Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Dauðadrukkinn ökumaður hafnaði utan vegar – Fíflagangur í miðborginni

Lögregla á vettvangi. Myndin tengist ekki fréttinni.
Lögregla á vett­vangi. Myndin teng­ist ekki frétt­inni.

Ölvaðir öku­menn í vanda af ýmsum toga voru helstu verk­efni lög­regl­unnar í gær­kvöld og nótt. Ein af fáum und­an­tekn­ingin frá því þema var ein­stak­lingur sem ónáð­aði fólk i mið­borg­inni með hátta­lagi sem var til ama. Lög­reglan hafði hendur í hári hans og veitti mann­inum til­tal. Eftir sam­tal við lög­reglu lof­aði hann að láta af fífla­gang­inum.

Til­kynn­ing barst um ölv­aðan öku­mann í mið­borg­inni. Sá fannst ekki þrátt fyrir leit. Sama var uppi á ten­ingnum í aust­ur­borg­inni þar sem til­kynnt var um öku­mann í vímu. Hann var horf­inn spor­laust þegar lög­reglan kom. Leit bar ekki árangur.

Drukkinn öku­maður raf­hlaupa­hjóls féll og slas­að­ist. Ökumaður var hand­tek­inn í mið­borg­inni vegna ölv­un­arakst­urs. Dregið var úr honum blóð í þágu rann­sóknar. Í Hafn­ar­firði var annar öku­maður á ferð í svip­uðu ástandi. Ökumaður var stöðv­aður við akstur undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkni­efna. Hann var hand­tek­inn og fluttur til blóð­sýna­töku. Um svipað leyti var framið inn­brot í bænum. Það er til rann­sóknar.

Tilkynnt var um umferð­ar­ó­happ á svæði Kópa­vogs­lög­reglu, skömmu eftir mið­nætti. Ökumaður hafði ekið út af veg­inum og skemmt öku­tæki sitt. Maðurinn reynd­ist vera dauða­drukk­inn. Hann var færður á slysa­deild, þar sem blóð­sýni var tekið í þágu rann­sóknar.

Lögreglu barst til­kynn­ing um ölv­aðan öku­mann um kvöld­mat­ar­leytið. Þetta reynidst vera á mis­skiln­ingi byggt því hann reynd­ist vera að kljást við heilsu­kvilla. Lög­reglu­menn hjálp­uðu honum heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar