Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Halldór segir að HM „sé haldin á blóðvöllum einræðisríkis sem þverbrýtur mannréttindi“

Halldór Reynisson.
Halldór Reyn­is­son.

Halldór Reynisson segir að „heimsmeistarakeppin karla í fótbolta er að hefjast í Qatar. Undir venju­legum kringum­stæðum er slíkt keppni atburður sem við áhugamenn um fótbolta bíðum með óþreyju enda hafa þessar keppnir oft verið veisla hinnar fallegu íþróttar.

Sjálfur hef ég fylgst með heims­meistara­keppnum í karla­boltanum frá 1966. Nú bregður öðruvísi við,“ segir Halldór og bætir við:

„Keppnin er haldin í landi sem á sér enga fótbolta­hefð og hefur aldrei komist á heims­meistara­keppni. Fréttir hafa borist af því að fjöldi fólks, aðallega verkamenn frá Asíu hafi látið lífið við framkvæmdir.

Samkvæmt nýlegri frétt í Guardian er talið að allt að 6500 manns hafi látist í undir­búningi keppninnar. Talað er um mannsal þar sem óprúttnir skuggabaldar notfæra sér eymd þessa verka­fólks. Samkvæmt sömu heimild hafa allt að eitt hundrað þúsund verkamenn orðið fyrir barðinu á slíkum glæpa­mönnum. Þá eru háværar raddir um að stór­felldar mútur hafi verið greiddar til áhrifa­fólks í fótboltanum til að tryggja að mótið væri haldið í Qatar, væntanlega til að þvo olíu­mengaðar hendur al-Thani einræðis­herra. Ofan í kaupið eru mann­réttindi í þessu olíu­auðuga Arabaríki ekki upp á marga fiska.“

Halldór nefnir sem dæmi að „samkyn­hneigt fólk er óvelkomið, viðurlögin við samkynheigð í landinu eru allt að 5 ára fangelsi. Og allt að 7 ára fangelsi fyrir kynlíf utan hjóna­bands, – lesist konur. Lasta­listinn er eflaust mun lengri en þetta nægir.“

Hann bendir einnig á að „Philipp Lahm sem var fyrirliði heims­meistara Þjóðverja 2014 ætlar að sitja heima af siðferðis­ástæðum. Hann segir að mann­réttindi verði að vera nauðsynleg forsenda ætli einhver sér að halda heims­meistara­keppni í fótbolta.“

Halldór segir frá því að „þegar ég var strákur að spila fótbolta ólumst við mörg upp við heilræði sr. Friðriks, stofnanda Vals og Hauka: “Látið ekki kappið bera fegurðina ofurliði”.

Nú er það ekki bara kappið sem virðist hafa borið fegurðina ofurliði í fótboltanum einnig heldur peningarnir. Nýjasta dæmið er svo að KSÍ lætur Saudi-Arabíu sem er alræmt ríki fyrir brot á mann­réttindum kaupa sig til að halda æfinga­leik fyrir karla­landsliðið. Það kemur í kjölfar umræðu um þá eitruðu karl­mennsku og ásakana um kynferðis­ofbeldi sem virðist hafa verið kúltúrinn í kringum karla­boltann, altént sumstaðar.“

Halldóri þykir það „umhugsunar­vert í ljósi þess að fótbolta­félög hafa verið óþreytandi að minna á uppeldis­gildi íþróttarinnar, einkum til að fá peninga úr sameiginlegum sjóðum lands­manna.

Ég er ekki viss um að strákarnir okkar hafi alltaf fengið nógu gott uppeldi í fótboltanum, að dæma af þeim málum sem upp hafa komið. Helsta von okkar fótbolta­áhugamanna um fallegan leik hér á landi er kvenna­fótboltinn, ekki síst íslenska kvenna­landsliðið í fótbolta sem er til fyrir­myndar.

Það berst óþefur af peningum og ofbeldi frá heims­meistara­keppninni í fótbolta sem haldin er í Qatar. Segja má að keppnin sé haldin á blóð­völlum einræðis­ríkis sem þver­brýtur mann­réttindi. Svo mikill er óþefurinn að ég sem áhuga­maður um fótbolta til margra áratuga – ætla að slökkva kyrfilega á sjón­varpinu þegar kveikt verður á flóð­ljósum og leikir verða sýndir í sjónvarpi. Sömuleiðis ætla ég að forðast umfjöllun um þetta alræmda mót. Ég skora á alla áhugamenn um hina fallegu íþrótt að gera slíkt hið sama.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning