Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Menning

Ris og fall Krumma

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Föst í ofbeldissambandi: „Klukkutíma síðar rankaði ég við mér á gólfinu sem var þakið blóði“

Ég var ung þegar ég kynnt­ist honum. Reynsla mín af ást­ar­sam­böndum var lítil sem engin, en fátt þráði ég heitar en að vera elskuð, eitt­hvað sem ég upp­lifði ekki í æsku. Við kynnt­umst á bar í miðbæ Reykja­víkur á bjartri sum­arn­óttu. Augu okkar mætt­ust og þá var ekki aftur snúið. Hann var tals­vert ölv­aður, en ég kippti mér lítið upp við það enda var drykkja stór partur af íslensku skemmt­ana­lífi. Við skipt­umst á núm­erum og ákváðum að hitt­ast næsta dag á kaffi­húsi. Upp­á­klæddur í galla­buxum og skyrtu þótti mér hann enn mynd­ar­legri en kvöldið áður. Eftir fyrsta stefnu­mótið vorum við óað­skilj­an­leg. Ég var yfir mig ást­fangin og taldi hann vera það líka. Þegar ég lít til baka sé ég þó að þessi maður var ekki fær um að finna neina ást, í sál hans var ein­tómt hatur. Fyrst um sinn var hann hinn full­komni maki, færði mér kaffi í rúmið alla morgna og blóm á hverjum sunnu­degi. Tveimur mán­uðum eftir fyrstu kynni okkar var ég flutt inn í litlu kjall­ara­í­búð­ina hans, for­eldrum mínum til mik­illar ánægju. Þau höfðu oft talað um að nú væri kom­inn tími til þess að ég flytti að heiman og sæi um mig sjálf. Þau höfðu miklar mætur á nýja sam­býl­is­manni mínum sem lagði sig allan fram við að ganga í augun á þeim. Stuttu eftir flutn­ing­ana komst ég að því að ég var ófrísk. Þrátt fyrir stutt sam­band höfðum við talað með stjörnu­björtum augum um fjöl­skyld­una sem við vildum eign­ast saman. Börnin, hund­inn og húsið.

Ég beið spennt með jákvætt þung­un­ar­prófið í hönd­unum eftir mann­inum mínum sem var á leið heim úr vinnu. Him­in­lif­andi sýndi ég honum nið­ur­stöð­una, það var þá sem hann sló mig fyrst. Mér var svo brugðið að ég með­tók lítið af öskr­unum í honum. Hann vildi vita hvernig ég gat látið þetta ger­ast. Hann rauk út og ég lá eftir á bað­her­berg­is­gólf­inu, ískaldar flís­arnar voru eina merkið um að ekki væri um vondan draum að ræða. Maðurinn sem ég dýrk­aði og dáði hafði gengið í skrokk á mér. Ég var fljót að fyr­ir­gefa honum verkn­að­inn þegar hann kom til baka með rósir og nammi­poka, lof­aði öllu fögru og afsak­aði sig með því að mikið álag væri á honum í vinn­unni. Hann varð þó aldrei aftur sami mað­ur­inn og ég kynnt­ist. Mán­uð­irnir liðu og ófætt barnið okkar stækk­aði. Stundum var hann spenntur að verða faðir, en oft var hann reiður og kenndi mér um þessi örlög. Hann drakk sig fullan marga daga í viku, þá varð hann ofbeld­is­fullur og virt­ist ganga lengra með hverju skipt­inu. Undir lok með­göng­unnar varð hann mér næstum að bana, spark­aði í mig og lamdi ítrekað. Ég öskr­aði og grét, en það hafði ekk­ert að segja. Klukku­tíma síðar rank­aði ég við mér á gólf­inu sem var þakið blóði. Andlit mitt var óþekkj­an­legt í spegl­inum, bólgið og marið. Ég lædd­ist fram þar sem mað­ur­inn minn svaf værum svefni með bjór­dós­irnar allt í kringum sig. Ófætt barnið okkar spark­aði af krafti og ég and­aði léttar. Ef ég færi á sjúkra­hús yrði hann æfur, eng­inn mátti vita af ofbeld­inu. Ég skreið því upp í rúm, grét og lof­aði litla barn­inu mínu að koma okkur í burtu frá þessum manni.

Daginn eftir lék hann sama leik­rit og vana­lega. Blóm og morg­un­matur í rúmið ásamt örvænt­ing­ar­fullum lof­orðum og afsök­un­ar­beiðnum. Mér brá þegar hann sagð­ist ætla í með­ferð. Aldrei hafði mér dottið til hugar að mað­ur­inn myndi nokkurn tím­ann hætta að drekka. Kannski var það áfengið sem gerði hann að þessu skrímsli? Ég gat ekki gef­ist upp ef hann yrði aftur að mann­inum sem hann var í upp­hafi sam­bands­ins, mann­inum sem ég elskaði svo heitt. Viku síðar var hann kom­inn inn á Vog og sama dag fór ég af stað í fæð­ingu og átti dóttur okkar. Allt virt­ist ganga á besta veg. Við töl­uðum dag­lega saman í síma og hann dembdi yfir mig ást­ar­orðum og lof­orðum. Eftir mánuð í með­ferð kom mað­ur­inn minn heim. Í fyrstu sýndi hann dóttur sinni mik­inn áhuga, en með hverjum deg­inum dvín­aði áhug­inn. Loks fór hann aftur að drekka og lýsti andúð sinni á mér og dóttur okkar. Það leið ekki að löngu þar til að hann gekk í skrokk á mér aftur. Örvænt­ingin greip mig, ég vissi að ég gæti ekki boðið dóttur minni upp á þetta. Ekki hafði ég þó minnstu hug­mynd um hvert ég gæti farið. Ég átti í engin önnur hús að venda og átti ekki krónu. Maðurinn minn skammt­aði mér vasa­pen­ing, honum þótti ég of eyðslu­söm og sagði að ekki væri hægt að treysta mér fyrir pen­ingum. Þegar ég var í þann mund að sætta mig við hræði­leg örlög mín fékk ég skila­boð á Facebook og hjartað í mér sökk. Send­and­inn var ung kona, hún virt­ist illa farin á myndum. Hún tjáði mér að hún hefði átt í kyn­ferð­is­legu sam­bandi við mann­inn minn á Vogi, nýlega hefði hún greinst með kyn­sjúk­dóm og bæri skylda til þess að láta ból­fé­laga sína vita. Maðurinn minn hafði alla tíð verið lítið á sam­fé­lags­miðlum og konan fann enga leið til þess að ná í hann. Ég starði stjörf á tölvu­skjá­inn og las skila­boðin aftur og aftur. Ég spurði kon­una hvernig hún vissi af mér og hún tjáði mér að mað­ur­inn minn hefði talað mikið um mig á Vogi, sýnt sam­sjúk­lingum myndir af mér og dóttur okkar á milli þess sem hann lædd­ist inn í her­bergi með hinum ýmsu konum. Ég gat ekki lengur kennt áfeng­inu um kvik­ind­is­skap­inn.

Það var þennan dag sem ég pakk­aði nauð­synjum niður í tösku fyrir mig og dóttur mína og hélt beina leið í Kvenna­at­hvarfið. Stuttu síðar greind­ist ég með tvo kyn­sjúk­dóma. Ég byggði mér hægt og rólega upp nýtt líf og dóttir mín hefur ekki séð né heyrt frá föður sínum síðan. Nú tíu árum síðar birt­ist hann enn reglu­lega í lífi mínu með skila­boðum á sam­fé­lags­miðlum, þrátt fyrir nálg­un­ar­bann. Hann mun þó aldrei fá tæki­færi til að meiða mig aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Ámundi Loftsson segir hreinlæti sundlaugagesta hafa versnað og kallar eftir auknu eftirliti og skýrari reglum á sundstöðum.
Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Ung­lingur stakk mann í síð­una og réðst á annan með járn­röri

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum