Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Dalrós ungaði út æðafugli og gengur með hann í taumi – MYNDIR

Dalrós ungaði út æðafugli og gengur með hann í taumi – MYNDIR
Dalrós og co. Mynd: Hanna Stína

Dalrós Líf Richter, sem verður 16 ára í des­em­ber, spíg­sporar dag­lega um Akra­nesbæ með hund og æða­fugl í bandi. Ungaði hún sjálf út egg­inu og hefur alið fugl­inn upp frá upp­hafi eða frá 15. júlí á þessu ári.

Dalrós og dýrin.

Dalrós Líf hefur að sögn fjöl­skyldu hennar alltaf verið mikil dýra mann­eskja en hún elskar öll dýr, stór sem smá. „Og ef manni vantar að vita eitt­hvað um dýr hvort sem það sé teg­unda­heiti á smæstu könguló eða eitt­hvað annað þá spyr maður bara hana,“ segir í skrif­legu svari til Mannlífs. Ætlar stúlkan sér að verða dýra­læknir og byrj­aði í haust á nátt­úru­vís­inda­braut í FVA.

Hundur og æða­fugl er ekki einu dýrin hennar Dalrósar en þau eru um 15 tals­ins. Hún á hænur, hamstur, fiska, mjölorma og ofur­orma. Þá er einnig köttur á heim­il­inu. Æða­fugl­inn, Kappi Dúdu, er ekki fyrsta villta dýrið sem hún hefur verið með en hún hefur einnig fengið haga­mýs hjá ömmu sinni og afa, sem hafa komið inn hjá þeim. „Og ein varð svo gæf hjá henni að hún gekk með hana bara á öxl­inni og í vösum og músin fékk jafn­vel að kúra í hár­inu á henni“.

Dalrós með Kappa og hund­inn.

Dalrós útskýrði hvað varð til þess að hún ól upp Kappa Dúdu í TikTok mynd­bandi. „Ég og fjöl­skyldan fórum að keyra með hund­inn upp að fjöru utan­bæjar og ég veit að æða­vörp koma í bylgjum og ég sá nokkur hreiður og sá að allir ung­arnir í kring nokkuð stálp­aðir og nán­ast full­orðnir. Svo kom ég að hans hreiðri en það voru þrjú egg í því en það eiga að vera þrjú til sex egg í hreiðri. En allir ung­arnir í kring voru svo stálp­aðir að það var óeðli­legt að hann var ekki búinn að klekj­ast út. Já og hans systk­ini í hreiðr­inu, miðað við hvað allir hinir voru orðnir stórir.“ Útskýrir Dalrós að því lengur sem ung­inn er í egg­inu, því meiri áhætta fylgi, rétt eins og þegar barn er of lengi í kvið móður sinnar.

Dalrós ákvað að taka eitt eggið og reyna að klekja það út. Hún var ekki með útung­un­ar­vél en lagði eggið upp að sér til að halda hita á því. „Og hann var í þrjá daga í egg­inu. Ég fór með svona ljós upp að egg­inu og sá að miðað við æðarnar þá var hann þremur dögum of seinn að klekj­ast út. Ungarnir eiga að vera í 28 daga í egg­inu.“ Á degi 29 hafði ung­inn gert litla sprungu í skurn­ina en svo fór að Dalrós varð að hjálpa honum. „Ég þurfti að hjálpa honum pínu með flísa­töng en passa að fara ekki í himn­una því þar eru æðar sem eru tengdar í nafla­streng­inn og við ung­ann sjálfann. En þegar ég sá að nafla­streng­ur­inn var laus gat ég náð honum út án vand­ræða. Og ég var fyrsta dýrið og mann­eskjan sem hann sá, hann klakt­ist út í hend­inni minni.“

Kappi í öllu sínu veldi.

Stuttu síðar kíkti Dalrós aftur í hreiðrið og sá að annað eggið hafði náð að klekj­ast en hitt ekki. Eftir að hún lýsti upp eggið sá hún að það var orðið að fúleggi. Systir hennar tók það var­lega í sundur með flísa­töng, ef ske kynni að það mat væri rangt. Inni í egg­inu var dáinn ungi en himnan var mjög þykk, rétt eins og himnan sem var í eggi Kappa. „Hann hafði ekki kom­ist út, það var ein­hver galli í egg­inu,“ útskýrði Dalrós og hélt áfram: „Himnan á sem sagt að vera eins og kló­sett­pappír sem þú getur stungið í gegnum með tann­stöngli en hans himna var eins og að taka Covid-grímu, brjóta hana í tvennt, pússa niður tann­stöngul­inn og reyna svo að stinga. Hann var bara ekki að kom­ast út. Þannig að hann [Kappi, innsk. blaða­manns] hefði endað sem fúlegg úti í fjöru en er nú bara mann­elskur asni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil