Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fróðleikur um agúrkur og uppskrift að tzatziki-sósu

Agúrkur eru aðal­lega not­aðar ofan á brauð hér á landi eða út í hrása­löt. En einnig er hægt er að mauka þær og blanda saman við jógúrt og krydd­jurtir, gera úr þeim súpur, sósur og ídýfur. Vinsæl sósa sem færst hefur í auk­ana að nota hér á landi er gríska tzatziki-sósan sem þykir létt og góð.

Fróðleikur um agúrkur og uppskrift að tzatziki-sósu

Uppruni
Agúrkur eru taldar ætt­aðar frá Indlandi en í Evrópu hafa þær verið rækt­aðar í margar aldir en það sýna rit­aðar heim­ildir, til dæmis er þeirra getið í grískum og róm­verskum heim­ildum. Agúrkur eru í raun­inni ávöxtur eða stórt ber. Þær eru af sömu ætt og melónur, kúr­bítur og grasker. Oftast er talað um tvenns­konar agúrkur, þær löngu hafa þykk­ara skinn en þær minni og eru þessar venju­legu sem við þekkjum. Þær styttri þekkjum við sem asíur eða pikl­aðar gúrkur sem eru ann­að­hvort nið­ur­sneiddar eða hafðar heilar í söltum ediks­legi eða salt­pækli. Agúrkur voru fyrst rækt­aðar á Reykjum í Mos­fells­sveit hér á landi árið 1913 en upp úr 1925 var ræktun þeirra orðið nokkuð algeng.

Nær­ing­ar­gildi
Agúrkur eru taldar koma auknu jafn­vægi á blóð­þrýst­ing og efnin plöntu­steról og pektín hafa sýnt sam­kvæmt rann­sóknum að þau geti hugs­an­lega dregið úr magni kól­ester­óls í blóði. Þær inni­halda fáar hita­ein­ingar en mikið af vatni. Að borða agúrku með hýð­inu gefur bestu nær­ing­una. Stein­efnið sílíkon í agúrkum er gott fyrir hár og neglur. Gúrkur eru mjög vítamín­ríkar. Þær inni­halda flest B-vítamínin, C-vítamín, og K-vítamín, fól­in­sýru, kalk, járn, magnesíum, fos­fór ásamt góðu magni af kopar.

Gúrkutíð
Þegar talað er um ,,gúrku­tíð“ er lítið um að vera í þjóð­fé­lag­inu og fjöl­miðlar hafa úr litlu efni að moða. Orðið er talið eiga rætur að rekja til kaup­manna í Berlín árum áður. En á sama tíma og agúrk­urnar þrosk­uð­ust og voru lagðar í súr síð­sum­ars, stóðu frí sem hæst og minnst að gera í við­skipta­líf­inu. Fóru menn að tengja upp­skeru­tíma agúrkunnar við lægðir í sam­fé­lag­inu og er þetta mál­tæki enn notað í dag.

Agúrku­sa­löt eftir lands­svæðum
Norð­ur­evr­ópsk agúrku­sa­löt eru með ediki og dilli, við Mið­jarð­ar­hafið með ólífu­olíu og ferskri myntu eða óreganó. Norð­ur­a­frísk salöt eru oft með hvít­lauk og dilli og ind­versk með kar­ríkryddum. Mexíkósk með avókadó, chili og kórí­ander. Víða í heim­inum eru þær líka snögg­steiktar og not­aðar í heita rétti.

Ýmsir molar
• Sniðugt er að setja agúrku­sneiðar á húð­ina því það gefur henni raka og róar hana ef það er sviði í henni.
• Einnig er talið gott að skella kældum gúrku­sneiðum á augun til að draga úr bólgum og auka frísk­leika.
• Hún er talin góð til að forð­ast þynnku ef nokkrar sneiðar eru borð­aðar áður en farið er að sofa.
• Hún er góður skyndi­biti ef hung­ur­til­finn­ingin lætur á sér kræla.
• Agúrkur eru fjórða mest rækt­aða græn­metið í heimi og eru þekktar sem ein hollasta fæða sem fyr­ir­finnst.
• Ef skoð­aðar eru tölur um magn þá borðar hver Íslend­ingur um 4-5 kíló af agúrkum árlega.

Það er gott að skella kældum gúrku­sneiðum á augun til að draga úr bólgum.

Tzatziki-sósa

1 agúrka
1 ½ tsk. sjáv­ar­salt
1 sítróna, helst líf­ræn
1 hvít­lauks­rif
hnefa­fylli stein­stelja
hálf hnefa­fylli fersk mynta
400 g grísk jógúrt
2 msk. ólífu­olía
½ tsk. pipar

Saxið agúrk­una, með hýð­inu, smátt eða rífið í gegnum stóru götin á rifjárni. Látið í skál, blandið ½ tsk. af salti saman við og látið standa í 10-15 mín­útur. Rífið 1 msk. af sítrónu­berki fínt, setjið í skál og kreistið safa úr hálfri sítrónu yfir. Saxið hvít­l­auk­inn smátt og bætið saman við sítrónusafann og börk­inn.

Saxið stein­selju og myntu smátt og setjið í skál­ina. Bætið grískri jógúrt, olíu, rest­inni af salt­inu og pip­arnum saman við. Kreistið þá safann úr sölt­uðu agúrkunni og blandið henni saman við. Geymið í kæli þar til borið fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni