Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Krossinn er fokinn af kirkjunni og Þjóðkirkjan áhyggjulaus

Krossinn er fokinn af kirkjunni og Þjóðkirkjan áhyggjulaus
Krossinn er far­inn og kirkju­yf­ir­völd eru áhu­yggju­laus. Mynd: Reynir Traustason.

Eitt elsta guðs­hús lands­ins, kirkjan á Stað í Reyk­hóla­hreppi, hefur misst kross­inn og stendur koll­ótt á hlað­inu á kirkju­staðnum. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hefur þetta verið svona um hríð og hafa stjórn­endur Þjóð­kirkj­unnar ekki áhyggjur af ástand­inu. Ekkert hefur verið gert í því að koma kross­inum aftur upp. Viðhald kirkj­unnar er reyndar á ábyrgð Þjóð­minja­safns Íslands þar sem hún er á forn­minja­skrá. Þegar skoðað er inn­an­dyra kemur í ljós að ýmsu er þó ábóta­vant og ber kirkjan fleiri merki van­rækslu en kross­leysið.

Stað­ar­kirkja er gull­fal­leg en koll­ótt eftir að kross­inn fauk.

Staður er um átta kíló­metra vestur frá Reyk­hólum á Reykja­nesi í Austur-Barða­strand­ar­sýslu. Eitthvað er um að ferða­menn komi og myndi kirkj­una sem í ggrunn­inn er fal­leg en auð­vitað er hálf­gerð hryggð­ar­mynd, kross­laus.  Á vef Þjóð­minja­safns­ins er sagt frá því að á árum áður var þar stór­býli og Ólafs­kirkja í kaþ­ólskum sið. Prests­setur var á Stað fram til 1948 en var þá flutt að Reyk­hólum, þar sem áður hafði verið útkirkja frá Stað.

Stað­ar­kirkja var reist árið 1864 af Daníel Hjalta­syni gull­smið, hrepp­stjóra og bónda. Húsið er opið gestum á eigin ábyrgð dag­lega 8-18 og fólk er beðið að ganga vel um.

Stað­ar­kirkja er lítið breytt frá upp­haf­legri gerð, með turni yfir vest­ur­stafni. Dyra­um­bún­aður kirkj­unnar er skraut­legur, beggja vegna dyra eru hálf­súlur með súlna­höfðum í ein­föld­uðum sam­settum stíl. Þetta er ein af fyrstu timb­ur­kirkj­unum sem upp­haf­lega var máluð, en ekki tjörguð, en til­heyrir þó eldri gerð kirkna með þakt­urni.

Stað­ar­kirkja í sinni feg­urstu mynd með kross­inn á turn­inum.

Þá segir á vefnum að illa hafi verið  komið fyrir kirkj­unni þegar ákveðið var að taka hana á forn­leifa­skrá árið 1964, hund­rað árum eftir að hún var reist. Yfir­bygg­ingin var fúin og skæld, en stein­hlaðin und­ir­staðan úr lagi gengin. Þjóð­minja­safnið fékk Bjarna Ólafsson smið til við­gerða skömmu síðar og var kirkj­unni þá lyft af grunni, und­ir­stöð­urnar hennar voru styrktar og henni komið fyrir á nýjun und­ir­stöðum. Veggirnir eru klæddir lista­súð að utan­verðu og á þaki er renni­súð. Gert var við kirkj­una á nýju fyrir 30 árum en nú er allt að kom­ast í óefni og kross­inn fall­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil