InnlentGylfi: „Fáránlegt að banna vönum göngumönnum og hópum að fara á Kirkjufellið“ Gylfi Arnbjörnsson er formaður stjórnar Ferðafélagsins Útivistar. Hann hafði þetta að segja í samtali við mbl.is um bann landeigenda við Kirkjufell á allri umferð um fjallið fram til 15. júní á næsta ári. „Við skiljum alveg þessa stöðu sem landeigendur eru í þarna, en teljum það jafnframt ekki þeirra að meta aðstæður og hvað þá að banna alla umferð um...
InnlentBragi Valdimar hlaut Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar: „Má segja að hann sé dúndur, hann sé diskó“ Bragi Valdimar Skúlason, tónlistarmaður og textasmiður, hlaut í dag Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Verðlaunin eru veitt árlega, á degi íslenskrar tungu, þeim einstaklingi sem hefur með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar. Sérstaka viðurkenningu dags íslenskrar tungu hlaut að þessu sinni...
InnlentSegir 24% landsmanna gerspillt: „Þau sem virðast njóta spillingar og telja fúsk til eftirbreytni“ Það standa öll járn á Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra eftir að skýrsla Ríkisendurskoðanda um sölu Bankasýslunnar á 22,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka var gerð opinber í fyrradag. Gunnar Smári Egilsson sósíalistaforingi er einn af þeim sem heldur á járninu og er ósáttur við Bjarna. Skrifaði hann færslu á Facebook þar sem hann talar um félagssálfræðilega tilraun á landsmönnum: „Félagssálfræðileg tilraun...
Innlent„Hvergi í þættinum er rætt við fagaðila sem framkvæma greiningar eða taka ákvörðun um lyfjameðferð“ Börnin okkar og ábyrgð RÚV! er yfirskrift greinar sem þau Vilhjálmur Hjálmarsson og Gyða Haraldsdóttir rita fyrir hönd ADHD samtakanna, en Vilhjálmur er formaður og Gyða varaformaður: „Um þessar mundir sýnir RÚV þáttaröðina „Börnin okkar“ sem byggir á hugmynd Gunnþórunnar Jónsdóttur og Hermundar Sigmundssonar. Fjórði þáttur [frumsýndur 6. nóvember] bar heitið „Greiningar“ og reyndist svo stútfullur af einhliða fullyrðingum og...
InnlentVarðskipið Freyja prófaði slökkvibúnað sinn – Sjáið glæsilegar ljósmyndir Áhöfnin á varðskipinu Freyju hélt æfingu á Héraðsflóa á dögunum þar sem slökkvibúnaður var prófaður. Tilgangurinn var að kanna virkni búnaðarins og viðhalda þjálfun áhafnarmeðlima. Landhelgisgæslan segir frá æfingunni á heimasíðu sinni en þar kemur fram að varðskipið Freyja sé vel tækjum búið en þar sé meðal annars að finna öflugar slökkvibyssur sem séu gríðarlega afkastamiklar. Alls geta þær dælt...
InnlentSigurður skólastjóri segir skólunum kennt um allt: „Skólafólk á ekki eitt aukatekið orð“ Sigurður Arnar Sigurðsson, skólastjóri Grundaskóla og formaður skólastjórnendafélags Vesturlands, segir að íslenskum skólum sé kennt um allt það sem aflaga fer og misferst í samfélaginu. „Umræðan er oft á tíðum með slíkum eindæmum að skólafólk á ekki eitt aukatekið orð,“ segir Sigurður og heldur áfram: „Harkan og óbilgirnin sem þarna á sér stað er eitthvað sem við sem samfélag þurfum...
InnlentSvona telur Illugi að tekið verði á bankaskýrslunni: „Ég er strax komin með ógleði“ Rithöfundinn Illugi Jökulsson virðist ekkert sérstaklega bjartsýnn á það að nýútkomin skýrsla Ríkisendursskoðunar um söluna á Íslandsbanki komi til með að skila einhverju. Raunar virðist hann handviss um að skýrslan muni engu breyta og spáir því að svona verði viðbrögð forystufólks stjórnarflokkanna: „Skýrslan um Íslandsbankasöluna verður birt á morgun. Katrín, Bjarni og Sigurður Ingi munu segja í einum kór: „Við...
InnlentBrjálaður maður braut borð og réðst að starfsmanni bensínstöðvar- Svaf ölvunarsvefni á veitingastað Óskað var eftir aðstoð lögreglu á veitingastað í Hlíðunum í gærkvöldi vegna manns sem var ofurölvi. Maðurinn hafði pantað sér veitingar en þegar kom að því að borga gat hann ekki greitt fyrir veitingarnar. Þegar lögregla kom á vettvang var maðurinn sofandi ölvnarsvefni og hafði misst þvag. Maðurinn var handtekinn og sökum ástands var hann látinn gista í fangaklefa. Síðar...
InnlentIngunn Unnsteinsdóttir Kristensen: „Heilahristingur er mjög vangreindur á Íslandi“ „Það hefur gríðarlega mikla þýðingu fyrir mig að fá tækifæri til þess að sinna þessu og er Opni háskólinn að sinna flottu starfi. Ég er ekki að segja að ég sé að byrja minn feril beint innan háskólasamfélagsins en ég er búin að vera í akademíunni í nokkur ár sem doktorsnemi. Það er mjög spennandi að fá að halda áfram...
InnlentHalldór segir að HM „sé haldin á blóðvöllum einræðisríkis sem þverbrýtur mannréttindi“ Halldór Reynisson segir að „heimsmeistarakeppin karla í fótbolta er að hefjast í Qatar. Undir venjulegum kringumstæðum er slíkt keppni atburður sem við áhugamenn um fótbolta bíðum með óþreyju enda hafa þessar keppnir oft verið veisla hinnar fallegu íþróttar. Sjálfur hef ég fylgst með heimsmeistarakeppnum í karlaboltanum frá 1966. Nú bregður öðruvísi við,“ segir Halldór og bætir við: „Keppnin er haldin...
InnlentHorfði upp á barnaníð á Black Panther í Egilshöll- Leitar að móður barnsins: „Mig langaði að öskra“ „Afsakið óþægindin en ég varð fyrir nettu sjokki í bíó á sunnudaginn síðasta 13. Nóvember, vorum á Black Panther kl 16:45 í Egilshöll, þar sat maður fyrir framan mig og barn hægra megin við hann (kannski hans) og móðir barnsins við hliðin á barninu…“ Svo hefst frásögn sem birtist innan Facebook-hópsins Stöndum Saman – Verndum Börnin. Frásögnin er nafnlaus en...
InnlentBóndinn á Nýjabæ loks vörslusviptur: „146 nautgripir losna úr prísund sinni!“ Dýravinir í Borgarnesi með Steinunni Árnadóttur í fararbroddi, fagna nú sigri eftir að hafa barist sleitulaust gegn dýraníð bóndans á Nýjabæ í Bæjarsveit í Borgarfirði og seinagangi MAST í málinu. Steinunn Árnadóttir, organisti, hestakona og dýravinur hefur í nokkra mánuði verið óþreytandi í baráttu sinni gegn illri meðferð hesta og nautgripa á bænum Nýjabæ í Bæjarsveit í Borgarfirði, síðustu mánuði....