SlúðurSólveig Anna situr á gulli Bylting Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, er um það bil að verða fullframin ef hún og Ragnar Þór Pétursson, formaður VR, komast í æðstu forystusveit Alþýðusambands Íslands. Sólveig Anna býðst til að verða annar varaforseti við hlið Ragnars Þórs og leiða samtökin sem hún hefur talið vera á villigötum. Í raun eru þau, ásamt Vilhjálmi Birgissyni, verkalýðsleiðtoga á Akranesi, að...
SlúðurAlvarleg mistök Katrínar Vaxandi áhyggjur eru innan Vinstrí Grænna vegna fylgishruns sem birtist í seinustu kosningum og seinna í skoðanakönnunum. VG, undir forystu Katrínar Jakobsdóttur, tapaði næstum því þriðja hverjum kjósanda og hlaut afhroð í kosningunum á meðan Sjálfstæðisflokkurinn hélt sínu og Framsókn vann stórsigur. Það varð til þess að flokkurinn missti stöðu sína í ríkisstjórn og voru flestar skrautfjaðrirnar hirtar af þeim....
SlúðurGuðlaugur útilokaður Flestum þykir orðið ljóst að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, verði endurkjörinn án mótframboðs á landsfundi í nóvember og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir verði áfram varaformaður. Engum hefur dulist að Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra er í ónáð Bjarna og óbeitin er gagnkvæm. Guðlaugur á sér þann vota draum að verða formaður en Bjarni og hans nánasta fylgisfólk má ekki til þess...
Slúður„Pabbi hans, Benedikt, verður greiðandi“ Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra fær á baukinn í Fréttablaðinu í dag. Karl Th. Birgisson, blaðamaður og samfélagsrýnir, rifjar upp brask Bjarna á útrásarárunum og líkir braski hans með afleiðusamninga við atferli spilafíkils: „Hann tapaði alltaf, en hélt áfram að veðja eins og fíkill í spilakassa hjá Rauða krossinum. Á endanum var tapið hátt í fjörutíu milljónir, en eins og sagði í...
SlúðurSamherjar í stríði á Akureyri Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, á ekki sjö dagana sæla. Uppnám er í flokknum á Akureyri eftir að þrjár konur í forystusveit hans sökuðu oddvita flokksins, Brynjólf Ingvarsson og Jón Hjaltason varabæjarfulltrúa um andlegt ofbeldi og kynferðislega áreitni. Ein kvennanna, Málfríður Þórðardóttur, varamaður Brynjólfs, mun hafa yfirgefið fund, þar sem leita átti sátta, grátandi af óljósum ástæðum. Eftir því sem...
SlúðurAlfreð Steinar skipstjóri varð kennari í Namibíu: – Maður með skammbyssu rændi skipi hans Alfreð Steinar Rafnsson á að baki ævintýralegan feril sem skipstjóri á togurum og sem kennari í Sjómannaskólanum í Namibíu. Hann segir sögu sína í Sjóranum þessu sinni. Tilviljun réði því að hann varð skipstjóri á togaranum Hvalbak, þrítugur að aldri. Hann gerði út verksmiðjutogara frá Litháen og mokfiskaði. Svo endaði ævintýrið með ósköpum þegar flaggskipstjóri með skammbyssu að vopni tók...
SlúðurBenedikt kallar sjómenn sóða Einn af hvassari blaðamönnum landisins er Benedikt Bóas Hinriksson á Fréttablaðinu. Benedikt lætur hiklaust vaða það sem flýgur um huga hverju sinni og kemur gjarnan við kaunin á þolendum. Í ritstjórnardálki blaðsins í dag gerir hann sjómenn að umtalsefni og kallar þá subbulega. Tilefni skrifanna er rannsókn sem snúr að rusli á hafsbotni. Benedikt kemst að þeirri niðurstöðu að „sjómenn...
SlúðurBjarni bíður örlaga sinna Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, bíður þess nú að skýrsla um framgöngu hans við söluna á bréfunum í Íslandsbanka verði opinberuð. Fjármálaráðherra var harðlega gagnrýndur fyrir söluna sem fór þannig fram að handvaldir voru kaupendur sem fengu bréf á afsláttarverði. Meðal þeirra sem sluppu í gegnum nálaraugað og fékk að kaupa var faðir Bjarna, auðmaðurinn og Engeyingurinn Benedikt Sveinsson....
SlúðurSólveig móðgar útlendinga Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er örugglega stríðsglaðasti verkalýðsforingi landsins. Hún hilar ekki við að berjast við alla þá sem sneiða að henni með einhverjum hætti. Nýjast stríðið er við Eirík Rögnvaldsson, prófesssor í málfræði, sem setti fram með hófstilltum hætti að eðlilegt væri að atvinnurekendur kostuðu námskeið í íslensku fyrir erlent verkafólk. Sólveig brást illa við í fjölmiðlum og...
SlúðurEngin óregla á Jóhannesi Samherjamenn undir forystu Þorsteins Más Baldvinssonar forstjóra hafa verið ötulir við að halda því á lofti að Jóhannes Stefánsson uppljóstrari sé ekki marktækur þar sem hann hafi verið óreglumaður þegar hann starfaði fyrir félagið í Namibíu. Hann hafi notað kókaín og aðra vímugjafa og þannig verið með skerta dómgreind. Í Stundinni kemur fram að einn aðalsakborninganna í Samherjamálinu í Namibíu,...
SlúðurIllska Agnesar Furðuleg uppákoma var í kringum Hveragerðiskirkju þegar bón ættingja látinnar sómakonu um að séra Gunnar Björnsson myndi jarðsyngja hana var miskunnalaust hafnað. Engin skýring hefur fengist frá Agnesi Sigurðardóttur biskupi um það hvers vegna prestinum var úthýst. Biskupinn lét yfirmann fasteigna Þjóðkirkjunnar svara fyrir gjörninginn. Sá útskýrði málið þannig viku eftir jarðarförina að séra Gunnar væri ekki „í þjónustu“. Erfitt...
SlúðurLögreglan sögð hlera Þóru Mál Páls Steingrímssonar, skipstjóra og skæruliða Samherja, tekur á sig hinar ólíklegustu myndir. Páll var rændur síma sínum á sjúkrabeði og upplýsingar sem sýndu skipulagða rógsherferð Samherjamanna á hendur Helga Seljan fréttamanni og fleirum litu dagsins ljós. Í meðförum Páleyjar Borgþórsdóttur, lögreglustjóra á Akureyri, hefur málið þróast í þá veru að rannsaka hvorti fjölmiðlafólk undir forystu Þóru Arnórsdóttur, ritstjóra Kveiks,...