InnlentPáll Óskar er trúlofaður: „Út með hatrið – Inn með ástina“ Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson er trúlofaður en söngvarinn síkáti greindi áhorfendum á tónleikum frá þessu um helgina samkvæmt mbl.is. Heitmaður Páls er frá Venesúela og sagði Páll á tónleikunum að þetta yrðu fyrstu jólin sem þeir væru saman og hann væri fullur tilhlökkunar. Páll hefur lengi verið einn af þekkustu og færustu tónlistarmönnum Íslands og hefur kennt sig við ástina...
InnlentTengir saman læsi barna og listamannalaun: „Augljóst að við höfum vanrækt rótina og frumsköpunina “ Niðurstöður hinnar alræmdu PISA könnunar voru kunngjörðar í gær en þar fékk lesskilningur íslenskra barna falleinkunn. Andri Snær Magnason setur niðurstöðuna í samhengi við listamannalaun. Rithöfundurinn Andri Snær Magnason skrifaði færslu á Facebook í gær þar sem hann talar um niðurstöðu PISA könnunarinnar um læsi og lestur barna en íslensk börn komu afar illa út úr henni. Setur rithöfundurinn þetta...
InnlentSérsveit kölluð út á Laugaveg Sérsveit lögreglu var kölluð út í verslunina Attikk við Laugaveg í gærkvöldi. Þar hafði hópur fólks farið inn í verslunina og hafði í hið minnsta einn meðlimur hópsins hníf í fórum sínum. Ekki liggur fyrir hvort hópurinn hafi ætlað að fremja rán en var sérsveit kölluð út vegna þess að um hnífaburð var að ræða. Mun þetta ekki í fyrsta...
InnlentAfstaða gefur bágstöddum 50 rúmdýnur: „Nú þegar kuldinn og myrkrið er sem mest“ Afstaða, félag fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun, afhenti Reykjavíkurborg 50 nýjar dýnur sem verða notaðar í neyðarskýlum og úrræðum í borginni en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Heiða Björg Hilmarsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, tók við dýnunum í ráðhúsi Reykjavíkur. „Um er að ræða 50 sérhannaðar dýnur, af tegund sem meðal annars eru notaðar á...
InnlentVirtur framkvæmdarstjóri skaut konu sína og sjálfan sig til bana – Beið vistunar á geðsjúkrahúsi Guðmundur Gestsson hafði komið árum sínum ágætlega fyrir borð árið 1952 en hann var framkvæmdarstjóri ríkisspítalanna og átti Ingibjörgu Helgadóttur sem konu. Saman áttu þau þriggja ára dóttur og 17 ára dreng er þau létust. Guðmundur hafði glímt við mikil andleg veikindi og dvalið á stofnun í Danmörku en var nú kominn heim til Íslands og beið vistunar á geðsjúkrahúsi....
InnlentUmdeildur pistill um Sigga Gunnars tekinn úr birtingu: „Tókst að verða sjálfum sér til skammar“ Sigurjón Magnús Egilsson, ritstjóri Miðjunnar, tók umdeildan pistil úr birtingu á Miðjunni en pistlahöfundur sakar hann um að vega að tjáningarfrelsi sínu. Jóhann Þorvarðarson hefur skrifað alls 1100 aðsenda pistla sem birst hafa á Miðjunni en sá nýjasti, sem ber heitið Ég er mestur, ég er bestur og ég er allt sem ég vil vera, féll ekki í kramið hjá...
InnlentÞingmaður ósáttur með Creditinfo: „Er með einokun á markaði og sölu persónuupplýsinga“ Undir lok síðasta mánaðar tilkynnti fyrirtækið Creditinfo um nýtt lánshæfismat. Í því er notast við eldri gögn en áður hefur verið gert og hefur slíkt hlotið mikla gagnrýni, bæði meðal þingmanna og almennings. Lánshæfismat þetta er notað af helstu lánastofunum Íslands þegar fólk sækir um lán. Neytendasamtökin hafa gagnrýnt Creditinfo fyrir þessa nýju aðgerð og segja að fólk hafi lent...
InnlentSigurður er fallinn frá Stærðfræðingurinn Sigurður Helgason er látinn, 96 ára að aldri. Mbl.is greinir frá. Sigurður fæddist á Akureyri árið 1927 og var sonur Klöru Briem og Helga Skúlasonar. Eftir að hafa útskrifast úr Menntaskólanum á Akureyri og farið í eitt ár í Háskóla Íslands hélt Sigurður erlendis í nám og lauk doktorsnámi frá Princeston-háskóla árið 1954. Að loku námi kenndi hann við...
InnlentForseti Rauða krossins í sjokki eftir heimsókn á Gaza: „Sterkar vísbendingar um þjóðernishreinsun“ Forseti Alþjóðlega rauða krossins er í áfalli eftir heimsókn á Gaza. Kristinn Hrafnsson birti færslu á Facebook í dag þar sem hann hlekkjar á myndband þar sem Mirjana Spoljaric, forseti Alþjóðlega rauða krossins, tjáir sig eftir heimsókn á Gaza, Palestínu, en Rauði krossinn leggur ekki í vana sinn að tjá sig opinberlega um stríðsátök. „Það er fáheyrt – mögulega án...
InnlentGríðarlega lélegur lesskilningur barna kom í ljós í nýrri könnun Niðurstöður nýrrar PISA-könnunar sem birtist á vef Stjórnarráðs Íslands koma eflaust foreldrum á óvart en þær sýna lakari árangur nemenda á Íslandi samanborið við önnur Norðurlönd. Tvö af hverjum þremur fimmtán ára börnum búa yfir grunnhæfni í lesskilningi og aðeins rétt rúmur helmingur drengja. Niðurstöðurnar sýna að stjórnvöld, stofnanir og sveitarfélög þurfi að sýna samstöðu og leggjast tá eitt til...
InnlentLögreglan lýsir eftir Búkollu – Sást síðast á Reykjanesbraut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Búkollu sem var stolið. Nei, þetta er ekki belja heldur vinnutæki með skráningarnúmerið JB-P52. „Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir svartri og gulri Búkollu með skráningarnúmerið JB-P52. Henni var stolið af athafnasvæði verktaka við Álfabakka síðastliðinn sunnudagsmorgun. Síðast sást til Búkollu þar sem henni var ekið eftir Reykjanesbraut í átt að Hafnarfirði. Sjáist hún í umferð...
InnlentHelga Vala: „Við sendum ekki fylgdarlaus börn á götuna í Grikklandi“ Helga Vala Helgadóttir býst við að ríkisstjórnin ákveði á fundi í dag að senda palestínsku drengina ekki úr landi. Lögmaðurinn og fyrrverandi þingkonan Helga Vala Helgadóttir skrifaði rétt í þessu stutta en hnitmiðaða Facebookfærslu þar sem hún tekur fyrir mál palestínsku drengjana sem Útlendingastofnun hyggst reka úr landi á næstunni. Segir hún að engin stjórnvöld með „snefil af sómakennd og...