Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Svona telur Illugi að tekið verði á bankaskýrslunni: „Ég er strax komin með ógleði“

Illugi Jökulsson.
Illugi Jök­uls­son.

Rithöfundinn Illugi Jökulsson virðist ekkert sérstak­lega bjartsýnn á það að nýútkomin skýrsla Ríkisendursskoðunar um söluna á Íslands­banki komi til með að skila einhverju. Raunar virðist hann handviss um að skýrslan muni engu breyta og spáir því að svona verði viðbrögð forystu­fólks stjórnar­flokkanna:

„Skýrslan um Íslands­banka­söl­una verður birt á morgun. Katrín, Bjarni og Sigurður Ingi munu segja í einum kór: „Við þurfum öll að læra af þessu.“ Svo verður skip­aður starfs­hópur um verk­lags­reglur. Ókei, búið.“

Þetta skrifar Illugi á Facebook og fær mikið lof fyrir spádóms­gáfu sína. Glúmur Baldvinsson er einn þeirra sem telur þetta hárrétt hjá rithöfudinum. „Og svo skipa þeir nefnd til að skipa nefnd til að álykta um skýrsluna og síðasta nefndin mun komast að niður­stöðu þegar ríkis­saksóknari mun skila bráðabirgða­ályktun um Samherja­málið. Svo við eigum von á niður­stöðu í báðum málum sirka 2052 þegar allir máls­aðilar verða löngu dauðir,“ segir hann.

Ásthildur nokkur tekur í sama streng. „Ég er svo hrædd um að þetta verði nákvæmlega svona og er strax komin með ógleði. Frasinn „við verðum ÖLL að læra af þessu“ gerir mig alltaf þunglynda og önuga, segir Ásthildur. Og Ásmundur Helgason útgefandi er líka viss um hvað tekur við næstu daga. „Og svo á miðvikudaginn verður Brynjar mjög reiður hér á facebook yfir fáránlegri umfjöllun Rúv um málið og hve góða fólkið er vitlaust og skilji hreinlega ekki málið,“ segir Ásmundur. 

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, hefur nú þegar tjáð sig um skýrslu Ríkis­endur­skoðunar um söluna á Íslands­banka. Hann segist ekki sjá neinar alvarlegar ábendingar eða ásakanir um lögbrot í skýrslunni og að farið verði vandlega verði farið yfir þær ábendingar sem finna má í skýrslunni.

„Staðreyndin er sú að það eru ekki neinar vísbendingar um alvarleg brot, lögbrot, í þessari skýrslu. Svo sannarlega ekki hjá fjármála­ráðuneytinu. Síðan eru að öðru leyti bara marg­víslegar ábendingar um það sem betur hefði mátt fara,“ sagði Bjarni í samtali við Vísi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning