MannlífiðHvaðan kemur skógjöfin? Íslensk börn hafa lengi vel haft þann sið að stilla skó sínum í gluggann að kvöldi þegar jólasveinarnir koma til byggða. Hvaðan kemur þessi skemmtilegi siður og hver ætli sagan sé á bak við hann? Samkvæmt haldgóðum heimildum er siðurinn margra alda gamall og tengist sögunni um heilagan Nikulás. Þessi umræddi maður er talinn hafa verið uppi á 3. og...
MannlífiðEr mínimalísk þegar kemur að jólaskreytingum Í gömlu og grónu hverfi í Kópavogi býr Hildur Hafstein ásamt eiginmanni sínum Sigurði Ólafssyni og fjórum sonum þeirra. Í jólablaði Húsa og híbýla er að finna innlit heim til þeirra. Þegar okkur bar að garði var Hildur búin að skreyta. Hún segist vera heldur mínimalísk þegar kemur að jólaskreytingum þótt hún muni seint teljast með mínimalískan stíl. Einnig segir...
MannlífiðEinfaldlega … formkökur Formkökur standa alltaf fyrir sínu. Það er auðvelt að skella í formkökur og hráefnið í þær er þannig að það er iðulega til á heimilinu. Hér eru nokkrar uppskriftir að klassískum og gómsætum formkökum sem tekur stutta stund að hræra í.
MannlífiðSkandinavísk jól í sveitinni Fjarri öllum ys og þys stendur reisulegt sumarhús í sænskum stíl sem hefur yfir sér notalegt yfirbragð. Reykurinn úr strompinum myndar þykka bólstra í frostinu og nýfallinn snjórinn ýtir undir jólastemninguna. Innandyra snarkar í eldinum og kryddaður jólailmur fyllir vitin. Nýhöggvið og hóflega skreytt furutré úr næsta nágrenni stendur í stofunni og pakkarnir eru á sínum stað.
MannlífiðÚr þæfðum hundahárum Ritstjórn Hús og híbýla hefur í gegnum tíðina fengið skapandi fólk til að hanna einhvers konar „jólakúlu“ eða skraut á tré. Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, vöruhönnuður frá Listaháskóla Íslands, notaði vægast sagt óvenjulegt hráefni í sína kúlu.
MannlífiðÖllu tjaldað til fyrir góða veislu Eruð þið búin að ákveða hvernig þið ætlið að leggja á borð á aðfangadagskvöld? Hér eru nokkrar skemmtilegar hugmyndir. 1 2 3 4 5 6 7 Myndir / Ljósmyndarar Birtíngs
Mannlífið„Ég er eins og smákrakki með fiðrildi í maganum“ Eva Ruza er háttvirtur jólaálfur. Þegar hún var lítil fékk hún gjafir frá jólaálfunum og hún elskar jólamatinn hennar mömmu, sérstaklega sveppasúpuna.
MannlífiðFært í rúmið Fátt er yndislegra en að vakna við dýrindis matarilm á morgnanna og enn betra er að fá matinn færðan í rúmið á fallegum bakka af sínum nánustu. Jólin og aðventan eru tíminn til að nostra við sína nánustu, leyfa þeim að sofa út á meðan sparilegur morgunmatur er útbúinn.
MannlífiðÉg hlakka svo til – jólasýning í Ásmundarsal Á morgun kl. 15 opnar í Ásmundarsal jólasýningin Ég hlakka svo til sem er samsýning 150 listamanna en Prent & vinir sjá um sýningastjórn. Sýningin er sölusýning og með henni er verið að endurvekja gamla hefð. Á fimmta áratug síðustu aldar tíðkaðist að halda slíkar sölusýningar í Listvinasalnum en þar sýndu þjóðþekktir listamenn verk sín ásamt yngri og lítt þekktari listamönnum.
MannlífiðLágstemt og kósí í Norræna húsinu Jólaleg og kósí stund verður í Norræna húsinu um helgina fyrir börn og fjölskyldur með upplestri, jólatónlist og veitingum.
MannlífiðÁhugaverður fróðleikur um víntunnur Viðartunnan leit fyrst dagsins ljós hjá Gaulverjum fyrir rúmlega 2000 árum en þá var hún aðallega notuð fyrir mjöð eða öl. Rómverjar, Grikkir og allir sem höfðu þurft að flytja vín á milli staða áður notuðu leirílát, „amfórur“ sem eru að komast aftur í tísku.
MannlífiðOfurfæðan með góðan skammt af vítamínum Egg eru ofurfæða Egg eru fyrirtaks uppspretta B-vítamína sem eru nauðsynleg fyrir margs konar starfsemi líkamans. Egg búa einnig yfir góðum skammti af A-vítamíni sem er mikilvægt fyrir vöxt og þroska. E-vítamínið sem finnst í eggjum er einnig vörn gegn hjartasjúkdómum og sumum tegundum krabbameins. Í eggjum er einnig D-vítamín sem hjálpar til við upptöku steinefna og styrkir bein. Þá...