MannlífiðHeimalagað rauðkál með jólamatnum Það klikkar ekki að hafa gott rauðkál á jólaborðinu. Hér kemur uppskrift að dásamlegu rauðkáli sem er tilvalið að bera fram með jólasteikinni.
MannlífiðHátíðarblaðið er komið út: Fjölbreytt innlit og litið yfir farinn veg Hátíðarblaðið er komið út! Við heimsóttum fimm falleg heimili sem eru hvert öðru ólíkara. Íbúð hjónanna Erlu Báru og Egils prýða forsíðuna en húsið stendur við sjóinn í Hafnarfirði. Þau fluttu inn fyrir níu mánuðum síðan og hafa unnið hörðum höndum að endurbótum sem berja má augum í blaðinu. Við kíktum einnig í heimsókn til listakonu á Lindargötu. Hún býr...
MannlífiðDásamlegar hafrasmákökur með súkkulaði Sumir baka ótalmargar sortir fyrir jólin og keppast við að fylla allar áldollur af margvíslegu bökuðu góðgæti á meðan aðrir eiga eina til tvær uppáhaldsuppskriftir sem þykja ómissandi. Hvort sem kökurnar eru bornar fram með stöku mjólkurglasi fyrir börnin eða á fallegum bökkum í kaffiboðinu er eitt víst, jólin væru fátæklegri án þessara ljúfu bita.
MannlífiðSprungnar súkkulaðismákökur með kaffi Jólin verða seint fullkomnuð ef ekki eru smákökur í húsinu, bökunarlyktin ein og sér er til þess fallin að koma flestum í jólaskap í myrkasta skammdeginu.
MannlífiðSkemmtilega ólík borðstofuborð og áhugaverð sæti Hér skoðum við nokkur skemmtileg eldhús, öll ólík. Góður innblástur fyrir þau ykkar sem eru mögulega að fara að breyta til í eldhúsinu.
MannlífiðBestu uppskriftir ársins teknar saman Á morgun kemur í verslanir Gestgjafablaðið Bestu uppskriftirnar 2019. Blaðið er 162 síður og stútfullt af uppskriftum af öllum þeim bestu réttum sem Gestgjafinn reiddi fram á þessu ári í bland við nýjar uppskriftir. Spennandi smáréttir, gómsætir aðalréttir, grænmetisrétti, súpur, salöt, kökur og kokteilar er dæmi um það sem má finna í þessu glæsilega blaði. Í blaðinu er að finna...
Mannlífið„Stærsta og flottasta skötuhlaðborð norðan Alpafjalla“ Grand Hótel Reykjavík heldur alvöru skötuveislu á Þorláksmessu. Veislustjórar verða Jóhannes Kristjánsson og Guðni Ágústsson, eftirherman og orginalinn. Borðhald stendur yfir frá 12:00-14:00. Kæst vestfirsk skata, smáskata, saltfiskur, reykt og nætursöltuð ýsa, skötustappa, plokkfiskur, síld, hnoðmör, kartöflur, rófur, gulrætur, brætt smjör og hamsatólg. Soðkökur, rúgbrauð, laufabrauð og nóg af íslensku smjöri ásamt glæsilegum eftirréttum er dæmi um það sem má...
MannlífiðSlippbarinn besti kokteilabarinn Slippbarinn var valinn besti kokteilabarinn á Íslandi á verðlaunahátíð Bartenders’ Choice Awards um síðustu helgi á Grand Hótel í Stokkhólmi, Svíþjóð. Slippbarinn var valinn besti kokteilabarinn á Íslandi ásamt því að fá viðurkenningu fyrir besta kokteilaseðilinn hér á landi. Fjallkonan fékk viðurkenningu fyrir að vera besti nýi kokteilbarinn. Besti veitingastaðurinn var Matbar og besta andúmsloftið er á Veður samkvæmt niðurstöðu...
MannlífiðJólamarkaður í Listasafni Reykjavíkur Pop Up-verzlun er tíu ára og heldur sinn árlega og vinsæla jólamarkað hönnuða og myndlistamanna í porti Listasafns Reykjavíkur, Hafnarhúsi, laugardaginn 14. desember frá kl. 11-17.
MannlífiðEinfaldleiki, hreinar línur og notagildi Elín Bríta Sigvaldadóttir er vöruhönnuður að mennt sem rekur vefverslunina Lauuf.com. Hún býr ásamt eiginmanni og tveimur sonum á Seltjarnarnesi í húsi sem þau hjónin festu kaup á fyrir ári síðan og hafa verið að taka smám saman í gegn. Eldhúsið hannaði Elín sjálf og setti upp sumarið 2018. Þau höfðu þröngan tímaramma, eða rétt tæpar fjórar vikur, til þess að rífa niður gamla eldhúsið og setja upp nýtt en óhætt er að segja að vel hafi tekist til.
MannlífiðFróðleikur um agúrkur og uppskrift að tzatziki-sósu Agúrkur eru aðallega notaðar ofan á brauð hér á landi eða út í hrásalöt. En einnig er hægt er að mauka þær og blanda saman við jógúrt og kryddjurtir, gera úr þeim súpur, sósur og ídýfur. Vinsæl sósa sem færst hefur í aukana að nota hér á landi er gríska tzatziki-sósan sem þykir létt og góð.
MannlífiðListamennirnir sem við heimsóttum á árinu Hús og híbýli heimsótti vinnustofur margra hæfileikaríkra listamanna á árinu sem er að líða. Það er gaman að rifja upp nokkrar af þessum heimssóknum en þetta er aðeins lítið brot.