Innsævi, menningar- og listahátíð Fjarðabyggðar hefst á laugardaginn
Innsævi, menningar- og listahátíð Fjarðabyggðar hefst næstkomandi laugardag og stendur til 20. júlí. Um er að ræða tvíæring sem skipulagður er af Menningarstofu Fjarðabyggðar en þetta er í þriðja skipti sem hátíðin er haldin. Dagskráin í ár er afar fjölbreytt eins og sjá má á Facebook-síðu hátíðarinnar en nefna má til dæmis ljóðalestur, myndlistasýningar, tónleikar og svo margt, margt fleira...