Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ingunn Unnsteinsdóttir Kristensen: „Heilahristingur er mjög vangreindur á Íslandi“

(Mynd: Skúli Andrésson.)
(Mynd: Skúli Andr­és­son.)

„Það hefur gríðar­lega mikla þýðingu fyrir mig að fá tækifæri til þess að sinna þessu og er Opni háskólinn að sinna flottu starfi. Ég er ekki að segja að ég sé að byrja minn feril beint innan háskóla­samfélagsins en ég er búin að vera í akademíunni í nokkur ár sem doktorsnemi. Það er mjög spennandi að fá að halda áfram að starfa innan háskólans en þó með allt öðrum hætti en ég er búin að vera að gera. Þetta er gríðar­lega mikið tækifæri til að vaxa í starfi,“ segir Ingunn Unnsteins­dóttir Kristensen sem nýlega var ráðin sem forstöðu­kona Opna háskólans í Háskólanum í Reyjavík og er nýbúin að verja doktors­verkefni sitt við sálfræði­deild Háskólans í Reykjavík.

Mig langar til að koma með meiri tengsl inn í aka­demsísku deild­irnar í HR.

„Mig langar til að koma með minn akademíska bakgrunn inn í þetta umhverfi. Það er frábært teymi sem er að vinna hérna sem er að vinna flott starf og ég er spennt að fá að móta stefnu Opna háskólans með þeim. Mig langar til að koma með meiri tengsl inn í akademsísku deildirnar í HR; það er nátt­úrlega gríðarleg þekking sem er hérna í húsi og flottur grund­völlur fyrir flottu og öflugu samstarfi á milli deilda og þá með Opna háskólanum.“

Ingunn talar um hve heppin hún hefur verið með fólk sem hún hefur unnið með og hjálpað henni að vaxa í starfi. „Ég hef til dæmis haft flottar kven­fyrirmyndir þegar kemur að starfi mínu undan­farin ár. Dr. María Kristín Jóns­dóttir er ein þeirra sem hafa markað sér vonandi varanlegan sess í mínu lífi en hún var aðal­leið­beinandi á verk­efninu mínu og samstarfið við hana hefur verið bæði lærdóms­ríkt og gefandi. Dr. Hafrún Kristjáns­dóttir, Dr. Sigrún Helga Lund og Dr. Helga Ágústa Sigurjóns­dóttir voru einnig hluti af nefndinni minni og var virkilega gott að vera með svona öflugt stuðningsnet í kringum sig. Hafrún og María hafa reynst mér sérstak­lega vel og verður gaman að fá að halda áfram að vinna með þem í HR þó það verði undir öðrum formerkjum.” María Jóns­dóttir  er professor við sálfræði­deild HR og Hafrún Krisjánsdóttir er deildar­forseti íþrótta­fræði­deildar.

(Mynd: Skúli Andr­és­son.)

Áhrif heilahristings

Ingunn varði nýlega doktors­verkefni sitt við sálfræði­deild HR. Opin kynning á verk­efninu verður svo 9. desember.

„Þetta er stórt verkefni, stór rannsókn, og ber yfir­skriftina Heila­hristingur meðal kvenna á Íslandi – Margþátta rannsókn. Rann­sókninni er ekki lokið en verkefni mitt er hluti af þessari stóru rannsókn þar sem er verið að skoða heila­hristing hjá íþrótta­konum og vorum við að skoða tengsl heila­hristings við líðan, meðal annars við þunglyndi og kvíða og við hugræna færni, og lagði ég meðal annars tauga­sálfræðileg próf fyrir þátt­takendur.

Ég vann líka hluta af rannsóknni með teymi Dr. Paolo Gargiulo sem kemur allt úr verkfræði­deild. Í þeim hluta voru íþrótta­konum boðið að taka þátt í rannsókn í sýndar­veruleika og hafa niður­stöður þess hluta nú þegar verið birtar.  Annar angi á þessari rannsókn er að skoða hvort hormóna­breytingar komi fyrir hjá konum sem hafa fengið heila­hristing. Lára Ósk Eggertesdóttir Claessen, doktorsnemi og læknir,  vinnur þann hluta undir leiðsögn Helgu Ágústu sem er sérfæð­ingur í innkirtla­lækningum. Við förum svo fljótlega af stað með nýgengis­rannsókn á heila­hristing en hún hefur tafist mikið  vegna Covid. Í henni munum við fylgja eftir liðum í fótbolta, handbolta og körfu­bolta og kort­leggja heila­hristing yfir tímabilið.“

Það er þess vegna mik­il­vægt að það sé rétt fræðsla í sam­fé­lag­inu og það sé verið að rann­saka þetta.

Ingunn er spurð hvers vegna hún hafi ákveðið að taka þetta fyrir í doktors­verkefni sínu. Hún segir að þegar sér hafi verið boðið að taka þátt í þessari rannsókn hafi hún verið búin að vinna sem aðstoðar­framkvæmda­stýra Mjölnis í um það bil fimm ár. „Þar vann ég með krökkum sem voru í íþrótt þar sem var hætta á að þau fengju heila­hristing. Mér fannst það þess vegna ekki vera spurning þegar mér var boðið að taka þátt í þessu verkefni. Heila­hristingur er mjög vangreindur á Íslandi og úrræðin sem eru í boði eru ekki mörg. Fólk veit oft ekki hvernig það á að takast á við eða glíma við einkenni sem geta orðið mjög alvarleg og koma oft ekkert í ljós alveg strax. Það er þess vegna mikilvægt að það sé rétt fræðsla í samfélaginu og það sé verið að rannsaka þetta; hvað er að gerast, hvað er að hafa áhrif og hvernig einkenni þróast.“

Auka aðgengi að sálfræðiþjónustu

Ingunn tók þátt í að koma á fót nokkurs konar heila­hristings­móttöku sem kallast Heila­heilsa. Á heima­síðunni stendur: „Heila­heilsa veitir faglega og trausta þjónustu þar sem áhersla er lögð á að efla heila­heilsu og að bæta líðan. Við bjóðum upp á sérhæfða þjónustu við einkennum heila­hristings, sálfræði­meðferð, líkams­þjálfun, námskeið og þjónustu við fyrirtæki, fagaðila og stofnanir. Markmið okkar er að auka aðgengi að sálfræði­þjónustu og efla þjónustu við þá sem glíma við einkenni heila­hristings.“ Ingunn er ein af eigendum Heila­heilsu sem vinna í nánu samstarfi við Kim og sjúkra­þjálfara­teymi hans í Kim endur­hæfingu

Við erum að fá til okkar yngra fólk og þá sér­stak­lega íþrótta­fólk sem er að glíma við ein­kenni.

„Ólína Viðars­dóttir sálfræðingur, sem er einn af eigendunum Heila­heilsu, er aðal­sprautan í þessu verkefni og er búin að leiða það af gríðar­lega miklum krafti. Heila­heilsa er búin að vera starfrækt í rúmt eitt og hálft  ár og erum við að taka á móti fólki sem er að glíma við einkenni heila­hristings; bæði fólk sem er að glíma við langtíma­afleiðingar og fólk sem eru nýbúið að fá heila­hristing. Við erum að fá til okkar yngra fólk og þá sérstak­lega íþrótta­fólk sem er að glíma við einkenni. Það er mikilvægt þegar fólk fær heila­hristing að koma strax í eitthvað ferli til þess að takast á við einkennin og þá undir hand­leiðslu sérfræðinga.“

Fjöl­skyldan. Hjónin Ingunn og Haraldur Ingi Shoshan og syn­irnir Mikael Artúr, sem er sá eldri, og Hinrik Alex­ander.

Ágætis æfing í núvitund

Ingunn, sem dreymdi í æsku um að verða heila­skurðlæknir en varð svo doktor í sálfræði, ólst upp í Vogum á Vatnsleysu­strönd og segir hún að því hafi fylgt mikið frelsi að alast þar upp. „Það þekktu allir alla í svona litlum bæ og maður var stundum fram á nótt að leika sér úti og það voru allir að fylgjast með manni og það var ákveðið öryggi í því.“

Það var stutt í fjöruna og oft fór hún þangað og lék sér í fjörunni og í öldunum. Faðir Ingunnar var sjómaður og segist hún bera ótta­blandna virðingu fyrir hafinu.

Ég veit auð­vitað í dag að það gekk ýmis­legt á þarna úti á þessum tíma og í dag er ýmis­legt sem mig langar að vita varð­andi ætt­leið­ing­ar­ferlið og hvernig staðið hafi verið að öllu þarna úti.

Ingunn og bróðir hennar voru ættleidd frá Sri Lanka sama árið, árið 1985, en hann er fimm mánuðum eldri. „Ég ólst upp við það að foreldrar mínir sögðu að ég væri ofboðs­lega rík og ætti fjöl­skyldu á Íslandi og aðra á Sri Lanka og þau sögðu að þau hafi fengið að taka mig heim til Íslands af því að fjöl­skyldunni úti hefði þótt svo vænt um mig en hefði ekki getað hugsað um mig vegna þess að þau voru svo fátæk. Ég veit auðvitað í dag að það gekk ýmislegt á þarna úti á þessum tíma og í dag er ýmislegt sem mig langar að vita varðandi ættleiðingar­ferlið og hvernig staðið hafi verið að öllu þarna úti.“

Hún segir að sig hafi aldrei skort neitt né verið leitandi varðandi uppruna sinn en hún fór þó árið 2015 með eigin­manni sínum, Haraldi Inga Shoshan, til Sri Lanka meðal annars til að skoða landið og upplifa menninguna. „Það var yndisleg ferð og ég hitti fullt af fólki þar úti sem tók mér opnum örmum.“

Ingunn er félags­lynd og segist í gegnumt tíðina hafa reynt að láta til sín taka og var í nemenda­félaginu í grunn­skóla, var í kór í Fjölbrauta­skóla Suðurnesja og í háskóla­kórnum þegar hún stundaði sálfræðininám við Háskóla Íslands en hún var einnig í stjórn Anima, nemenda­félags sálfræði­nema. Hún segist ekki hafa verið búin að æfa lengi í Mjölni þegar hún var komin þar í stjórn.

Ingunn er með með blátt belti í brasilísku jiu jitsu. „Ég byrjaði að æfa hjá Mjölni árið 2011. Ég var í sálfræði­námi á þeim tíma og voru vinir mínir að fara á æfingar hjá Mjölni og þegar ég fór á fyrstu æfinguna þá heillaðist ég af þessari íþrótt.“

Ég segi oft að þetta sé gríð­ar­lega góð æfing í núvit­und.

Hún segist líta á jiu jitsu sem ágætis æfingu í núvitund. „Maður mætir á æfingu og þar er fólk með ýmiss konar bakgrunn. Það þarf að reiða sig á tæknina til að yfirbuga andstæðinginn og snúa stöðunni við. Ég segi oft að þetta sé gríðar­lega góð æfing í núvitund en maður þarf að vera fókuseraður inn á við. Maður þarf að spá mikið í hvað er að gerast í augna­blikinu, hvað líkaminn getur gert og hver næstu skref eru. Maður getur á meðan ekki mikið verið að hugsa um aðra hluti eða hvað er að gerast fyrir utan. Maður þarf að vera í núinu og vera svolítið með fókusinn inn á við eins og ég sagði.“

Fordómar

Ingunn var líka um tíma í stjórn Íslenskrar ættleiðingar. „Þetta er málefni sem mig langar til að láta mig varða meira. Það var lærdóms­ríkt ferli að kynnast sögu ættleiðingar á Íslandi og hvað hefur breyst.“

Ingunn hefur í gegnum árin fundið fyrir ýmiss konar fordómum í sinn garð vegna dökks húðlitar síns en tekur fram að ekki hafi alltaf verið um illkvittni að ræða. „Stundum segir fólk hluti í hugsunar­leysi og áttar sig ekki á vigt þess sem það er að segja. En þegar kemur að bakrunni eða húðlit fólks þá má fólk nú líka alveg staldra við og hugsa áður orðin eru látin falla.

Það hefur ýmis­legt verið látið flakka í gegnum tíð­ina.

Það er ýmislegt sem hefur gerst sem hefur mótað mig. Ég hef oft þurft að eiga í krefjandi samskiptum við fólk og það markaði djúp spor og hefur haft áhrif á það hver ég er í dag. Ég held að margir með dökkt hörund hafi einhvern tímann upplifað fordóma á Íslandi. Ég hef fengið að heyra ýmislegt og ýmislegt hefur ekki verið sagt í illri meningu en oft fattar fólk ekki hvað það er að segja. Það hefur ýmislegt verið látið flakka í gegnum tíðina. Þegar ég var yngri þurfti ég oft að segja að ég væri íslensk og talaði íslensku. Þá upplifði ég mig stundum ekki sem hluta af hópnum. Mér fannst ég þurfa að velja hvernig ég skilgreindi minn bakrunn, annaðhvort þurfti ég að vera alíslensk eða útlensk. En eftir að ég varð eldri og sjálfs­öruggari varðandi það hver ég er, sem fólst meðal annars í því að horfast í augu við mína kynhneigð og það að kannski eru strákar ekki bara aðalmálið, þá skiptir það mig minna máli hvernig ég skilgreini mig. Allt sem ég hef lent í hefur mótað mig og hjálpað mér á þeirri vegferð. Það að vera ættleidd lýsir fjölþættum bakrunni og kannski oft flókinni sögu og það er allt í lagi.“

Ingunn og eigin­maður hennar eiga tvo unga syni sem fæddust báðir á meðan móðir þeirra var í doktors­náminu. „Það að eiga ung börn í námi hjálpaði klárlega til við að forgangs­raða og setja hlutina í samhengi þegar það var álag. Og þó það hafi oft komið krefjandi tímar þá hefði ég eiginlega ekki viljað gera það öðruvísi; þeir hjálpuðu mömmu sinni alveg við að klára þetta. Núna hlakka ég bara til næsta kafla og hlakka til að takast á við ný og spennandi verkefni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning