Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Faldi sterkan kókaínvökva innvortis

Maðurinn hafði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi

Keflavíkurflugvöllur
Kefla­vík­ur­flug­völlur Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Reinel Santiago Sanguino hefur verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi í Héraðs­dómi Reykjaness fyrir stórfellt fíkniefna­lagabrot. Hann flutti tæplega einn og hálfan lítra af kókaíni í vökva­formi innvortis til landsins í maí síðastliðnum.

Samkvæmt dómi kom Sanguino til Íslands með flugi 24. maí og hafði þá innvortis 1.480 milli­lítra af fljótandi kókaíni. Styrk­leiki efnanna mældist á bilinu 51 til 55 prósent og voru þau ætluð til sölu­dreifingar hér á landi í ágóða­skyni.

Sanguino játaði brotið skýlaust fyrir dómi og var málið því tekið til dóms án frekari sönnunar­færslu. Hann hafði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi svo kunnugt væri.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn meðal annars til þess að ekkert í gögnum málsins benti til þess að hann hefði átt fíkni­efnin eða komið að skipulagningu kaupanna og innflutningsins með öðrum hætti en að samþykkja að flytja þau til Íslands. Þá var greið játning hans metin honum til málsbóta.

Á móti kom að um var að ræða verulegt magn af sterku kókaíni sem ætlað var til sölu hér á landi.

Sanguino var dæmdur til að greiða tæpar 1,95 milljónir króna í sakar­kostnað, þar á meðal rúmlega 1,2 milljónir í þóknun verjanda síns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim