Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég er eins og smákrakki með fiðrildi í maganum“

Eva Ruza er hátt­virtur jóla­álfur. Þegar hún var lítil fékk hún gjafir frá jóla­álf­unum og hún elskar jólamat­inn hennar mömmu, sér­stak­lega sveppa­súp­una.

„Ég er eins og smákrakki með fiðrildi í maganum“

Hvenær dregur þú fyrsta jóla­skrautið fram úr geymsl­unni?

„Ég dreg þetta allt fram eftir 25. nóv­em­ber, helst ekki miklu fyrr. Ég er samt alveg hrika­lega mikil jóla­kerl­ing og jólafíl­ing­ur­inn steyp­ist yfir mig af fullum krafti ef ég finn ég lykt af ein­hverju sem minnir mig á jólin. Ég segi samt pass við jól­unum alveg fram yfir miðjan nóv­em­ber. En þá set ég líka í fimmta gír og tek þessa hátíð með trompi, ég er eins og smá­krakki með fiðr­ildi í mag­anum.“

Áttu jóla­skraut sem teng­ist góðum minn­ingum og er þér sér­stak­lega kært?

„Elsku pakka­daga­talið sem hékk alltaf heima hjá mömmu og pabba. „Jóla­álfar“ mættu með litla pakka á nótt­unni sem þeir hengdu á það. Það var ekk­ert meira spenn­andi þegar við syst­urnar vorum yngri en að hlaupa niður og grand­skoða pakk­ann sem hafði komið um nótt­ina. Pakkana fengum við svo að opna á aðfanga­dag á meðan mamma og pabbi vösk­uðu upp eftir jólamat­inn. Við vorum reyndar orðnar full­orðnar þegar mamma tók daga­talið niður, lét „jóla­álf­ana“ vita að þeirra væri ekki þörf lengur og afhenti mér fyrir mín börn.“

Hvaða jóla­lag kemur þér í jólafíl­ing?

„Það er eitt­hvað við lagið hans Helga Björns, Ef ég nenni, sem bara hellir yfir mig jól­unum. Ég hækka í botn og góla með. Ég er mjög mikið í því, að syngja hástöfum með.“

Syngur þú yfir þig eða borðar þú yfir þig um jólin?

„Ég er ekki ein af þeim sem borða yfir sig um jólin, en forðið ykkur þegar ég kveiki á vini mínum Michael Bublé og þen radd­böndin. Ég ímynda mér alltaf að ég gæti vel tekið gigg með honum á sviði og sungið dúett. Við tvö, gervi­snjór allt í kring og fullur salur af fólki að hlusta á hug­ljúfa tóna með Michael Bublé og Evu Ruzu. En um leið og ein­hver lækkar í útvarp­inu og ein­ungis röddin mín heyr­ist, að þá deyr sá draumur mjög hratt. Held að Bublé ætti samt að hug­leiða að fá mig með. Þó að það væri ekki nema að kynna hann á svið. Ég mundi alveg sætta mig við það líka.“

„Ég er reyndar þekktur ham­fara­kokkur í fjöl­skyld­unni og fékk þess vegna í upp­hafi ekk­ert val um það hvað ég vildi gera.“

Upp­á­hald­s­jóla­hefðin?

„Þessa hefð bjuggum við syst­urnar til þegar við urðum sjálfar hús­mæður. Á milli jóla og nýárs bjóðum við mömmu og pabba heim til ein­hverrar okkar í humar­veislu. Við gætum næstum því keppt í Masterchéf hjá Gordon Ramsay, svo flott er þetta hjá okkur. Ég sé um humar­súp­una, Debbý sér um hum­ar­inn og Tinna eft­ir­rétt­inn. Við komum sjálfum okkur á óvart á hverju ein­asta ári. Mamma og pabbi fá ekki að lyfta litla fingri. Ég er reyndar þekktur ham­fara­kokkur í fjöl­skyld­unni og fékk þess vegna í upp­hafi ekk­ert val um það hvað ég vildi gera. Mér var úthlutað súp­unni og ég hef svo­leiðis rúllað henni upp að ég er næstum eins og nafna mín, Eva Laufey. En bara næstum því. Höldum því til haga.“

Pip­ar­kökur eða laufa­brauð?

„Þetta er eins og að gera upp á milli barn­anna. Ég skelli þessu bara líka saman í skál með konfekt­inu og smákök­unum og gúffa þessu öllu í mig.“

Hvað er ómissandi á aðfanga­dag?

„Sveppa­súpan hennar mömmu. Hún er next level; eitt­hvert töfra­bragð í henni sem segir mér að jólin séu komin. Að sitja við stofu­borðið hjá mömmu og pabba með alla fjöl­skyld­una, kerta­ljós og mömmu­mat. Held að mamma greyið neyð­ist til að elda að eilífu. Ég meina, ég hef tvisvar eldar ham­borg­ar­hrygg með plast­inu utan um án þess að fatta það. Flug­eldar eða kampa­vín um ára­mótin? Sprengjum árið í burtu með stæl. Það eru mjög sprengjuglaðir karl­menn í fjöl­skyld­unni sem halda flug­elda­sýn­ingu um hver ára­mót við mikla lukku ann­arra í göt­unni. Ég er hins vegar sultu­slök og skála í Sprite í fancy kampa­víns­glasi þar sem ég hef aldrei bragðað áfengi.“

Texti / Sigríður Elín Ásmunds­dóttir
Mynd / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni