SlúðurHrollvekja Gunnars Smára Það liggur í loftinu að stórtíðindi verði þegar talið verður upp úr kjörkössunum í haust. Gunnar Smári Egilsson, leiðtogi Sósilaistaflokksins, fer með himinskautum og mælingar benda til að hann mæti á Alþingi með fjóra þingmenn. Það vekur mörgum innan fjórflokksins mikla skelfingu. Önnur tíðindi eru þau að Miðflokkurinn er í hreinni fallhættu þrátt fyrir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður hafi...
SlúðurDavíð uppnefndi Bjarna Ben Davíð Oddsson , ritstjóri Morgunblaðsins, þykir á köflum vera bæði óvæginn og fyndinn. Þessu hefur Bjarni Benediktsson , formaður Sjálfstæðisflokksins, fengið að finna fyrir svo undan svíður. Davíð hefur haft sérstaklega gaman að því að velta Bjarna upp úr ríkidæmi fjölskyldu sinnar, Engeyinganna.„Ættarvitar fara illa í sólgosum og í nálægð segulmagnaðra manna,“ skrifaði Davíð í Reykjavíkurbréfi þegar Bjarni var að...
SlúðurStuðmaður snýr heim Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður og leiðtogi Stuðmanna, ætlar sér stóra hluti í komandi kosningum sem oddviti Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi. Jakob fylgdi Samfylkingunni lengi að málum en nú tekur hann slaginn við Loga Einarsson, formann þess flokks, sem leiðir í Norðausturkjördæmi. Þá mun hann kljást við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins. Víst er að Jakob Frímann mun hrista vel upp...
SlúðurGuðlaugur Þór vill stólinn Það molnar stöðugt meira undan Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins. Fyrrverandi og núverandi þingmenn stíga fram og krefjast uppgjörs gagnvart forystunni og margir efast um að rétta fólkið leiði flokkinn. Líkurnar á áframhaldandi stjórnarsamstarfi við Vinstri-græna minnka stöðugt. Engum dylst að eldar loga á milli Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra og Bjarna og vandséð um framhald á samstarfi þeirra. Um árabil hefur verið...
SlúðurVeikindi Lilju Þess er beðið með nokkurri eftirvæntingu hvort Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra snúi aftur af krafti inn á svið stjórnmálanna. Lilja hefur verið talin einhver efnilegasti stjórnmálamaður landsins og mikill vilji var til þess innan Framsóknarflokksins að hún yrði formaður. En í júní hvarf hún af sjónarsviðinu og í veikindaleyfi. Hún hafði verið undir miklu álagi í störfum sínum sem ráðherra og...
SlúðurStríðsástand milli ráðherra Andrúmsloftið innan ríkisstjórnarinnar er nú við frostmark. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, skaut föstum skotum á Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra nýlega varðandi stöðu Landspítalans og fór sú gagnrýni illa í marga innan raða samstarfsflokka fjármálaráðherrans. Gagnrýni Bjarna mun hafa farið illa í marga innan VG og Framsóknar. Innan ríkisstjórnarinnar er hermt að ríki hreinlega stríðsástand; skeytin fljúgi á milli og kuldinn í...
SlúðurBjarni Ben fær rauða spjaldið Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi .þingmaður Sjálfstæðuisflokksins, er einn þeirra flokksmanna sem eru arfafúlir vegna forystu Sjálfstæðisflokksins og þess dapra fylgis sem flokkurinn fær. „Hvernig má það vera að flokkur, sem var með 40% kjörfylgi, telur það ásættanlegt að fá 25% kjörfylgi?,“ spyr hann í grein í Morgunblaðinu. Vilhjálmur hefur á stjórnmálferli sínum þótt umbótasinnaður og frjálsyndur. Hann hefur ekki tengst spillingamálum,...
SlúðurVeiga upplýsir um skepnuskap Kajakræðarinn Veiga Grétarsdóttir hefur fram að þessu verið þekktust fyrir þau afrek sem hún hefur unnið við róður í kringum Íslands. En nú hefur Veiga fært út kvíarnar og upplýsir um þann skepnuskap sem á sér stað við fiskeldi. Veiga tók á sig krók á siglingu fyrir Vestfirði og myndaði við sjókvíar Arctic Fish þar sem í ljós kom fiskur...
SlúðurPáll í skjóli auðmannsins Helga Sigríður Andersen, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, ber þess merki að vera grautfúl eftir að hafa verið slegin af í prófkjöri flokksins og þar með út af þingi. Hún er í sömu stöðu og Páll Magnússon alþingismaður sem sundraði Sjálfstæðisflokknum á Suðurlandi og þótti almennt vera til ófriðs innan flokksins. Nú liggur fyrir að Páll hefur fengið skjól hjá Helga Magnússyni, aðaleiganda Hringbrautar,...
SlúðurÞingmaður fær sjónvarpsþátt Hringbraut, undir stjórn Sigmundar Ernis Rúnarssonar, nýráðins aðalritstjóra Torgs, hefur verið á nokkru flugi undanfarið. Í gær var tilkynnt að nýr stjórnmálaþáttur væri í uppsiglingu. Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur það hlutverk að stjórna þættinum. Þetta útspil stjórnenda Hringbrautar veldur furðu og mörgum ofbýður forherðingin. Menn spyrja hvort aðrir pólitíkusar fái svipaða stöðu og fái sinn eigin þátt í aðdraganda...
SlúðurRógurinn dynur á Sólveigu Sólveig Jónsdóttir, formaður Eflingar, er að líkindum ein rægðasta kona Íslands. Skýringin er væntanlega sú að hún hefur staðið sig vel í embætti sínu og er raunveruleg ógn við karla sem hafa völd og ríghalda í þau. Sólveig taldi upp í færslu sinni á Facebook allan þann óhróður sem á henni hefur dunið. Þar fær Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins á...
SlúðurPrúðmennið og skrattakollurinn Stefán Hrafn Hagalín, upplýsingafulltrúi Landsspítalans, skaut sig í fótinn með tölvupósti sem hann sendi á fjölmarga stjórnendur Landsspítalans með hvatningu um að svara ekki símhringingum frá fjölmiðlum. Stefán Hrafn, sem er sjálfur fyrrveradi fjölmiðlamaður, kallaði sína gömlu félaga „skrattakolla“ í póstinum. Þetta hleypti illu blóði í Stefán Einar Stefánsson, þann umdeilda blaðamann Moggans, sem rantaði á Facebook-síðu sinni um framferði...