LandiðTvö vinnuslys og harður árekstur á Austurlandi Harður árekstur varð við Eskifjörð á laugardag en einn var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahús. Þá voru tveir einstaklingar fluttir á sjúkrahús eftir sitt hvort vinnuslysið í fiskvinnslum Austanlands á föstudag. Austurfrétt segir frá því í dag að harður árekstur hafi orðið á móti Eskifjarðarvegar og Norðfjarðar á laugardag en þar skullu saman tveir bílar sem komu úr gagnstæðum áttum....
LandiðÓvissustigi lýst yfir vegna jökulhlaups: „Rafleiðni hefur farið hækkandi“ Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, lýsir yfir óvissustigi Almannavarna vegna jökulhlaups úr Mýrdalsjökli. Rafleiðni hefur farið hækkandi í Skálm frá því seinnipartinn 7. september ásamt því að vatnshæð árinnar hefur farið eilítið vaxandi og því talið að jökulhlaup sé hafið en greint er frá þessu í fréttatilkynningu. Engin hlaupórói mælist að svo stöddu á jarðskjálftamælum við Mýrdalsjökul.
LandiðVopnfirðingar minnast Violetu Mitul í kvöld – Ár liðið frá andláti knattspyrnukonunnar Minningarathöfn verður haldin á Vopnafirði í kvöld í tilefni þess að ár er liðið frá því að moldóvska knattspyrnukonan Violeta Mitul lést af slysförum í bænum. Austurfrétt segir frá því að Vopnfirðingar séu boðaðir til athafnar í kvöld við setubekk yst á Hafnarbyggðinni klukkan 18:00, þar sem minningarorð verða flutt sem og tónlist en tilefnið er að nú er ár...
LandiðSir Jim Ratcliffe framleiðir gin til verndar villta laxinum Sir Jim Ratcliffe og samtök hans, Six Rivers munu á næstunni framleiða sérstakt gin í samstarfi við sænskan ginframleiðanda. Hluti söluhagnaðarins mun renna til verndar villta Atlantshafslaxinum. Samkvæmt heimasíðu Six Rivers segir um Íslandsdeild samtakanna: „Six Rivers Iceland er verndaráætlun sem er ekki rekin í hagnaðarskyni, sem leitast við að snúa við hnignun Atlantshafslaxa.“ Það er í því ljósi sem...
LandiðEngin örvænting á Austfjarðamiðum: „Þetta er fallegasti fiskur“ Austfjarðamiðin eru gjöful um þessar mundir en tvö Vestmannaeyjaskip lönduðu fullfermi í Neskaupsstað á sunnudaginn. Skipin Bergur VE og Vestmannaey VE, bæði frá Vestmannaeyjum, lönduðu bæði fullfermi í Neskaupstað á sunnudaginn. Mest var veitt af þorski en einnig talsvert af ufsa og svolítið af ýsu. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar má sjá viðtal við skipstjórana en þar voru þeir spurðir út í...
LandiðLandverðir vara fólk við Snæfelli: „Það er mikil hætta“ Þuríður Skarphéðsinsdóttir, landvörður Vatnajökulsþjóðgarðs í Snæfellsskála, biður fólk um að vera ekki á svæðinu en það hefur snjóað gríðarlega mikið á þar undanfarin sólarhring en daganna þar á undan snjóðaði einnig. „Við mælumst til að fólk sé ekki hér á ferðinni. Það er mikil hætta á að týna veginum og þá geta myndast ljót för utan vega. Þess utan þá...
LandiðSéra Jóhanna blessar Vík Séra Jóhanna Magnúsdóttir hefur verið ráðin sem sóknarprestur við Víkurprestakall í Suðurprófastsdæmi en greint er frá þessu á heimasíðu Þjóðkirkjunnar. Jóhanna mun taka við starfinu á næstu vikum en í prestakallinu eru sex sóknir og búa rúmlega 1400 manns á svæðinu. Húsnæði fyrir hana er staðsett í Vík en þar búa flestir íbúar í prestakallinu. Jóhanna fæddist árið 1961 í...
LandiðBorgandi gestir Kersins þurfa ennþá að kúka úti: „Erum að vinna að því að hanna þjónustuhús“ Borgandi gestir Kersins geta ekki ennþá gert þarfir sínar á svæðinu án þess að skila þeim beint til móður náttúru þrátt fyrir að gjaldtaka hafi verið á svæðinu undanfarin 11 ár. „Við erum að vinna að því að hanna þjónustuhús erum búin að ráða arkitekt og gera þarfagreiningu. Vonandi verður hægt að hefja framkvæmdir á þessu eða næsta ári. Við...
LandiðRisasveppur vex við Sigurgerði í Fellum: „Ég hélt fyrst að þetta væri dautt lamb“ Við aflögð útihús við Sigurgerði í Fellum á Héraði, hefur glæsileg jötungíma, sem talin er vera stærsta sveppategund heims, dúkkað upp. Þar hefur jötungíman skotið upp kollinum af og til síðustu 15 árin. „Sveppurinn kemur ekki fram á hverju ári. Það eru 2-3 ár síðan hún sást hér síðast,“ segir Brynjólfur Rúnar Gunnarsson, bóndi á Hafrafelli í samtali við Austurfrétt....
LandiðSameining skoðuð í Árneshreppi á Ströndum: „Okkar næstu nágrannar eru Kaldrananeshreppur“ Hreppsnefnd Árneshrepps heldur íbúafund í dag þar sem sameining við önnur sveitarfélög verður til skoðunar. Alls eru skráðir 53 íbúar í Árneshreppi en rúmlega 20 manns eru með búsetu þar allt árið. Þau sveitarfélög sem liggja að Árneshreppi eru Kaldrananeshreppur með höfuðstaðinn Drangsnes og Ísafjarðarbær. Skúli Gautason, staðgengill sveitarstjóra í Árnsehreppi, segir við RÚV að fundurinn í dag verði fyrsta...
LandiðNatascha gengur alltaf berfætt og talar lýtalausa íslensku „Ég geng alltaf berfætt nema í vinnunni,“ segir Natascha Harsch, íbúi á Reykhólum og starfsmaður Þörungavinnslunnar, sem stóð berfætt í suddanum við að gefa súpu fyrir utan heimili sitt við Hellisbraut á Reykhólum. Natascha var ein þeirra sem gáfu súpu á Reykhóladögum um liðna helgi. Hún bauð upp á gómsæta katöflusúpu. Natascha Harch gaf gestum og gangandi súpu um helgina....
LandiðKrossinn er fokinn af kirkjunni og Þjóðkirkjan áhyggjulaus Eitt elsta guðshús landsins, kirkjan á Stað í Reykhólahreppi, hefur misst krossinn og stendur kollótt á hlaðinu á kirkjustaðnum. Samkvæmt heimildum Mannlífs hefur þetta verið svona um hríð og hafa stjórnendur Þjóðkirkjunnar ekki áhyggjur af ástandinu. Ekkert hefur verið gert í því að koma krossinum aftur upp. Viðhald kirkjunnar er reyndar á ábyrgð Þjóðminjasafns Íslands þar sem hún er á...