Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hjálmar svarar stjórn Blaðamannafélagsins: Skattamál Sigríðar ástæða ófrægingar

Hjálmar svarar stjórn Blaðamannafélagsins: Skattamál Sigríðar ástæða ófrægingar
Hjálmar Jónsson, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Blaða­manna­fé­lags Íslands ritar pistil

„Ástæðan fyrir þess­ari aðför að æru minni er að ég var afdrátt­ar­laus um það að núver­andi for­maður félags­ins er ekki hæfur til þess að veita félag­inu for­ystu vegna frétta af skatta­málum hennar, sem ekki hafa verið skýrð með full­nægj­andi hætti. Blaða­menn í félag­inu og í land­inu þurfa að horfast í augu við það,“ skrifar Hjálmar Jónsson, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Blaða­manna­fé­lags Íslands, vegna yfir­lýs­ingar stjórnar félags­ins þar sem Hjálmar er nán­ast bor­inn þeim sökum að hafa framið refsi­vert athæfi í starfi sínu sem fram­kvæmda­stjóri en málið eigi að síður látið kyrrt liggja. Hjálmar rifjar upp skatta­mál Sigríðar Daggar Auð­uns­dóttur í sam­hengi við yfir­lýs­ingu stjórnar félags­ins sem hlýtur að telj­ast ein­stök að því leyt­inu að dylgjað er um sekt starfs­manns­ins en jafn­framt lýst yfir að hann verði ekki lög­sóttur.

Blaða­manna­fé­lagið er nú þegar á óheilla­braut

Hjálmar segir að það komi sér ekki á óvart að hann verði ekki lög­sóttur.

„Það kemur mér ekki á óvart að núver­andi stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands hafi ákveðið að kæra mig ekki fyrir brot í starfi fram­kvæmda­stjóra félags­ins, eins og fram kemur í til­kynn­ingu hennar til félags­manna Það stafar ein­fald­lega af því að það hafa aldrei verið efni til þess að einu eða neinu leyti. Þvert á móti þjón­aði ég félag­inu af ein­stakri trú­mennsku, þó ég segi sjálfur frá, öll þau 35 ár sem ég kom að
trún­aða­störfum fyrir félagið, með einum eða öðrum hætti. Hagur félags­ins hefur blómg­ast með ein­stökum hætti á þessum tíma, ekki síst síð­ustu rúm 20 árin sem ég var fram­kvæmda­stjóri félags­ins,“ segir Hjálmar.
Fram­kvæmda­stjór­inn fyrr­ver­andi segir rekstur félags­ins í dag vera með þeim hætti að félagið geti ekki staðið undir honum til lengdar. Þar er hann væntanæ­lega að vísa til þess að Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir for­maður fékk það í gegn að hún fái full laun fyrir setu sína í stjórn. Þar með séu tveir til þrír starfs­menn að sinna því sem hann hafi áður séð einn um.

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir for­maður BÍ et sök­uðp um skatta­snið­göngu.

„Blaða­manna­fé­lagið er nú þegar á óheilla­braut. Þar er sóað pen­ingum í vit­leysu, eins og vit­unda­her­ferð um blaða­mennsku, á sama tíma og rétt­indi félags­manna eru skert. Ætli það séu ekki núna 2 til 3 mann­eskj­urnar sem eru að sinna því starfi sem ég sinnti einn í 20 ár og gera það mun verr en ég gerði. Ótrúlegt en því miður satt. Lítið félag eins og Blaða­manna­fé­lag Íslands þolir ekki slíka ráð­stöfun fjár­muna til lang­frama,“ skrifar Hjálmar.

Stjórn BÍ sem stendur að yfir­lýs­ing­unni er skipuð eft­ir­far­andi:
Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður
Lovísa Arn­ar­dóttir (Stöð2/Vísir.is/Bylgjan), vara­for­maður
Bára Huld Beck, sjálf­stætt starf­andi, rit­ari
Stígur Helgason (RÚV), gjald­keri
Kristín Ólafs­dóttir (Stöð2/Vísir.is/Bylgjan)
Skúli Hall­dórs­son (mbl.is)
Sólrún Lilja Ragn­ars­dóttir (mbl.is)
Ragna Gests­dóttir (vara­maður) (DV.is)
Kjartan Þor­björns­son (Golli) (vara­maður) (Heim­ildin)
Fanndís Birna Loga­dóttir (vara­maður) (Við­skipta­blaðið)

Athuga­semd Hjálmars í heild sinni:

Hátt reitt til höggs

Það kemur mér ekki á óvart að núver­andi stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands hafi
ákveðið að kæra mig ekki fyrir brot í starfi fram­kvæmda­stjóra félags­ins, eins og fram
kemur í til­kynn­ingu hennar til félags­manna Það stafar ein­fald­lega af því að það hafa
aldrei verið efni til þess að einu eða neinu leyti. Þvert á móti þjón­aði ég félag­inu af
ein­stakri trú­mennsku, þó ég segi sjálfur frá, öll þau 35 ár sem ég kom að
trún­aða­störfum fyrir félagið, með einum eða öðrum hætti. Hagur félags­ins hefur
blómg­ast með ein­stökum hætti á þessum tíma, ekki síst síð­ustu rúm 20 árin sem ég
var fram­kvæmda­stjóri félags­ins.
Ef efni máls væru með þeim hætti sem látið er liggja að í bréfi stjórn­ar­innar til
félags­manna, hvers vegna er þá ekki sagt amen eftir efn­inu og þess­ari óláns­för
fram­haldið? Skildi það vera vegna þess að þá myndi fátækt þessa mála­til­bún­aðar
alls opin­ber­ast? Athugun á bók­haldi félags­ins síð­stliðin tíu ár skilar engu þegar upp
er staðið, það er stað­reynd máls­ins. Öllum atriðum hefur verið svarað með
full­nægj­andi hætti, þó reynt sé að láta það líta öðru vísi út til að rétt­læta þann
fjár­austur sem þessi aðför að æru minni hefur kostað. Fjallið tók jóð­sótt og það
fædd­ist mús!
Stað­reyndir máls­ins eru þessar. Ég stóð vörð um orðstír félags­ins, eins og mér bar
sem fram­kvæmda­stjóri og fyrrum for­maður félags­ins. Ástæðan fyrir þess­ari aðför að
æru minni er að ég var afdrátt­ar­laus um það að núver­andi for­maður félags­ins er ekki
hæfur til þess að veita félag­inu for­ystu vegna frétta af skatta­málum hennar, sem ekki
hafa verið skýrð með full­nægj­andi hætti. Blaða­menn í félag­inu og í land­inu þurfa að
horfast í augu við það.
Blaða­manna­fé­lagið er nú þegar á óheilla­braut. Þar er sóað pen­ingum í vit­leysu, eins
og vit­unda­her­ferð um blaða­mennsku, á sama tíma og rétt­indi félags­manna eru skert.
Ætli það séu ekki núna 2 til 3 mann­eskj­urnar sem eru að sinna því starfi sem ég
sinnti einn í 20 ár og gera það mun verr en ég gerði. Ótrúlegt en því miður satt. Lítið
félag eins og Blaða­manna­fé­lag Íslands þolir ekki slíka ráð­stöfun fjár­muna til
lang­frama.

Hjálmar Jónsson, fyrrum fram­kvæmda­stjóri BÍ

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina