LandiðLeiðsögumaður með fatlaða ferðamenn snéri við hjá Gunnuhver – Aðgengi ekki til staðar Leiðsögumaður með hóp erlendra ferðamanna þurfi frá að hverfa á dögunum er hópurinn ætlaði að skoða Gunnuhver. Í hópnum voru fimm einstaklingar í hjólastól en aðgengi fyrir hjólastóla er ekki til staðar við hverinn. Samkvæmt Víkurfréttum hefur leiðsögumaðurinn ítrekað bent á stöðuna en hann segir lítið hafa lagast og hefur hann því ekki getað sýnt ferðamönnum þennan vinsæla viðkomustað. Þuríður...
LandiðSæþór var enn að vakna er snjóflóð féll á húsið:„Svo komu þessi miklu neyðaröskur af neðri hæðinni“ „Það tók okkur stundarkorn að gera okkur grein fyrir hvað hafði gerst enda vorum við ekki alveg vöknuð en svo heyrðum við bara neyðaröskrin og lætin frá neðri hæðinni strax í kjölfarið,“ sagði Sæþór Sigursteinsson, íbúi í öðru af þeim tveimur fjölbýlishúsum í Neskaupstað sem urðu fyrir snjóflóði snemma í morgun en hann var í viðtali við Austurfrétt. Fram kemur...
LandiðSegja grunnskóla á Austurlandi ekki njóta sanngirnis í Skólahreysti – Vilja undankeppnina austur Grunnskólar á Austurlandi sitja ekki við sama borð og aðrir þegar kemur að Skólahreysti. Þessu halda Ungmennaráð bæði Fjarðabyggðar og Múlaþings fram. Í frétt Austurfréttar kemur fram að Ungmennaráð sveitarfélaganna Fjarðabyggðar og Múlaþings fari fram á það við aðstandendur hinnar vinsælu grunnskólakeppni Skólahreysti, að grunnskólar austanlands fái að njóta sanngirnis þegar kemur að undankeppni keppninnar. Skólahreysti hefst bráðlega en síðustu...
LandiðFlóttafólk frá Úkraínu kynnt fyrir Austurlandi: „Vonandi víkkaði það út þægindarammann!“ Síðustu mánuði hefur Austurbrú á Egilsstöðum haldið úti námsleið sem heitir Landneminn. Námsleiðin er fyrir flóttafólk frá Úkraínu en náminu lauk um daginn með ferðalagi nemana um Austurland. Að sögn Austurfréttar var kennari námsleiðarinnar hin úkraínska Iryna Boiko og fór því kennslan fram á úkraínsku. Þar var kennd samfélagsfræði sem sniðin var að flóttafólki og innflytjendum. Tilgangur Landnemanst var sá...
LandiðFuglaflensuvírusar blandast saman við Íslandsstrendur: „Svo þetta er svolítill hrærigrautur hér“ Ísland er suðurpottur fyrir fuglaflensuna sem herjar ná á Ameríku og Evrópu. Kemur þetta fram í niðurstöðum rannsókna hér við land. Víkurfréttir segir frá því að fuglaflensuvírusar frá Ameríku og Evrópu blandast saman á Íslandi. Náttúrustofa suðvesturlands og þekkingarsetur Suðurnesja, sem aðsetur hafa í Suðurnesjabæ, hafa í samstarfi við bandaríska stofnun, sem sérhæfir sig í slíkum málum, komist að þessari... Myndband
LandiðEkkert Eistnaflug í ár: „Okkar markmið hefur alltaf verið að skemmta ykkur með besta þungarokkinu“ Þungarokkshátíðin Eistnaflug verður ekki haldin í Neskaupsstað þetta árið. Að sögn skipuleggjara markar þetta þó ekki endalok hátíðarinnar. Austurfrétt segir frá tilkynningu sem skipuleggjendur hátíðarinnar sendu frá sér á Facebook í gær. Kemur þar fram að eitt og annað hafi verið reynt til að koma hátíðinni á koppinn í ár en ýmislegt hafi komið í veg fyrir það en flest...
LandiðVilhelm Þorsteinsson með stærsta loðnufarm vertíðarinnar – Búið er að veiða 76 prósent af kvótanum Á Seyðisfirði var stærsti farmur loðnuvertíðarinnar til þessa landað á föstudag er Vilhelrm Þorsteinsson kom með heil 3331 tonn í land. „Verksmiðjan gengur eins vel og kostur er. Við höfum fengið glimrandi gott hráefni allan tímann,“ segir Eggert Ólafur Einarsson, verksmiðjustjóri Síldarvinnslunnar á Seyðisfirð í samtali við Austurfrétt. Þá kom Polar Ammassak einnig til Seyðisfjarðar í gær, með 2008 tonn....
LandiðNýr bæjarstjóri Akraneskaupsstaðar ráðinn: „Ég hlakka til að takast á við verkefnin“ Haraldur Benediktsson hefur verið ráðinn bæjarstjóri Akraneskaupsstaðar, samkvæmt tilkynningu frá Akraneskaupsstað. Skagafréttir sögðu frá því í gær að Haraldur hafi verið ráðinn bæjarstjóri Akraneskaupsstaðar en hann hefur síðastliðinn áratug verið alþingismaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Norð-Vesturkjördæmi. Þar sat hann meðal annars í atvinnuveganefnd, fjárlaganefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Þá var hann stjórnarformaður Orkusjóðs og veitti stjórn Fjarskiptasjóðs formennsku síðustu ár. Að...
LandiðHeimastjórn Seyðisfjarðar vill íbúafund – 75 prósent bæjarbúa eru á móti fiskeldi í firðinum Heimastjórn Seyðisfjarðar vill að forsvarsmenn Ice Fish Farm boði til íbúafundar en fyrirtækið hyggst setja upp töluvert fiskeldi í firðinum, þvert á vilja meirihluta bæjarbúa. Fram kemur í frétt Austurfréttar að heimastjórn Seyðisfjarðar hvetji forsvarsmenn Ice Fish Farm, sem áður hét Fiskeldi Austfjarða, boði til íbúafundar sem allra fyrst, svo heimamenn verði upplýstir um áætlandir fyrirtækisins og stöðu verkefnisins. Þá...
LandiðGeiri kveður eftir 35 ár og býður öllum í kaffi – Gulu ástarpungarnir verða áfram á boðstólum „Ég ætla að leika mér meira í golfi,“ segir Sigurgeir Erlendsson, Geiri bakari, í samtali við Mannlíf. En hann hefur rekið Geirabakarí, í Borgarnesi síðastliðin 35 ár. Nú er komið að leiðarlokum og Geiri sem er 69 ára snýr sér að áhugamálunum. Segist hann ekki eiga von á því að leiðast þar sem hann eigi mörg áhugamál sem hann hafi...
LandiðNýjasta skip íslenska flotans landaði 2000 tonnum á Eskifirði: „Geri aðrir betur segi ég nú bara“ Nýjasta skip íslenska flotans, Margrét EA 70, landaði fyrsta farmi sínum á Eskifirði á sunnudag en það voru 2000 tonn af loðnu. Fram kemur í frétt Austurfréttar að skipið hafi verið smíðað í Noregi árið 2008 en kom hingað til lands frá Skotlandi en þar hét það Christina S. Síðastliðinn miðvikudag kom skipið til Reykjavíkur og í kjölfarið var hafist...
LandiðTveimur ferðamönnum bjargað af Kötlujökli – Annar þeirra hafði örmagnast Tveimur ferðamönnum var bjargað af Kötlujökli í gær. Annar þeirra hafði örmagnast. Seinni partinn í gær, fimmtudag, barst beiðni frá tveimur ferðamönnum sem voru á ferð að eða frá íshelli í Kötlujökli, eftir aðstoð. Hafði annar þeirra örmagnast á göngunni. Feykir hefur eftir tilkynningu frá Landsbjörgu að fólkið hafi verið statt á Vatnsrásarhöfði, rétt norður af Remundargilshöfði en þar liggur...