Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bragi Valdimar hlaut Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar: „Má segja að hann sé dúndur, hann sé diskó“

Bragi Valdimar Skúlason, tónlistar­maður og texta­smiður, hlaut í dag Verðlaun Jónasar Hallgríms­sonar. Verð­launin eru veitt árlega, á degi íslenskrar tungu, þeim einstaklingi sem hefur með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræði­störfum eða kennslu og stuðlað að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar. Sérstaka viðurkenningu dags íslenskrar tungu hlaut að þessu sinni verkefnið Tungumála­töfrar á Ísafirði sem býður upp á upp á málörvandi umhverfi í gegnum skapandi kennslu­aðferðir fyrir fjöltyngd börn.

„Í dag kynnast börn, ungmenni, nýir málhafar og aðrir um allt land deginum og tungu­málinu á nýjan og ólíkan hátt. Deginum sem fagnar tungumáli okkar allra. Tungu­málið er lykillinn að samfélaginu, hvort sem er í lestri bóka, í samfélags­umræðu, á netmiðlum eða í leik og starfi,“ segir Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, menningar- og viðskipta­ráðherra.

„Íslenskan er í fyrirrúmi í dag, en hún á alltaf að vera það. Við skulum fagna þessum degi saman og standa saman vörð um íslenskuna. Við skulum þróa hana saman og kætast yfir því að hún á bjarta framtíð fyrir sér ef rétt er haldið á spöðunum. Íslenskan er okkar allra. Til hamingju með daginn í dag.“

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar

Bragi Valdimar Skúlason hlýtur verð­launin í þetta skipti. Í rökstuðningi ráðgjafa­nefndarinnar segir:
Tungumál slitna ekki við notkun heldur styrkjast. Til þess að íslenska haldi velli þarf að pönkast í henni, leika sér með hana, snúa upp á hana og út úr henni. Verðlaun Jónasar Hallgríms­sonar hlýtur að þessu sinni skáld, grínisti, auglýsinga­maður og uppfræðari. Textar hans eru sungnir við brúðkaup, jarðar­farir og skírnir, kyrjaðir í tjald­útilegum og eru jafn ómissandi hluti af jólahaldi Íslendinga og ítölsk dægurlög. Hann er eftirlæti unglinga og vinnustaða­grínara, kennara og kaffibrúsa­karla.

Bragi Valdimar ásamt Lilju Alfreðs

Um hann má segja að hann sé dúndur, hann sé diskó, það sé mikið í hann lagt! Verð­launin í ár hlýtur Bragi Valdimar Skúlason sem hefur unnið markvisst að því að vekja áhuga fólks á íslenskri tungu og ræktað hana á óvenjumörgum sviðum. Hann er ekki aðeins skáld, texta­höfundur og þýðandi heldur hefur hann gert vinsæla sjónvarps­þætti þar sem viðfangs­efnið er tungu­málið er sjálft. Að auki hefur hann lagt til efni á vef Baggalúts og unnið að auglýsinga­gerð.

Viðurkenning Jónasar Hallgrímssonar

Í rökstuðningi ráðgjafa­nefndar segir um Tungumála­töfra:

„Tungumála­töfrar, Tungumála­töfrar, í takti tölum við saman,“ má heyra sungið af kór barna og full­orðinna á myndbandi sem finna má á netinu. Það var tekið upp á sumar­námskeiði fyrir börn á Ísafirði en þar saman komu krakkar á aldrinum 5–11 ára til að læra íslensku í gegnum list­sköpun og leik. Námskeiðið hefur verið haldið frá árinu 2017 og er ætlað íslenskum börnum sem hafa fæðst erlendis eða flutt til annarra landa og börnum af erlendum uppruna sem hafa sest að hér á landi. Börnin eiga það því sameiginlegt að vera fjöltyngd og um leið og þau eru örvuð til að nota íslensku er þeim bent á þann styrk sem felst í því að kunna fleiri tungumál en eitt. Í lok námskeiðsins hefur verið gengin tungumála­skrúðganga á Ísafirði en einnig hafa aðstand­endur þess staðið fyrir málþingum. Komið hefur fram að þeir vonist eftir því að Tungumála­töfrar á Ísafirði verði uppspretta þekkingar sem geti nýst við þróun námsefnis víðar á landinu.

Við­ur­kenn­ing­ar­hafar ásamt Lilju Alfreðs.

Tungumála­töfrar hljóta sérstaka viðurkenningu fyrir stuðning við íslenska tungu vegna frumkvöðla­starfs á sviði íslensku­kennslu. Um leið á viðurkenningin að vera Tungumála­töfrum hvatning til frekari rannsókna og uppbyggingar­starfs.

Hlýjar móttökur í Fellaskóla

Börnin í Fella­skóla í Reykjavík, tóku á móti ráðherra og verðlauna­höfum og voru viðstödd hátíðlega athöfn í dag. Nemendur sýndu verðlauna­atriði sitt af sviðs­lista­hátíðinni Skrekk, en þau urðu í öðru sæti á hátíðinni. Í Fella­skóla hefur verið unnið að fyrirmyndar­verkefninu Okkar mál-samstarf um menningu, mál og læsi í Fella­hverfi. Verkefnið hefur það að megin­markmiði að auka samstarf skóla í Fella­hverfi og stofnana í Breið­holti. Leiðar­ljósið er að efla félags­legan jöfnuð, náms­árangur og vellíðan barna í hverfinu.

Krakk­arnir í Fella­skóla í Breið­holt­inu stóðu sig með prýði.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning