SlúðurVilhjálmi misboðið vegna sóttvarna Sjálfstæðismenn eru margir hverjir sjóðandi reiðir vegna þeirra frelsissviptinga sem fylgja sóttvörnum í nýjustu bylgju Covid. Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lýsti í morgun skoðun sinni á minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sem felur í sér tillögur um gríðarlegar aðgerðir í að loka fólk af. Jafnframt boðaði Vilhjálmur að fleiri úr hópi Sjálfstæðismanna myndu rísa gegn ofstjórnuninni ef Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fellst...
SlúðurBubbi skammar Baggalút Tónleikar Baggalúts um helgina þóttu vera fremur hömlulitlir ef litið er til sóttvarna. Drykkja var áberandi og eitthvað mun hafa verið um það að gestir væru að þvælast á milli sóttvarnahólfa. Talið er hugsanlegt að tónleikahaldarararnir verði sektaðir fyrir brot á sóttvarnalögum. Bubbi Morthens er þrautreyndur þar sem kemur að tónleikahaldi. Hann var að sjá fjúkandi reiður á Facebook þar...
SlúðurGrár húmor Þorgerðar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, glímir við covid eins og þingflokkur hennar sem verður að teljast afskaplega seinheppinn. Þorgerður er brött þrátt fyrir smitið og var í viðtali á Bylgjunni þar sem hún bar sig vel og sagðist halda jólin fjarri fjölskyldu sinni. Hún sagðist vera með væg einkenni. Svo kom þessi furðulega yfirlýsing að veikindi hennar og einangrun kynnnu...
SlúðurFlóttaleið Bjarna Flestir telja augljóst að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sé að undirbúa það að hverfa úr pólitík. Bjarni hefur náð að tala sig frá því að fylgið er skammarlega lítið, ef miðað er við fortíð flokksins. Litlar líkur eru á því að Bjarna takist að lyfta fylginu í að verða eins og áður. Þá er hvergi pólitískur vilji til að gera...
SlúðurHreini leist ekki á blikuna Það vakti athygli í gær þegar Hreinn Loftsson hæstréttarlögmaður gaf út yfirlýsingu um að hann væri hættur sem aðstoðarmaður Jóns Gunnarsonar bráðabirgðaráðherra sem fer með dómsmál næstu 18 mánuði. Skömmu eftir að Hreinn var ráðinn áfram var Brynjar Níelsson, fallinn þingmaður, kallaður til verka sem annar aðstoðarmaður. Bææi skipun Jóns í embætti og ráðningu Brynjars hefur verið mótmælt kröftuglega af...
SlúðurÓdrepandi Óli Björn Óli Björn Kárason, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, er ódrepandi í þeirri viðleitni sinni að koma böndum á Ríkisútvarpið. Hann hefur nú, enn og aftur, lagt fram frumvarp um að báknið verði tekið af auglýsingamarkaði. Forysta Sjálfstæðisflokksins er ekki samstíga Óla Birni í þessu máli. Prinsipplaus lokkurinn, sem kennir sig við einkaframtak, hefur staðið vörð um ríkisfjölmiðilinn og gert er ráð fyrir að...
SlúðurMarkaðsdjöflar vilja ekki Ísak Vigdís Grímsdóttir rithöfundur er með sterka réttlætisvitund og gott hjartalag. Hún tekur upp þykkjuna fyrir ljóðskáldið Ísak Harðarson sem hún segir að markaðurinn vilji ekkert með hafa. Hún segir Ísak vera eitt allra besta núlífandi ljóðskáld Íslendinga. „Samt mætir ekki nokkur maður á upplestur hans á Stokkseyri, upplestur sem var vel undirbúinn og telst til tíðinda – því Ísak les...
SlúðurKlofið um Áslaugu og Guðlaug Það blasir við að borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins er klofinn eftir að Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi skoraði leiðtoga sinn, Eyþór Arnalds, á hólm og vill verða borgarstjóri. Eyþór hefur marga hildina háð og verið fremur sigursæll á sínum ferli. Ekki er þó víst að hann standi af sér atlöguna að þessu sinni. Fylkingarnar sem takast á að þessu sinni eru kenndar við oddvitana...
SlúðurFinnbogi líka þjófkenndur Ritþjófamál Bergsveins Birgissonar heldur enn áfram að vefja upp á sig. Eftir að Bergsveinn sakaði Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóra að aðalstarfi, um að ræna frá sér hugmyndum í bókinni Eyjan hans Ingólfs þá steig Finnbogi Hermannsson, rithöfundur og útvarpsmaður, fram og sagði Bergsvein líklega hafa tekið ófrjálsri hendi efni úr bók sinni, Einræður Steinólfs, og notað sem sinn eigin texta. Deilunn...
SlúðurSlök vinnubrögð Baltasars Nýjasta serían af Ófærð var ekki að slá í gegn hjá þjóðinni eins og sú fyrsta. Margir höfðu allt á hornum sér varðandi þættina sem komu úr smiðju Baltasars Kormáks. Leiklistargagnrýnandinn hvassi, Jón Viðar Jónsson, hætti að horfa eftir fyrsta þátt og hafði fengið nóg. Þá lýsti Gísli Ásgeirsson þýðandi því yfir að þeir hafi verið leiðinlegir. Hermt er að...
SlúðurBergsveinn líka þjófkenndur Ásakanir Bergsveins Birgissonar rithöfundar á hendur Ásgeiri Jónssyni, rithöfundi og seðlabankastjóra, hafa vakið þjóðarathygli. Bergsveinn fullyrðir að Ásgeir hafi nýtt sér efni úr Leitin að Svarta víkingnum og gert að sínu í bókinni Eyjan hans Ingólfs. En nú er komið babb í bát Bergsveins. Finnbogi Hermannsson, rithöfundur og útvarpsmaður, upplýsir í Mogganum að Bergsveinn hafi að líkindum gerst sjálfur ritþjófur...
SlúðurÁsgeir á jarðsprengjusvæði Staða Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra vegna meints ritþjófnaðar hans er grafalvarleg. Um er að ræða bók Ásgeirs, Eyjan hans Ingólfs sem Bergsveinn Birgisson rithöfundur telur að sé að nokkru leyti byggð á bók sinni, Svarta víkingnum. Bergsveinn kærði málið til Siðanefndar Háskóla Íslands sem tekur það fyrir eftir helgi. Fréttablaðið segir frá því að frestað var fyrirlestri Ásgeirs um efnahagsmál á...