„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“ Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
InnlentLögreglan tjáir sig um ítrekuð hópslagsmál við FB: „Sá sem var tekinn í gær var vistaður á Stuðlum“ Lögreglan hefur í fjögur til fimm skipti verið kölluð til vegna hópslagsmála við Fjölbrautaskólann í Breiðholti að undanförnu. Tveir ungir drengir eru sagðir bera höfuðábyrgð á slagsmálunum en búið er að vista annan þeirra á Stuðlum. Sjá einnig: Sláandi myndskeið af hópslagsmálum við FB: „Eðlilegt að fólki líði illa“ „Ég get staðfest það að einn drengur var tekinn í gær,“...
InnlentDauðadómur fyrir samkynhneigð í Úganda:“Hvernig ætla stjórnvöld á Íslandi að bregðast við þessu?“ Kristinn Hrafnsson spyr hvernig íslensk yfirvöld ætli að bregðast við lögum um dauðarefsingu yfir samkynhneigðum í Úganda. Yfirvöld í Úganda breyttu lögum fyrr í sumar, sem gerðu það að verkum að „samkynhneigð af ásetningi“ er dauðarefsing. Kristilegur þrýstihópur frá Bandaríkjunum er talinn tengjast hinum ógeðfelldu lögum eins og fram kemur meðal annars hér. Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks spyr í nýrri...
InnlentSláandi myndskeið af hópslagsmálum við FB: „Eðlilegt að fólki líði illa“ Tveir ungir menn hafa ítrekað gert árásir á karlkyns nemendur Fjölbrautaskólans í Breiðholti en þeir eru sjálfir nemendur við annan skóla. Sérsveitin hefur verið kölluð til í eitt skipti. Lögreglan hefur haft hendur í hári annars þeirra. „Málið er upplýst,“ segir Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti. „Um er að ræða nemendur sem eru utan skóla, það er að...
InnlentÁgúst Þorleifsson fallinn frá Ágúst Þorleifsson, fyrrum dýralæknir í Eyjafirði, er fallinn frá Ágúst lést á sunnudaginn 27. Ágúst og var 93 ára gamall en Akureyri.net greindi frá. Ágúst fæddist árið 1930 í Hrísey og voru foreldrar hans Þóra Magnúsdóttir, húsmóðir, og Þorleifur Ágústsson, bóndi. Ágúst hélt til Noregs til að læra dýralækningar og lauk því námi árið 1957. Eftir það flutti Ágúst aftur...
InnlentSamstöðufundur Samtakanna 78 gekk vel: „Veitast að réttindum hinsegin fólks“ Samstöðufundur Samtakanna 78 til að sýna hinsegin fjölskyldum samhug og stuðning gekk vel. „Um 50 manns mættu til að sýna hinsegin fjölskyldum samhug og stuðning en ríkisstjórn ríkisstjórn Giorgiu Meloni hefur frá því hún tók við völdum unnið gegn hinsegin fólki og þá sérstaklega fjölskyldurétti þeirra í nafni ‘hefðbundins’ fjölskyldumynsturs. Í nokkur ár hafa sumar ítalskar borgir skráð börn samkynja...
InnlentSegir Svandísi beitta ofbeldi af Sjálfstæðisflokknum: „Hefur kjark og þor sem fáir hafa sýnt“ Bubbi Morthens segir Sjálfstæðismenn beita Svandísi Svavarsdóttur ofbeldi vegna hvalveiðibannsins. Söngvaskáldið stóryrta, Bubbi Morthens tekur upp hanskann fyrir Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra í færslu á Facebook. Þar segir hann Sjálfstæðismenn „hamast eins og naut í flagi“ við að reyna að snúa ráðherrann frá því að banna hvalveiðar. Segir hann að Svandís hafi sýnt kjark og þor undanfarin ár en að hann...
InnlentSjálfstæðismenn hafa í hótunum við Svandísi: „Ekki til þess að skapa traust“ Sjálfstæðismenn virðast varla styðja ráðherra eigin ríkisstjórnar. Umdeilt bann Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, á hvölum gæti orðið ríkisstjórninni að falli ef marka má ummæli Vilhjálms Árnasonar á RÚV í morgun. Þar gefur þingmaður og ritari Sjálfstæðisflokksins í skyn að Svandís verði ekki varin vantrauststillögu komist Umboðsmaður Alþingis að þeirri niðurstöðu að hún hafi brotið lög með banninu. En stuðningur Sjálfstæðismanna við...
InnlentDauðadrukkinn ökumaður hafnaði utan vegar – Fíflagangur í miðborginni Ölvaðir ökumenn í vanda af ýmsum toga voru helstu verkefni lögreglunnar í gærkvöld og nótt. Ein af fáum undantekningin frá því þema var einstaklingur sem ónáðaði fólk i miðborginni með háttalagi sem var til ama. Lögreglan hafði hendur í hári hans og veitti manninum tiltal. Eftir samtal við lögreglu lofaði hann að láta af fíflaganginum. Tilkynning barst um ölvaðan ökumann...
InnlentBubbi segir tvær þjóðir búa á Íslandi: „Ein notar krónu, hin með alla vasa troðna af evrum“ Bubbi Morthens segir tvær þjóðir búa á Íslandi, ein sem notar krónu og önnur með fulla vasa af evrum og dollurum. Söngvarinn sívinsæli, Bubbi Morthens skrifaði færslu á Facebook í dag þar sem hann segir tvær þjóðir búa á Íslandi. „Ein notar krónu hún nær rétt að halda höfðinu uppúr sjónum með fólkið svamlandi í verðbólgu boðaföllum með verðtrigð krónulán...
InnlentKlara svarar óánægðum dómurum: „Það hafa allir rétt á sinni skoðun“ Klara Bjartmarz, framkvæmdarstjóri KSÍ, svarar ósáttum dómurum. Eins og Mannlíf hefur fjallað um ríkir mikil óánægja meðal knattspyrnudómara á Íslandi. Þeir telja að þeim sé sýnd óvirðing og vanþakklæti fyrir erfið störf sem eru illa borguð. Mannlíf ræddi um helgina við reynslumikinn og starfandi dómara sem hafði ýmislegt út á að setja varðandi KSÍ og sagði hann að mikil reiði...
InnlentGunnar segir ýmsar ástæður fyrir verðhækkunum: „Þá yrði þetta fólk væntanlega allt atvinnulaust“ Formaður Bændasamtakanna telur hækkandi verð á landbúnaðarvörum eðlilegt. RÚV birt í gær frétt um verðsamanburð á landbúnaðarvörum og hafa sumar vörur hækkað gífurlega í verði. Kíló af íslenskum kartöflum hefur hækkað um 84% frá 2021 og kílverð á frosnu lambabæri um 50%. Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtakanna, segir margt spila inn í þessar verðhækkanir. „Meginástæðan þar er náttúrulega léleg afkoma í...
InnlentUmsátur í Grindavík: „Sérsveitarmenn eru búnir að vopna sig upp og eru með skildi“ Umsátursástand stendur yfir í Grindavík en vopnaðir sérsveitarmenn hafa umkringt einbýlishús þar í bæ. Samkvæmt frétt DV stendur yfir lögregluaðgerð fyrir utan einbýlishús við götuna Norðurvör í Grindavík. Sérsveit Ríkislögreglustjóra er á svæðinu auk sjúkrabíls og nokkurra lögreglubíla. Samkvæmt borgara sem DV talaði við eru sérsveitarmennirnir vopnaðir skotvopnum en lögreglan hefur ekki enn brotist til inngöngu í húsið, eftir því...