Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Hvergi í þættinum er rætt við fagaðila sem framkvæma greiningar eða taka ákvörðun um lyfjameðferð“

Hermundur Sigmundsson.
Her­mundur Sig­munds­son.

Börnin okkar og á­byrgð RÚV! er yfir­skrift greinar sem þau Vilhjálmur Hjálmarsson og Gyða Haralds­dóttir rita fyrir hönd ADHD samtak­anna, en Vilhjálmur er formaður og Gyða vara­formaður:

„Um þessar mundir sýnir RÚV þátta­röðina „Börnin okkar“ sem byggir á hugmynd Gunnþórunnar Jóns­dóttur og Hermundar Sigmunds­sonar. Fjórði þáttur [frum­sýndur 6. nóvember] bar heitið „Greiningar“ og reyndist svo stút­fullur af einhliða full­yrðingum og áróðri gegn greiningum og lyfja­meðferð að mér varð orða vant.“

Þau segja að „hvergi í þættinum er rætt við fagaðila sem framkvæma greiningar eða taka ákvörðun um lyfja­meðferð, heldur byggt á samtölum við ýmsa aðila sem flest virðast eiga það sameiginlegt að telja greiningar rót alls ills. Greining séu „bara útlistun á þínum takmörkum,“ skilaboð til barns séu röng og verið sé að stimpla það. Orðræða af þessu tagi sýnir fátt annað en vanþekkingu viðmælenda á framkvæmd og tilgangi greininga.

Greining á vanda sem upp er kominn hjá barni felst í yfirgrips­mikilli skoðun á þroska-, heilsu- og félags­legum bakgrunni barnsins, þróun og umfangi vandans, svo og ítarlegri kortlaggningu á styrk­leikum barnsins og veik­leikum þess. Niður­stöður greiningar gefa leið­beiningu um hvaða meðferðir eða önnur úrræði séu líklegust til að skila árangri.

Jafnframt á niður­staða að minnka líkur á að gripið sé til gagns­lausra úrræða.“

Þau nefna einnig að „ef einhver telur þetta vera stimplun og röng skilaboð til barns, þá þarf viðkomandi kannski fyrst og fremst að líta í eigin barm.

Að byggja ákvarðanir á þekkingu á aldrei að vera neikvæð staða. Um þverbak keyrir þó þegar fjallað er um lyf. Þar nota viðmælendur orð á borð við „ofvirknislyf,“ eins og ADHD lyfja­meðferð snúi eingöngu að líkamlegri ofvirkni, sem fer fjarri. Í annan stað er fullyrt að ADHD lyf eigi að „draga úr t.d. hvatvísi — dempar þig,“ sem klárlega stað­festir að viðmælandi hefur engan skilning á út á hvað ADHD gengur né virkni ADHD lyfja.

Ítrekað er minnst á lyf vegna kvíða og þung­lyndis, en hvergi tæpt á þeim möguleika að skortur á greiningu geti leitt til rangrar lyfja­meðferðar, til dæmis þegar einkenni þung­lyndis og/eða kvíða séu í raun merki um ógreint ADHD, einhverfu eða annað sem í raun er undir­liggjandi ástæða.“

Að mati Vilhjálms og Gyðu undir­byggir „þáttagerðar­fólk þessar rang­hugmyndir svo með ítrekaðri notkun á nærmyndum af marglitum lyfja­hylkjum sem flæða um eins og sælgæti; gamalt og ódýrt trix í sjónvarps­þáttagerð – iðulega notað til að vekja neikvæð hughrif hjá áhorf­endum – það er hreinlega spurning hvort RÚV sæmi slík vinnu­brögð.“

Bæta þessu við:

„Hermundur kemur svo fram í einhvers lags vísinda­horni, vitnar til kenninga Gilbert Gottlieb um stöðugt samspil þroski, vaxtar, reynslu og náms. Jafnframt að þroski einstaklings sé samspil erfða, tauga­kerfis, atferlis og umhverfis. Ég enga ástæðu til að draga þetta í efa, enda vel þekkt að t.d. ógreint eða vanmeðhöndlað ADHD – þar með talið viðbrögð innan skóla­kerfisins – hefur mikil áhrif á andlegan og félags­legan þroska barns.

Því miður kýs Hermundur og hans samstarfs­fólk að hunsa þessa hlið með öllu. Þess í stað spyr þátta­ferðarfólk hvort lyf séu alltaf lausnin og ýjar þess í stað að því að „regluleg og góð hreyfing og hreint matarræði [geti] t.d. breytt ýmsu til hins betra.“ Eða eins og einn viðmælandi segir, að „[…] mæta bara [barni] með virðingu og ást …!“

Hvað ADHD varðar þá er hreyfing vissulega eitt lykil­atriða – og reyndar gildir það um alla, börn og fullorðna, rétt eins og kemur skýrt fram í fimmta þætti sem frum­sýndur var viku síðar.“

Þau spyrja:

„En hvað er átt við með „hreinu“ mataræði og hvers vegna telst sjálfsögð ‘virðing og ást’ sem einhver töfra­lausn. Það sem okkur fannst kannski undarlegast er að í seinni hluta þáttar bentu viðmælendur á ýmsa þætti sem vissulega útskýra hvar hinn raun­verulegu vandi liggur. Í mistökum við framkvæmd og skort á fjármagni. En á síðustu metrunum drukknar sú umfjöllun í fabúleringum um lyf og fallegri dæmisögu um mann í frakka, sem túlka má á ólíkan máta.

Fyrir hönd ADHD samtak­anna viljum við árétta að niður­stöður fjölda rannsókna staðfesta gagnsemi og mikilvægi greininga, meðferðar og lyfja vegna ADHD. Ómálefnaleg umfjöllun og fram­setning efnis sem er til þess fallið að ala á fordómum í garð greininga, meðferðar og notkunar lyfja fyrir fólk með ADHD, líkt og gert var í þessum þætti á RÚV er afar skaðleg og í full­kominni andstöðu við niður­stöður rannsókna.

Greiningar, meðferð og lyf bjarga lífum! Þátta­röðin er framleidd fyrir RÚV, undir dagskrár­stjórn Skarphéðins Guðmunds­sonar og liggur því beinast við að spyrja dagskrár­stjóra RÚV hvort efnistök og fram­setning í þessum þætti samræmist gæða­kröfum þessarar mikilvægu menningar­stofnunar, sem Ríkis­útvarpið sannanlega er?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning