LandiðÍbúum í Borgarnesi ráðlagt að sjóða drykkjarvatn vegna gruns um gerlamengun Íbúar í Borgarnesi eru hvattir til að sjóða drykkjarvatn í varúðarskyni. Veitur sendu frá sér tilkynningu í dag þar sem íbúum í Borgarnesi er ráðlagt að sjóða drykkjarvatn í varúðarskyni en verið er að kann mögulega kólígerla í vatni frá Seleyri við Borgarfjörð. Samkvæmt tilkynningunni fær Borgarnes kalt vatn frá þreur veitum er Seleyrarveita eina af þeim. Ekkert bendir til...
LandiðLandsmenn urðu fyrir tjóni vegna rafmagnsleysis í gær: „Það er aldrei ásættanlegt“ Upplýsingafulltrúi Landsnets segir rafmagnsleysið í gær óásættanlegt. Í viðtali við mbl.is greinir Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets frá því að hún hafi heyrt af tjónum vegna rafmagnsleysis sem gerðist í gær en óhapp hjá Norðuráli á Grundartanga varð til þess að rafmagnslaust var á stórum hluta Íslands. Steinunn hvetur fólk til að hafa samband við RARIK ef það telur sig hafa...
LandiðDalrós ungaði út æðafugli og gengur með hann í taumi – MYNDIR Dalrós Líf Richter, sem verður 16 ára í desember, spígsporar daglega um Akranesbæ með hund og æðafugl í bandi. Ungaði hún sjálf út egginu og hefur alið fuglinn upp frá upphafi eða frá 15. júlí á þessu ári. Dalrós og dýrin.Mynd: Hanna Stína Dalrós Líf hefur að sögn fjölskyldu hennar alltaf verið mikil dýra manneskja en hún elskar öll dýr,...
LandiðPrestur mun stjórna Herjólfi – Gott að fá mann sem er í góðum tengslum við almætti Ólafur Jóhann Borgþórsson hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra Herjólfs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Herjólfs. „Eftir mat á umsóknum, viðtöl við umsækjendur og umsagnir aðila hefur stjórn Herjólfs ohf. ákveðið samhljóða að ráða Ólaf Jóhann Borgþórsson í starf framkvæmdastjóra félagsins og mun hann hefja störf 1. janúar nk.“ segir í tilkynningunni. Ólafur er fæddur í Vestmannaeyjum og...
LandiðÖkufantur keyrði á barn – Lögreglan óskar eftir vitnum Lögreglan á Vestfjörðum óskar eftir upplýsingum og hefur sent frá sér tilkynningu sem hægt að lesa hér fyrir neðan. „Föstudaginn 27. september, um klukkan 16:45, var bifreið ekið afturábak úr bifreiðastæði við Hafnarstræti 5 á Ísafirði. Það vildi svo óheppilega til að bifreiðin rakst á barn sem var að ganga yfir gangbraut sem var fyrir aftan bifreiðina. Barnið hlaut ekki...
LandiðAfhentu bæjarstjóra Akureyrar undirskriftarsöfnun: „Sniðganga á Rapyd sendir sterk skilaboð“ Samstöðuhópur afhenti bæjarstjóra Akureyrar undirskriftarsöfnun þar sem skorað er á bæjarstjórn að hætta viðskiptum við fjármálatæknifyrirtækið Rapyd. Þriðjudagsmorguninn 24. september fór hópur einstaklinga sem tilheyra óformlega samstöðuhópnum „Samstaða með Palestínu – Akureyri“ á fund við bæjarstjóra Akureyrar, Ásthildi Sturludóttur. Tilefnið var að afhenda henni undirskriftalista sem einn úr hópnum, Guðjón Magnússon, hafði staðið fyrir í sumar inn á Ísland.is. Undirskriftarlistinn...
LandiðUmboðsmaður Alþingis skiptir sér ekki að bílastæðagjöldum Isavia Umboðsmaður Alþingis telur sig ekki hafa lagaheimild til að skipta sér af gjaldtöku Isavia Innanlandsflugvalla af bílastæðum við Egilsstaðaflugvöll. Nýverið birtist svarbréf á vef Umboðsmanns Alþingis en Austurfrétt sagði frá innihaldinu. Þar kemur fram að í kvörtuninni hafi athugasemdir verði gerðar við lagagrundvöll gjaldtökunnar og að jafnræðis hafi ekki verið gætt við ákvörðun við fyrirkomulag hennar. Þó kemur hvergi fram...
LandiðGáfu Sjúkrahúsinu á Akureyri glæný tæki – Nýtast í fjölda skurðaðgerða Í gær færðu Hollvinir Sjúkrahússins á Akureyri skurðstofum stofnunarinnar formlega tvær spánýjar speglunarstæður sem munu taka við af þeim sem fyrir voru en þær voru komnar til ára sinna. Akureyri.net segir frá málinu en speglunarstæður eru notaðar til að gera ýmiskonar aðgerðir þar sem hægt er að komast af með litla skurði. Samkvæmt upplýsingum frá sjúkrahúsinu veita hinar nýju speglunarstæður...
LandiðStöðvun framkvæmda á Dynjandisheiði mótmælt harðlega: „Við skorum á stjórnvöld að girða sig í brók“ Innviðafélag Vestfjarða lýsir mjög miklum vonbrigðum og furðu yfir fréttum af stöðu framkvæmda á Dynjandisheiði, nú þegar aðeins sjö kílómetra vantar upp á að bundið slitlag verði yfir heiðina alla. Vegagerðin svarar því einu að fjármagn skorti og ekkert verði aðhafst í bili. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Innviðafélaginu. „Innviðafélag Vestfjarða kallar eftir því við Innviðaráðherra sem og þingmenn...
LandiðBifreið stolið á Seyðisfirði – Lögreglan aðeins nokkrar mínútur að leysa málið Aðeins tók það lögregluna á Austurlandi örfáar mínútur að finna bíl sem hafði verið tekinn í óleyfi um hábjartan dag. Austurfrétt segir frá því að klukkan 16:10 á miðvikudaginn í síðustu viku, hafi lögreglunni borist tilkynning um þjófnað á bíl sem horfið hafði á Seyðisfirði. Í bænum var óvenjumikið af lögreglumönnum vegna brottfarar Norrænu en það tók lögregluna einungis fáar...
LandiðFé gerir íbúum Flateyrar lífið leitt: „Alveg til háborinnar skammar“ Fé á Flateyri hefur gert íbúum lífið leitt undanfarnar vikur en ágangsfé hefur skemmt blóm og kirkjugarða. Telja íbúar Flateryar nóg komið og vilja að settar verði upp girðingar og grindarhlið svo hægt sé að halda rollunum fyrir utan bæinn en samkvæmt íbúum þar þarf að reka kindurnar nær daglega út fyrir bæjarmörkin en það skili þó litlu því þær...
LandiðRifist í bæjarstjórn Reykjanesbæjar um gjaldtöku fyrir grindvísk leikskólabörn Minnihlutaflokkarnir í bæjarstjórn Reykjanesbæjar mótmæltu hugmyndum meirihlutans um að rukka fullt verð fyrir leikskólapláss grindvískra leikskólabarna sem voru með skráð lögheimili í Grindavík frá janúar til júní 2024. Á síðasta bæjarstjórnarfundi bókuðu Sjálfstæðisflokkurinn og Umbót um málið en Víkurfréttir sögðu frá málinu. Í bókuninni segir meðal annars: „Í bréfi frá bæjarstjóra Grindavíkur er óskað eftir yfirliti yfir þann útlagðan kostnað...