarins. Þegar máltíðnni lauk lét gesturinn sig hverfa og hljópst á brott frá ógreiddum reikningi. Lögreglu var tilkynnt um fjársvikin. Maðurinnn er enn ófundinn. Í miðborginni bar það til tíðinda að ökufantur varð valdur að árekstri og lét sig hverfa í snarhasti. Lögreglan sýndi snarræði og náði að...
InnlentKári Garðarsson ráðinn framkvæmdastjóri S78: „Fullviss að hann sé rétt manneskja“ Samtökin ’78 hafa ráðið Kára Garðarsson sem nýjan framkvæmdastjóra félagsins. Kári tekur við starfinu af Daníel E. Arnarsyni sem gegnt hefur stöðunni undanfarin sjö ár. Kári Garðarsson er samkvæmt tilkynningu samtakanna menntaður íþróttafræðingur með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu. Hann kemur til Samtakanna ’78 eftir starf sem framkvæmdastjóri Íþróttafélagsins Gróttu, en þar leiddi Kári félagið í gegnum mikilvæga þróunartíma. Áður starfaði...
InnlentAlbert lét ekki sjá sig í héraðsdómi Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson var ekki viðstaddur þingfestingu á máli hans í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag en hann hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn ungri konu. Vilhjálmur Vilhjálmsson, lögmaður Alberts, var mættur fyrir hönd Alberts og var þingfestingin lokuð en Albert hefur ávallt neitað sök í málinu síðan það kom upp seinasta sumar. Hann var upphaflega kærður til lögreglu sumarið 2023...
InnlentBlaðamaður númer 1 gerir kröfu á Sigríði vegna meintra skattsvika: „Hún hlýtur að taka ábyrgð“ Fríða Björnsdóttir, blaðamaður númer 1 á Íslandi, krefst þess að Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, svari fyrir meint skattsvik sín sem telji allt að 100 milljónum króna. Þessi krafa Fríðu er í framhaldi þess að stjórn Blaðamannafélag Íslands lýsir Hjálmar Jónsson sekan um brot í starfi en hyggst þó ekki kæra. Dylgjur stjórnar um lögbrot koma fram á vef...
InnlentLeynikærasta Simma Vill bjargaði lífi manns Sigmar Vilhjálmsson hefur loksins opinberað eitt versta geymda leyndarmál 2024 en það er nafnið á kærustu sinni en þau hafa verið að hittast um nokkra mánaða skeið. Heitir heppna konan Hafrún Hafliðadóttir og er fædd 1991 og er því 14 árum yngri en Sigmar. Þau vildu ekki greina frá sambandinu opinberlega til lengri tíma þar sem börn Hafrúnar vissu ekki...
InnlentSkipverja í mikilli hættu bjargað af þyrlu Landhelgisgæslunnar Skipverji kallaði í gærkvöldi eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar eftir að leki kom á bát hans á Faxaflóa, skammt frá Gróttu. Björgunarbátar í nærliggjandi bæjarfélögum voru sendir á staðinn sem og þyrla Landhelgisgæslunnar. Tók fyrstu viðbragðsaðila um 40 mínútur að mæta á svæðið. Þá hafi báturinn verið farinn að halla talsvert og sjór flætt inn. Sigmenn Landhelgisgæslunnar sóttu manninn, sem var með...
InnlentInnbrotsþjófur gripinn á heimili í Breiðholti – Ökumaður á nagladekkjum í miðborginni um hásumar Innbrotsþjófar, sérhæfðir í heimilum fólks, settu nokkurn lit á störf lögreglunnar í nótt. Einn slíkur var handtekinn í heimahúsi í Breiðholti. Annar var á ferð í austurborginni. Lögreglan kom á vettvang en greið í tómt. Þjófurinn hvarf sporlaust út í nóttina. Á svipuðum slóðum var ofbeldismaður handtekinn vegna líkamsárásar. Hann var læstur inni á fangaklefa þar sem hann fær að...
InnlentHjálmar svarar stjórn Blaðamannafélagsins: Skattamál Sigríðar ástæða ófrægingar „Ástæðan fyrir þessari aðför að æru minni er að ég var afdráttarlaus um það að núverandi formaður félagsins er ekki hæfur til þess að veita félaginu forystu vegna frétta af skattamálum hennar, sem ekki hafa verið skýrð með fullnægjandi hætti. Blaðamenn í félaginu og í landinu þurfa að horfast í augu við það,“ skrifar Hjálmar Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands,...
InnlentTelja Hjálmar brotlegan en kæra ekki: „Öllum líkindum sekur um refsiverða háttsemi“ Stjórn Blaðamannafélags Íslands hefur ákveðið að kæra ekki Hjálmar Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra félagsins, en tekur fram í tilkynningu sinni til fjölmiðla að samkvæmt lögfræðiáliti sem félagið fékk frá LOGOS að Hjálmar hafi líklega gerst sekur um refsivert brot í starfi. Deilur hafa staðið milli stjórnar Blaðamannfélagsins og Hjálmars síðan honum var sagt upp vegna trúnaðarbrests í starfi í janúar á...
InnlentAlbert ákærður fyrir kynferðisbrot Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot en DV.is greinir frá því. Albert var upphaflega kærður til lögreglu sumarið 2023 en eftir rannsókn ákvað héraðssaksóknari að láta niður falla. Konan sem kærði Albert kærði niðurfellinguna og hefur nú verið tekin sú ákvörðun á gefa út ákærðu í málinu. Albert er einn besti knattspyrnumaður Íslands í dag og spilar með...