MAST varar við brauði eftir að málmbiti fannst í því
Matvælastofnun varar við einni framleiðslulotu af Euro Market brauði sem Lindabakarí framleiðir vegna aðskotahlutar, nánar til tekið málmbiti, sem fannst í einu brauði. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, (HEF). Brauðið er selt í einni verslun. Þeir sem eiga umrædda vöru ennþá til eru beðnir um að neyta hennar ekki, og farga...