Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Sláandi myndskeið af hópslagsmálum við FB: „Eðlilegt að fólki líði illa“

Fjölbraut í Breiðholti
Fjöl­braut í Breið­holti

Tveir ungir menn hafa ítrekað gert árásir á karl­kyns nem­endur Fjöl­brauta­skól­ans í Breið­holti en þeir eru sjálfir nem­endur við annan skóla. Sér­sveitin hefur verið kölluð til í eitt skipti. Lög­reglan hefur haft hendur í hári ann­ars þeirra.

„Málið er upp­lýst,“ segir Guðrún Hrefna Guð­munds­dóttir skóla­meist­ari Fjöl­brauta­skól­ans í Breið­holti. „Um er að ræða nem­endur sem eru utan skóla, það er að segja ekki í skól­anum. Þetta eru aðal­lega tveir nem­endur sem hafa veist að nem­endum okkar í nokkur skipti. Við höfum kallað til lög­reglu og hún er komin inn í málið og tók annan þeirra úr umferð. Þetta eru ungir ein­stak­lingar. Lög­reglan er á hött­unum á eftir hinum.“ Sagðist Guðrún ætla að skrifa bréf til að senda á for­eldra nem­enda við skól­ann, til að halda þeim upp­lýstum.

Mannlíf hefur undir höndum mynd­skeið þar sem sjá má hópslags­mál en þar virð­ast nokkrir ein­stak­lingar ráð­ast á tvo. Aðspurð um mynd­skeiðið seg­ist Guðrún ekki geta svarað til um það en „það voru alla­vega tveir sem urðu fyrir árás á mið­viku­dag­inn og svo gerð­ist aftur eitt­hvað í gær. Og lög­reglan fór á fullt í gær og lét okkur vita að þeir væru búnir að taka alla­vega annan þeirra alveg úr umferð.“

Guðrún segir að nem­endum hafi ekki verið boðin áfalla­hjálp. „Nei, við höfum nú ekki gert það en við ætlum núna að senda tölvu­póst á nem­endur, við erum með mjög mikla nálægð við nem­endur, almennt séð. Við bjóðum þeim að koma til náms­ráð­gjafa ef þau þurfa.“

Móðir stúlku sem stundar nám við skól­ann sagði í sam­tali við Mannlíf að hún ótt­að­ist um öryggi dóttur sinnar. Aðspurð hvort hún teldi stúlkum staf­aði hætta af drengj­unum sagð­ist Guðrún ekki halda það. „Nei, ég held að það sé ekki. Þeir sem hafa orðið fyrir árásum eru drengir. Það er samt alveg eðli­legt að fólki líði illa yfir þessum fréttum.“

Mynd­skeiðið af slags­málum við skól­ann má sjá hér að neðan en við­kvæmir eru varaðir við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar