Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Logandi deilur á Ísafirði – Skipverjar stefna útgerðinni – Nýr eigandi stefnir á yfirráð

Logandi deilur á Ísafirði – Skipverjar stefna útgerðinni – Nýr eigandi stefnir á yfirráð

Þrír fyrrum skip­verjar af Júlíusi Geir­munds­syni und­ir­búa mál­sókn á hendur útgerð og skip­stjóra vegna þeirra afleið­inga sem þeir hafa glímt við eftir Covid-smit og veik­indi um borð haustið 2020. Þeir glíma enn við eft­ir­köstin og var­an­legt heilsutjón.

Kjartan Ágúst Pálsson og Bjarki Birg­is­son eru tveir þess­ara skip­verja. „Það eru sumir dagar þannig að ég ligg bara í rúm­inu. Ég fór á nokkrum dögum úr því að vera í besta formi lífs míns í að verða sjúk­lingur. Ég átti erfitt með ein­föld­ustu hluti og gat varla gengið nema stutta vega­lengd í einu án þess að örmagn­ast. Andlega hefur þetta verið ömur­legt og tekið veru­lega á, það verður bara að við­ur­kenn­ast. Að vissu leyti erum við enn í þessum hel­vítis túr,“ segir Kjartan í sam­tali við Stundina.

Sjá einnig: Frysti­tog­ari kall­aður í land: Stærstur hluti áhafnar smit­aður af Covid

Líkt og Mannlíf greindi fyrst frá var frysti­tog­ar­anum Júlíusi Geir­munds­syni sigld í land eftir að langstærstur hluti áhafn­ar­innar veikt­ist af Covid-19 á mið­unum. Það var hins vegar ekki gert fyrir en þremur vikum síðar þegar skip­verjar voru margir hverjir orðnir hund­veikir og umdæm­is­læknis sótt­varnar á Vestjörðum hafði ítrekað lagt til að tog­ar­anum yrði siglt í land. Þeim til­mælum var ekki sinnt.

Mannlíf greindi líka fyrst frá því að for­svars­menn Hrað­frysti­húss­ins Gunn­varar, sem gerir út togar­ann Júlíus Geir­munds­son ÍS, voru ítrekað hvattir til að halda með skipið í land í Covid-sýna­töku. Þau til­mæli bár­ust frá umdæm­is­lækni sótt­varna á Vest­fjörðum, Súsönnu Björgu Ást­valds­dóttur, meðal ann­ars á þriðja degi túrs­ins, en þau til­mæli voru virt að vettugi.

Sjá einnig: Útgerð frysti­tog­ar­ans hlýddi ekki lækni: Veikum sjó­mönnum haldið úti á sjó

Í hinum fræga Covid-túr tog­ar­ans var 22 veikum sjó­mönnum haldið á sjó, af 25 manna áhorfn frysti­tog­ar­ans, svo vikum skiptir og neyddir til vinnu. ÞAllan túr­inn voru menn að veikj­ast einn og einn. Þá varð útgerðin orðið upp­vís að því að hlýða ekki sótt­varn­ar­lækni sem gaf ítrekuð til­mæli þess efnis að tog­ar­anum yrði stýrt í land svo áhöfnin kæm­ist í sýna­tökur. Það var ekki gert fyrr en þremur vikur eftir brott­för.

Hrað­frysti­húsið Gunnvör sendi frá sér yfir­lýs­ingu þar sem útgerðin við­ur­kenndi að það hefði átt að kalla skipið fyrr til hafnar. Fyr­ir­tækið lét líka í það skína að það hafi verið ákvörðun ann­arra að ekki hafi verið ástæða til að halda með skipið til hafnar snemma í túrnum. Í sam­tali við Mannlífs sagði Súsanna það hins vegar kýr­skýrt að hún hvatti útgerð­ina alveg frá upp­hafi að fara með skip­verja í sýna­töku. Það hafi hún gert ítrekað á meðan túrnum stóð.

„Þetta var ekki mín ákvörðun og þetta hefði getað farið verr.“

„Þetta var ekki mín ákvörðun og þetta hefði getað farið verr. Mín til­mæli hafa verið, og verða alltaf, alveg sama hvar þú ert staddur í heim­inum, að þú eigir að koma í sýna­töku ef þú ert með ein­kenni. Ég get stað­fest að þau sam­skipti áttu sér stað milli mín og útgerð­ar­innar, þar af mjög snemma í túrnum. Tilmæli mín voru mjög ein­föld,“ sagði Súsanna.

Jakob Valgeir ehf, útgerðar- og fisk­vinnslu­fyr­ir­tæki í Bol­ung­ar­vík, er nú orð­inn annar stærsti hlut­hafi Gunn­varar, hinnar frægu Covid-útgerðar. Félagið hefur eign­ast nærri 20 pró­sent hlut í hrað­frysti­hús­inu og voru selj­endur hlut­ar­ins Guð­mundur, Kristinn Þórir, Ólöf Jóna og Steinar Örn Krist­jáns­börn. Bróðir þeirra, Einar Valur, hélt um taumana í hinum fræga Covid-túr Júllans og heldur um þá enn hjá útgerð­inni. Þar starfa um 130 manns. 

„Það er spenn­andi verk­efni að fylgja þessu sögu­fræga fyr­ir­tæki inn í fram­tíð­ina. Rekst­ur­inn hefur gengið vel og ég hlakka til að leggja mitt af mörkum, svo félagið haldi áfram að vaxa og dafna ásamt sam­fé­lag­inu sem það starfar í. Ég hef mikla trú á þess­ari fjár­fest­ingu og fram­tíð félags­ins,“ sagði Jakob Valgeir Flosason fram­kvæmda­stjóri í til­kynn­ingu þegar hlut­ur­inn var orð­inn hans.

Orðið á göt­unni á Ísafirði er að Jakob Valgeir færi ekki af stað í þetta ferða­lag nema til þess eins að ná yfir­ráðum í Hrað­frysti­hús­inu Gunnvör.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil