Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fuglaflensuvírusar blandast saman við Íslandsstrendur: „Svo þetta er svolítill hrærigrautur hér“

Fuglaflensuvírusar blandast saman við Íslandsstrendur: „Svo þetta er svolítill hrærigrautur hér“
Dauð súla Mynd: vf.is

Ísland er suð­ur­pottur fyrir fuglaflens­una sem herjar ná á Ameríku og Evrópu. Kemur þetta fram í nið­ur­stöðum rann­sókna hér við land.

Vík­ur­fréttir segir frá því að fuglaflensu­vírusar frá Ameríku og Evrópu bland­ast saman á Íslandi. Nátt­úru­stofa suð­vest­ur­lands og þekk­ing­ar­setur Suð­ur­nesja, sem aðsetur hafa í Suð­ur­nesjabæ, hafa í sam­starfi við banda­ríska stofnun, sem sér­hæfir sig í slíkum málum, kom­ist að þess­ari nið­ur­stöðu. Frá því snemma á síð­asta ári hefur fuglaflensan lagst þungt á fugla­teg­undir á borð við súl­una við Íslands­strendur.

„Það voru gerðar kann­anir á súl­unni í Eldey og það voru ekki fal­legar myndir sem komu þaðan. Súlunni almennt í Atl­ants­hafi gekk illa og fékk þungt högg. Við vorum að sjá full­orðna ein­stak­linga sem voru að hríð­falla. Þetta var ekki bara ung­viði. Kollegar mínir, sem ég vinn mikið með, og voru að fara í eyjar í Skotlandi, Kanada og Noregi höfðu allir sömu sögu að segja. Það virð­ist sem fuglaflensan herji á þá fugla sem eru í miklum þétt­leika eins og súlan var á þessum tíma. Þær virð­ast vera að lenda illa í því,“ segir Sölvi Rúnar Vign­is­son, fugla­fræð­ingur, í við­tali við Suð­ur­nesjamagasín í síð­ustu viku að því er segir á vef VF.

„Við hér hjá Þekk­ing­ar­setr­inu og Nátt­úru­stof­unni, sem er í sama húsi, stút­eruðum fuglaflens­una og hvernig hún dreifir sér um heim­inn í sam­starfi við banda­ríska stofnun, sem er ein sú stærsta sem sér um þessa hluti. Í sam­starfi við þá komumst við að því að evr­ópskir vírusar og amer­ískir vírusar í þessum fuglum eru að hitt­ast á Íslandi og bland­ast þar. Menn hafa hingað til verið að horfa á Kyrra­hafið og Kyrra­haf­s­leið­ina í gegnum Rússland en í raun er suðu­pott­ur­inn hér. Hér erum við með teg­undir sem verpa í Kanada eða fær­ast á milli. Svo erum við með han­ana okkar sem fara inn í Kyrra­hafið með vet­ur­setu þar, svo þetta er svo­lít­ill hræri­grautur hér og þessir vírusar eru að hitt­ast hérna.“

Hægt er að horfa á frétt VF hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil