LandiðKrossinn er fokinn af kirkjunni og Þjóðkirkjan áhyggjulaus Eitt elsta guðshús landsins, kirkjan á Stað í Reykhólahreppi, hefur misst krossinn og stendur kollótt á hlaðinu á kirkjustaðnum. Samkvæmt heimildum Mannlífs hefur þetta verið svona um hríð og hafa stjórnendur Þjóðkirkjunnar ekki áhyggjur af ástandinu. Ekkert hefur verið gert í því að koma krossinum aftur upp. Viðhald kirkjunnar er reyndar á ábyrgð Þjóðminjasafns Íslands þar sem hún er á...
LandiðAppelsínugulur Porche ók inn á Reykhóla MYNDIR Skrúðakstur dráttarvéla af öllum gerðum og aldri sýndu sig og sína á Reykhólum í gær. Fjölmargir íbúar og gestur fylgdust með viðburðinum sem er árlegur fylgifiskur Reykhóladaga. Fólk lét ekki rigningu eð akulda hafa áhrif á sig. Elstu vélarnar sem streymdu inn í þorpið voru frá því landbúnaðurinn væelvæddist fyrir alvöru, allt að 70 ára og þær yngstu tröllvaxnar hátæknigræjur...
LandiðApple hefur ekki fengið leyfi til að ljósmynda Grindavík: „Enginn hér meðvitaður um þetta“ Um þessar mundir er bíll frá tæknifyrirtækinu Apple að keyra um landið. Markmið Apple er að taka myndir af öllum helstu bæjarfélögum landsins til að koma þeim inn í Apple Maps og auðvelda þannig notendum sínum að skoða landið og ná áttum. Slík þjónusta hefur verið í boði hjá Google og Já árum saman. Vakið hefur athygli að fyrirtækið hyggst...
LandiðLögreglan leitaði fíkniefna í spíttbáti: „Þessir menn eru bara saklausir“ Samkvæmt Jóni Sigurgeirssyni, lögreglufulltrúa hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, var um tollaeftirlit að ræða í gær þegar lögreglan leitaði í spíttbáti sem kom til Hafnar í Hornafirði frá Færeyjum. „Það kemur bátur upp að landi í gær og við tollaeftirlit vöknuðu grunsemdir um að þarna væri eitthvað sem þyrfti að skoða betur. Þá komum við inn í þetta, miðlæg...
LandiðHatursorðræða í Hveragerði: „Okkar svar er alltaf opnara samfélag og meiri kærleikur“ Það blasti ljót sjón við íbúum Hveragerðis í morgun þegar kom í ljós að unnin hefðu verið skemmdarverk á regnbogafána sem hafði verið málaður á götu þar í bæ í tilefni Hinsegin daga sem fara nú fram. Fáni nasista var meðal þess sem málað var á Pride-fánann. Pétur G. Markan, bæjarstjóri í Hveragerði, segir málið vera ömurlegt en hatursorðræða var...
LandiðSameiningaráhugi í algjöru lágmarki í Súðavík: „Átti að vera hvatinn“ Lítill áhugi er á sameiningu við annað sveitarfélag hjá íbúum Súðavíkurhrepps að sögn Braga Þórs Thoroddsen, sveitarstjóra Súðavíkurhrepps. Haldinn var fundur þann 21. júlí um mögulega sameiningu við annað sveitarfélag en um 40 manns sóttu fundinn. Samkvæmt lagabreytingu frá 2021 þurfa sveitarfélög með 250 eða færri íbúa að sameinast öðru sveitarfélagi eða sannfæra innviðaráðuneytið að sveitarfélagið hafi getu til að...
LandiðLöng bið eftir snjóflóðavarnargarði í Neskaupstað: „Vonandi gengur þetta bara sem best og hraðast“ Vinna er hafin við gerð á snjóflóðavarnargarði við Neskaupstað en hann rís fyrir ofan austan hluta bæjarins en þar yrðu fjögur íbúðarhús fyrir snjóflóði í fyrra. 730 metra langur þvergarður verður reistur og tvær keiluraðir sem samanstanda af 20 keilum en þeim er ætlað að draga úr hraða snjóflóða. Í samtali við RÚV sagði Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar,...
LandiðGuðnakleif á Glissu til heiðurs forsetanum Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er líklega eini þjóðhöfðingi landsins sem klifið hefur fjallið Glissu sem Glissa er tignarlegt V-laga fjall. Gönguleið upp er hægra megin á myndinni.Mynd: Guðrún Gunnsteinsdóttir stendur á mörkum Reykjafjarðar syðri og Ingólfsfjarðar í Árneshreppi. Guðni gekk á fjallið á dögunum í boði Ferðafélags Íslands. Við það tækifæri var hann sæmdur gullmerki félagsins fyrir stuðning við...
LandiðGrunnskólinn á Djúpavogi býður upp á pólskunám:„Það komu nokkrir nemendur til okkar og lýstu áhuga“ Síðasta vetur var boðið upp á pólskunám sem valgrein í Djúpavogsskóla. Hugmyndin kemur frá nemendum skólans en skólastjórinn segir áhugann hafa verið ágætan. „Það komu nokkrir nemendur til okkar og lýstu áhuga á að læra pólsku. Við erum með nokkra pólskumælandi starfsmenn og þar af einn kennara sem tók vel undir þetta og við ákváðum að hafa þetta sem eina...
LandiðBeljan sparkaði barninu þvert yfir fjósið: „Síðan átti ég aldrei bröndóttar kýr“ „Það eru til og hafa alla tíð verið til bröndóttar kýr. Sumar þessara kúa hafa þótt illar í skapi og átti ég eitt sinn eina slíka,“ skrifar Ámundi Loftsson, fyrrverandi kúabóndi, um fyrirbærið bröndóttar kýr. Ámundi ritar þetta í athugasemd við þráð á Facebook þar sem spurt er hvort kýr geti verið bröndóttar rétt eins og kettir. Ámundi lýsir biturri...
LandiðKK kemur í Fjárhúsið Söngvaskáldið Kristján Kristjánsson, KK, mætir í Fjárhúsið á Valgeirsstöðum í Árneshreppi á laugardaginn komandi, 20 júlí. Þar mun hann flytja margar af sínum bestu perlum. Tónleikarnir eru öllum opnir en þeir eru haldnir í tengslum við gönguhóp Ferðafélags Íslands sem verður um helgina í skála Ferðafélagsins og gengur á fjöll í grenndinni. Ferðin heitir Kálfatindar og KK og er vísað...
LandiðAfar ósáttur við að Amaro-skiltið fari aftur upp í haust: „Mér finnst þetta mjög skrýtið“ Einn eiganda Hafnarstrætis 99 í miðbæ Akureyrar er afar ósáttur við þá fyrirætlan að gamla Amaro-skiltinu verði komið upp aftur utan á húsið, eftir þriggja ára fjarveru. Skiltinu verður komið upp fyrir Akureyrarvöku sem haldin verður 30. ágúst til 1. september, að sögn Þórhalls Jónsonar fyrrum kaupmanns. Akureyri.net sagði frá því á dögunum að Amaro-skiltið, sem fyrir löngu er orðið...