SlúðurPrúðmennið og skrattakollurinn Stefán Hrafn Hagalín, upplýsingafulltrúi Landsspítalans, skaut sig í fótinn með tölvupósti sem hann sendi á fjölmarga stjórnendur Landsspítalans með hvatningu um að svara ekki símhringingum frá fjölmiðlum. Stefán Hrafn, sem er sjálfur fyrrveradi fjölmiðlamaður, kallaði sína gömlu félaga „skrattakolla“ í póstinum. Þetta hleypti illu blóði í Stefán Einar Stefánsson, þann umdeilda blaðamann Moggans, sem rantaði á Facebook-síðu sinni um framferði...
SlúðurBoga fannst gott að vera rekinn Sá dáði sjónvarpsmaður, Bogi Ágústsson, hefur allan sinn starfsferil verið í skjóli Ríkisútvarpsins. Hann komst í þær álnir um tíma að verða sviðsstjóri fréttasviðs en þótti ekki nýtast sem skyldi því Páll Magnússon, þáverandi útvarpsstjóri, rak hann úr þeirri stöðu. Bogi gerir málið upp í viðtali við Morgunblaðið og lítur glaður um öxl og þakkar hinum umdeilda útvarpsstjóra. „… Þá...
SlúðurGísli Marteinn snýr aftur Það gladdi marga þegar fjölmiðlafólkið Gísli Marteinn Baldursson og Björg Magnúsdóttir dúkkuðu upp á Rás 2 um Verslunarmannahelgina. Útvarpsparið naut mikilla vindælda með þátt sinn á laugardagsmorgnum. Af óskiljanlegum ástæðum var þátturinn sleginn af og ofurparið þagnaði. En nú hafa vonir vaknað um að Stefán Eiríksson útvarpsstjóri og undirsátar hans hafi séð ljósið og muni ráða þau aftur til að...
SlúðurÖrvænting Ingu Sæland Mikill kosningaskjálfti er innan Flokks fólksins sem mælist við þau mörk að ná ekki inn á þing. Sú ógn sem helst steðjar að Ingu Sæland og félaga er að Sósíalistar undir handleiðslu Gunnars Smára Egilssonar eru að sópa að sér þungavigtarfólki og róa á mið hinna fátæku líkt og Flokkur fólksins. Svar Ingu er að auglýsa út í eitt á...
SlúðurBirgitta hoppar inn í stjórnmálin Sósíalistaflokki Gunnars Smára Egilssonar vex stöðugt fiskur um hrygg. Hver kanónan af annarri raðar sér í fylkingu flokksins. Skemmst er að minnast að Þór Saari, fyrrverandi þingmaður Borgaraflokksins, gerði hlé á eyðimerkurgöngu sinni og tók annað sæti á lista flokksins í Kraganum. Væntingar standa til þess að Sólveig Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Ragnar Þór Jónsson, formaður VR, taki líka slaginn...
SlúðurHrollvekja Áslaugar Örnu Innan Sjálfstæðisflokksins gætir nokkurs kvíða vegna framvindunni í fjórðu bylgju Covid. Víst þykir að flokkurinn muni gjalda fyrir það í kosningum ef allt fer á verri veg en komið er. Sú hrollvekja yrði skrifuð á Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra sem hefur markað sín spor sem baráttumaður fyrir opnun landsins á Covid-tímum. Þá greip hún erftirminnilega inn í mál Bjarna Benediktssonar...
SlúðurVeðurguð varnarlaus í mótvindi Það blæs ekki byrlega fyrir Ingólfi Þórarinssyni veðurguði. Hann og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður hafa slitið samstarfi sínu um að lögsækja þá sem sakað hafa Ingólf um kynferðisbrot. Vísir segir frá þessu. Vilhjálmur hefur fram að þessu verið einstaklega átakasækinn í málum sem snúa að fjölmiðlum en ekkert sérstaklega sigursæll og haft gott upp úr þeim, sama hvernig fór. Þessi...
SlúðurFramsókn í vondum málum Það eru dimmir dagar hjá Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni Framsóknarflokksins, nú þegar flokkur hans er kominn undiir 10 prósenta fylgi samkvæmt nýjustu könnunum Maskínu. Flokkurinn virðist þurfa að gjalda fyrir skipbrot ríkisstjórnarinnar í sóttvarnamálum. Aðeins örfáum vikum eftir gríðarlegar afléttingar er allt komið í steik og metfjöldi smitaður á áður smitlítilli eyjunni. Lengi var talið að Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra og...
SlúðurSigmundur Davíð daufur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, er með daufasta móti þessa dagana. Formaðurinn er þekktur fyrir að vera galvaskur, ósvífinn og kjaftfor en nú fer hann með veggjum í pólitíkinni. Nærtækt er að ætla að það snúist um lélega útkomu Miðflokksins í skoðanakönnunum sem er stutt frá útrýmingu. Sjálfur er Sigmundur talinn verða uppbótarþingmaður í höfuðvígi sínu, Norðausturkjördæmi. Ofan á allt...
SlúðurKári vill ekkert kjaftæði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, tekur ekki undir með þeim sem saka ríkisstjórnina um að hafa brugðist þjóðinni með því að opna landið og hleypa faraldrinum á fulla ferð. Hann segir að í sóttvörnum að þessari gerð verði að breyta stefnunni frá degi til dags og bregðast við gögnum. Hann segir á visir.is að ríkisstjórnin sé að haga sér af...
SlúðurSnautlegasta framboðið Sjálfstæðismenn hafda nú kynnt lista sinn í Norðvesturkjördæmi þar sem bændahöfðinginn og þingmaðurinn, Haraldur Benediktsson, situr í öðru sæti listans þrátt fyrir beinskeyttar yfirlýsingar í prófkjörsbaráttunni um að hann myndi ekki sætta sig við annað en fyrsta sæti lostans. Eftir að hafa tapað fyrir ráðherranum Kolbrúnu Þórdísi Reykfjörð Gylfadóttur, hóf hann strax að draga í land og á endanum sætti...
SlúðurSóttvarnastríð innan ríkisstjórnar Hamingjudögum innan ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur er opinberlega lokið með því að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra eru komnar í stríð vegna sóttvarnaaðgerða. Áslaug Arna hefur verið þekkt af umburðarlyndi gagnvart sóttvarnabrjótum og því að vilja milda aðgerðir og jafnvel ganga gegn tillögum Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis en Svandís er á allt öðru máli og vill sem mestar hömlur...