LandiðVildi spara eldri borgurum sporin – Festi rútuna á bólakaf í svörðinn Ökumaður langferðabíls með erlenda eldri borgara um borð, festi bílinn við hlið styttu Gustav Vigeland af Snorra Sturlusyni í Reykholti. Skessuhorn segir frá því að hópur erlendra ferðalanga hafi verið á ferð um Reykholt í Borgarfirði. Rútubílstjórinn hafi viljað spara ferðalöngunum öldnu sporin að styttunni góðu af Snorra og því keyrt út á gras. Það vildi þó ekki betur til...
LandiðFyrsti rafmagnslögreglubíll landsins tekinn í notkun: „Kjör aðstæður fyrir rafmagnsbíla “ Fyrsti 100% rafknúni lögreglubíllinn er kominn á göturnar í Vestmannaeyjum. Eyjafréttir sögðu frá því í dag að Blue Car Rental ehf og lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum hafi nýverið gert með sér samning um fyrsta 100% rafbílinn á Íslandi sem lögreglan notar í útköll en bíllinn er skráður í neyðarakstur, er merktur og með tilheyrandi búnaði. Um er að ræða tilraunaverkefni af...
LandiðSegja bæjarstjórnina áhugalausa um viðhald á lystigarði: „Hann stendur alls ekki undir nafni“ Bæjarbúar í Neskaupsstað eru margir ósáttir við lítinn áhuga bæjarstjórnar Fjarðabyggðar á að viðhalda eða þróa lystigarðinn í bænum. Garðurinn hefur ávallt verið vinsæll meðal bæjarbúa og þar farið fram afmæli og jafnvel brúðkaupsveislur en nú er bara svo komið að hann stendur alls ekki undir nafni sem lystigarður á nokkurn hátt,“ segir Helga Magnea Steinsson, sem situr í lystigarðsnefnd...
LandiðSólheimajökull hefur hopað um 445 metra frá 2010 Sólheimajökull hefur hopað um tæpa 40 metra á einu ári. Nemendur í 7. bekk Hvolsskóla á Hvolsvelli fóru í síðustu viku í árlega ferð að Sólheimajökli en tilgangurinn var að mæla hann. Björgunarsveitin Dagrenning aðstoðaði krakkana við mælingarnar en eftir hana fékk hópurinn að fara í bátsferð til að skoða lónið betur. Sunnlenska greindi frá. Hópurinn við SólheimajökulMynd: Hvolsskóli Samkvæmt...
LandiðStórbruni á Egilsstöðum – Fólk beðið um að vera ekki fyrir viðbragðsaðilum Gríðarmikill eldur kviknaði í þvottahúsi Vasks á Egilsstöðum fyrir hálftíma síðan. Slökkvilið og aðrir viðbragðsaðilar eru mættir á staðinn. Ekki er talið að fólk sé í hættu. Austurfrétt sagði fyrst frá brunanum en samkvæmt upplýsingum sem miðillinn fékk frá lögreglu leggur mikinn reyk frá staðnum til norðurs. Eru nágrannar beðnir um að loka gluggum og fólk hvatt til að vera...
LandiðTöluvert tjón á álveri Alcoa Fjarðaráls í veðurofsanum: „Við vorum án rafmagns í um tvo tíma“ Ljóst er að töluvert tjón hafi orðið á álveri Alcoa Fjarðaráls við Reyðafjörð í skakveðrinu í fyrradag. Samkvæmt Austurfrétt er ekki enn alveg ljóst hversu miklar skemmdir urðu á byggingum Alcoa Fjarðaráls á Reyðarfirði í bálviðrinu í fyrradag. Enn er áhersla á að koma starfseminni í samt lag eftir rafmagnsleysi. „Það er ljóst að talsvert foktjón varð á álverinu, aðallega...
LandiðMiklar skemmdir á slökkvistöðinni á Reyðarfirði: „Það var vont veður og síðan var fjandinn laus“ Gríðarmiklar skemmdir urður á slökkvistöðinni á Hrauni, við álverslóðina á Reyðarfirði í óverðrinu í gær. Hurðir og og veggplötur hreinlega sprungu af húsinu og ljóst að tjónið er umtalsmikið. Hefur vaktþjónustu verið komið í skjól hjá björgunarsveitinni á Reyðarfirði. „Það sprungu inn hurðir á norðurgafli hússins, þeirri hlið sem vissi upp í vindinn. Síðan fór hluti af veggnum hinu megin,“...
LandiðFundu óþekktar lífverur í Fáskrúðsfirði: „Erum nú að reyna að kanna þær og greina“ Þýskur líffræðingur hefur fundið áður óþekktar lífverur í Fáskrúðsfirði. Marco Thines er þýskur líffræðingur en hann keypti jörðina Neðri-Vík á síðasta ári. Jörðin er utarlega í sunnanverðum Fáskrúðsfirði. Með honum er eiginkona hans, Ichen Tsai sem einnig er líffræðingur og nýdoktornum Anthony Buaya. Austurfrétt tók við hann viðtal og kom þar ýmislegt fróðlegt fram. Á Neðri-Vík áformar Marco og samstarfsaðilar...
LandiðUppsögn skipverjanna á Stefni: „Skýtur skökku við að afhenda uppsagnarbréf að nóttu án aðdraganda“ Fram kemur á fjölmiðlinum bb.is að Verkalýðsfélag Vestfirðinga sé að láta athuga nánar uppsögn áhafnar Stefnis ÍS. Kemur fram, að sögn Finnboga Sveinbjörnssonar formanns Verkalýðsfélagsins, að verið sé að skoða hvort lög um hópuppsagnir eigi við í þessu tilviki; þar er kveðið á um það hvernig eigi að standa að uppsögnum; miðað við fjölda þeirra sem sagt er upp sem...
LandiðFjöldauppsögn áhafnar á Ísafirði – 17 skipverjar Stefnis IS missa vinnuna vegna kvótaniðurskurðar Allri áhöfn skuttogarans Stefnis IS frá Ísafirði, 17 skipverjum á heildina, hefur verið sagt upp störfum. Fjöldauppsögnin var tilkynnt í gærkvöldi og er kvótaniðurskurður ástæðan sem útgerðarfélagið gefur upp. Pétur Birgisson, skipstjóri Stefnis IS, staðfestir uppsagnirnar í samtali við Mannlíf. Að öðru leyti vildi hann lítið tjá sig um þær. „Það er alltaf leiðinlegt þegar svona er. Ég get vel...
LandiðÞrír undir tvítugu grunaðir um sprengjugerð á Selfossi – Ekki krafist gæsluvarðhalds Þrír einstaklingar undir tvítugu eru grunaðir um að búa til og sprengja sprengjur á Selfossi síðustu vikur. Hálfgerður sprengjufaraldur hefur verið á Selfossi undanfarið. Líkt og Mannlíf sagði frá hefur lögreglan fengið tilkynningar um sprengingar á Selfossi undanfarna daga og vikur en síðastliðinn fimmtudagsmorgun var lögreglan með mikinn viðbúnað og götulokanir við Tryggvagötu og Engjaveg eftir að sérkennilegur hlutur fannst...
LandiðEnn og aftur vandræðagangur í innanlandsflugi – Skortur á vélum og tæknileg atriði sögð ástæðan Undanfarnar vikur hefur enn og aftur borið á ítrekaðar seinkanir á flugi innanlands. Upp hafa komið bilanir sem sinna flugina hjá Icelandair. Samkvæmt Austurfrétt er grundvöllur vandræðanna sá að önnur af stærri vélum flugfélagsins hefur ekkert getað flogið síðustu vikur. Samkvæmt Flightradar á hún að fara aftur í áætlun seinni partinn í dag og taka flugið til Egilsstaða í kvöld....