SlúðurÞurfalingur skammar Sólveigu Davíð Oddssyni, ritstjóra Morgunblaðsins, er mikið niðri fyrir í dag vegna brotthvarfs Sólveigar Önnu Jónsdóttur. Þurfalingurinnn Davíð, sem hefur um árabil verið með fjölmiðil sinn á framfæri ekkju í Vestmannaeyjum, telur að Íslendingar þurfi alls ekkert á sósíalisma að halda. „Sósíalismanum hefur alla tíð fylgt mannfyrirlitning. Einstaklingurinn skiptir engu máli, aðeins óskilgreindur fjöldinn,“ skrifar Davíð sem bendlar Sólveigu Önnu við...
SlúðurÁsthildur í vanda vegna kattahaturs Akureyringar eru þessa dagana úthrópaðir fyrir þá mannvonsku bæjarstjórnar að ætla að útrýma útiköttum á næstu árum. Skáldið Ólafur Haukur Símonarson rifjar upp að þessu tilefni að Flosi Ólafsson leikari sagði á sínum tíma að Akureyringar væri til mikillar fyrirmyndar á meðan þeir svæfu. Í vöku ættu þeir hins vegar til ýmsar skrítnar kenjar. Ólafur Hukur, sem er þekktur sem...
Slúður„Veislustjóri Öfga“ Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaðurinn góðkunni, hefur verið nokkuð á milli tanna fólks vegna sýnilegrar afstöðu sinnar til leynihers Öfga og fleiri þeirra sem leggja fyrir sig nafnlausar birtingar meintra þolenda á nöfnum karla sem sakaðir eru um að hafa farið yfir mörk kvenna. Mörgum er ógleymdanlegt þegar Gísli var með viðtal við þá umdeildu Eddu Falak sem réttlætir þessa aðferð...
SlúðurFormaður á harðahlaupum Upplausnarástand ríkir innan Eflingar eftir að Sólveig Anna Jónsdóttir, sagði af sér sem frmaður, skellti hurðum og hvarf á braut. Í gær var ákveðið á stjórnarfundi að Agnieszka Ewa Ziólkowska varaformaður tæki við keflinu. Eftir stjórnarfundinn tók nýi formaðurinn á sprett ásamt stjórninni og lagði á flótta undan fjölmiðlum. Viðbrögðin sæta furðu og þykja sýna að félagið er í lamasessi...
SlúðurFleiri typpamyndir Þóris Þórir Sæmundsson leikari fer ekki vel út úr viðtalinu við Kveik þar sem harmasaga hans var rakin. Þórir hefur gengið svipugöngin undanfarin fjögur ár eftir að hann varð uppvís að því að senda 15 ára stúlkum typpamyndir af sér. Hann nefndi í furðulegu og einhliða viðtali við Þóru Arnórsdóttur, ritstjóra Kveiks, að þetta væri ástæða þess að hann var rekinn...
SlúðurÞóra og harmsaga Þóris Fréttaskýringaþátturinn Kveikur í Ríkisútvarpinu þótti fara illa á hliðina í gærkvöld þegar einhliða frásögn Þóris Sæmundssonar leikara var eina efni þáttarins. Það var Þóra Arnórsdóttir ritstjóri sem saumaði saman fjögurra vasaklúta frásögn Þórs svo úr varð mikil harmsaga sem hefði getað sómt sér á síðum Vikunnar. Málið snýst um sniðgöngu vegna þess að leikarinn hafði sent 15 ára stúlkum typpamynd...
SlúðurHrafn yfirgefur Facebook Hugsjónamaðurinn Hrafn Jökulsson hefur lýst yfr brotthvarfi sínu af Facebook. Hann tilmkynnti þetta í seinustu viku og sagði að eftir afmælið sitt myndi hann hverfa af samfélagsmiðlinum og snúa sér að öðru. Hann hafði áður biðlað til vina og velunnara um styrk til að ferðast til Afríku, Grænlands og víðar til að leggja þar góðum málefnum lið. Hrafn hefur unnið...
SlúðurÁfall og léttir vegna Sólveigar Margir urðu fyrir áfalli þegar greint var frá því á Mannlífi í gærkvöld að Sólveig Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefði sagt af sér vegna yfirlýsingar starfsfólks félagsins um brot hennar á kjarasamningum í samskiptum við starfsfólk félagsins. Sólveig hefur staðið í framlínu íslensks verkafólks og barist með oddi og egg fyrir réttindum þess. Mörgum hefur þótt hún vera of árásarhneigð í...
SlúðurÁslaug beðin afsökunar Steini pípari er áberandi karakter á síðunni eirikurjonsson.is. Hann sendir gjarnan skeyti um eitt og annað. Nýverið hundskammaði hann Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra fyrir kosningaklúðrið í Norðvesturkjördæmi sem hann taldi hana ábyrga fyrir. En svo kom á daginn að hún hafði ekkert með málið að gera og kjörstjórnir heyra ekki undir hana. Steini pípari brást umsvifalaust við og bað ráðherrann...
SlúðurSigurður Ingi brattur Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, svífur um á bleiku skýi eftir að kjósendur flykktust að baki Framsóknarflokknum og færðu honum stórsigur á silfurfati. Sigurður Ingi var troðfullur sjálfstrausts í Kastljósi Ríkisútvarpsins. Svör hans um gang í stjórnarmyndunarviðræðum voru loðin og hlykkjótt. En þegar hann var spurður um þann vilja Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis að taka upp harðari samkomutakmarkanir var hann mjög...
SlúðurGuðrún Dís pakkar Sjónvarpskonan ástsæla, Guðrún Dís Emilsdóttir, er sögð vera á förum frá Húsavík og byrjuð að pakka niður. Hún var um árabil vinsæl útvarpskona, ásamt Andra Frey Viðarssyni, og átti sterka innkomu í sjónvarpi. Margir binda vonir við að vistaskiptin séu til marks endurkomu hennar í fjölmiðla. Undanfarin ár hefur hún gert hlé á ferli sínum og einbeitt sér að því...
SlúðurÍsmaður í sóttkví Sigurður Pétursson skipstjóri á Grænlandi er á Íslandi eins og oft áður. Heimsóknin er þó með öðrum brag en oft áður því hann er innilokaður í sóttkví í viku vegna Covid. Ísmaðurinn, eins og kann kallast jafnan, er þekktur fyrir að vera harðjaxl og berjast af höru við hafís og önnur náttúruöfl. Hann komst meðal annars í heimsfréttir fyrir að...