LandiðFærði Dalai Lama íslenska dúnsæng: „Þess vegna ákváðum við strax að taka þátt í gjöfinni“ Leiðtogi tíbeskra búddista, Dalai Lama fékk nýlega að gjöf sæng úr æðardúni frá Borgarfirði eystra. Framkvæmdastjóri Íslensks dúns segir það heiður að hafa fengið að taka þátt í gjöf til leiðtogans. „Þetta kom þannig til að Þórhalla Björnsdóttir, sem þekkir til Dalai Lama og stóð að komu hans til Íslands árið 2009, hafði samband við okkur snemma í sumar því...
LandiðFresta refsingu eftir löðrunga – Maðurinn játaði brot sitt og lýsti iðrun Héraðsdómur Austurlands ákvað að fresta ákvörðun refsingar skilorðsbundið yfir karlmanni sem snoppungaði annan mann svo af hlutust meiðsli. Í Austurfrétt segir að atvikið hafi átt sér stað í aprílbyrjun á þessu ári, úti á götu í ónefndum bæ á svæðinu. Sá ákærði sló hinn manninn í andlitið, samkvæmt ákærunni, með flötum lófa og handarbaki þannig að eymsli hlutust af, mar...
LandiðHafna ósk foreldra um aukinn skólaakstur: Börn í sveitinni geta illa stundað íþróttir og tómstundir Foreldrar barna í Eiða- og Hjaltastaðaþinghá fyrir austan, óskuðu eftir því að bætt yrði við skólaakstur svo börnin gætu tekið þátt í íþróttum og tómstundum. Var beiðninni hafnað. Samkvæmt Austurfrétt var þessari beiðni hafnað og var það staðfest á fundi fjölskylduráðs Múlaþings í vikunni en bréf með óskum foreldranna barst sveitarfélaginu í ágústbyrjun. Byggir höfnunin á þeim reglum að skólaakstur...
LandiðSeyðfirðingar fengið sig fullsadda af aldargömlu húsi: „Samræmist engan veginn nútíma kröfum“ Heimastjórn Seyðisfjarðar segir mikla þörf á nýjum skóla á Seyðisfirði. Sá sem nú er notaður er 115 ára gamall. „Heimastjórn áréttar að þörf fyrir nýtt skólahúsnæði á Seyðisfirði er afar aðkallandi því núverandi skólabygging er frá árinu 1907 og samræmist engan veginn nútíma kröfum um skólahúsnæði.“ Þetta kemur fram í fundargerð heimastjórnar Seyðisfjarðar en stjórnin fundaði fyrir helgi en Austurfrétt...
LandiðBæjarstjórn Vestmannaeyja: „Óforsvaranlegt að 4500 íbúa samfélag búi við jafnskertar samgöngur“ Bæjarstjórn Vestmannaeyja ræddi stöðuna í samgöngumálum milli lands og Eyja á nýlegum fundi. Ítrekar stjórnin kröfu sína að ríkið styðji við áætlunarflug til Eyja enda séu samgöngumál í lamasessi milli lands og Eyja. Samkvæmt Eyjafrettir.is var lögð eftirfarandi sameiginleg bókun bæjarstjórnar: „Bæjarstjórn Vestmannaeyja lýsir miklum vonbrigðum með núverandi stöðu samgangna við Eyjar. Öllum er ljóst að Herjólfur III hentar ekki...
LandiðHéraðsskjalasafn biður um hjálp við að leysa ráðgátu: „Uppruni myndarinnar nokkuð á huldu“ Héraðsskjalasafn Austfirðinga leitar upplýsinga um dularfulla ljósmynd sem það festi nýlega kaup á en hún var tekin á Seyðisfirði ár árunum milli 1887 og 1907. Tilurð myndarinnar, hver tók hana og hvenær og hvers vegna er enn sem komið er nokkur ráðgáta að því er fram kemur á Facebook-síðu Stefáns Boga Sveinssonar forstöðumanns Héraðsskjalasafnins en Austurfrétt fjallaði um málið. Í...
Landið„Við sjáum ekki hvernig fjárlögin endurspegla það“ Fram kemur á vefnum bbl.is að framlög til landbúnaðar séu ekki í takti við stefnu ríkisstjórnarinnar. Segir einnig að á meðan ríkisstjórnin stefnir á eflingu landbúnaðarins á Íslandi; fjölga stoðum hans; treysta fæðuöryggi og mæta skuldbindingum í loftslagsmálum; ætlar ríkisstjórnin að lækka fjárframlag í málaflokknum. Gert er ráð fyrir yfir 700 milljóna króna raunlækkun fjárframlaga til landbúnaðarins og stoðþjónustu, í...
LandiðHannaði jólatré úr hreindýrshornum: „Ég hef sett ljós inn í það og þannig er það verulega fallegt“ Jólin nálgast óðfluga, eins og óð fluga myndu einhverjir eflaust segja enda sumir hreinlega að ganga af göflunum í tilhlökkun fyrir þessari fallegu ljósahátíð. Hin ýmsu jólatré hafa síðustu ár litið dagsins ljós í verslunum, stór og smá, rauð og hvít og svört og græn og úr allskyns efnivið enda þykir víst ekki flott að vera hefðbundinn, að minnsta kosti...
LandiðLogandi deilur á Ísafirði – Skipverjar stefna útgerðinni – Nýr eigandi stefnir á yfirráð Þrír fyrrum skipverjar af Júlíusi Geirmundssyni undirbúa málsókn á hendur útgerð og skipstjóra vegna þeirra afleiðinga sem þeir hafa glímt við eftir Covid-smit og veikindi um borð haustið 2020. Þeir glíma enn við eftirköstin og varanlegt heilsutjón. Kjartan Ágúst Pálsson og Bjarki Birgisson eru tveir þessara skipverja. „Það eru sumir dagar þannig að ég ligg bara í rúminu. Ég fór...
LandiðRottugildrur settar upp í Neskaupstað: „Til að vera bæði með belti og axlarbönd“ „Það var tilkynnt um dauða rottu nálægt hafnarsvæðinu í Neskaupstað og við tókum þá ákvörðun að fá meindýraeyði til að setja upp gildrur þar í kring svona til að vera bæði með belti og axlarbönd,“ segir Aron Leví Beck, skipulags- og umhverfisfulltrúi hjá Fjarðabyggð í samtali við Austurfrétt. Talið er líklegt að rottan hafi komið úr erlendu skipi sem nýverið...
LandiðHafró lokar starfsstöð sinni í Ólafsvík – Bauð starfsmanninum að segja sjálfur upp Ákveðið hefur verið að loka starfsstöð Hafrannsóknarstofnunarinnar í Ólafsvík. Starfsmanni stofnunarinnar þar bauðst að segja upp sjálfur. Fram kemur í frétt Skessuhorns að starfsmanni Hafró í Ólafsvík hafi borist bréf um að loka ætti starfsstöðinni frá og með 1. janúar 2023, vegna uppsagnar á samningi um reksturinn. Kemur einnig fram í bréfinu að undirbúningur lokunarinnar sé þegar hafinn. Tekið er...
LandiðHöfuð ljóðskáldsins fundið – Íbúi segist hafa fundið það í runna Hið horfna höfuð ljóðskáldsins Þorsteins Valdimarssonar, sem hvarf af brjóstmynd sinni í Hallormsstaðarskógi í sumar, er fundið og aftur komið í hendur Skógræktarinnar. Fannst höfuðið fyrir einskæra tilviljun í heimahúsi á Egilsstöðum. Í frétt Skógræktarinnar segir að lögreglan hafi verið að sinna öðru verkefni í heimahúsi á Egilsstöðum er þeir tóku eftir höfðinu. Sagðist íbúi í húsinu hafa fundið það...