SlúðurSigmundur rústar Stöð 2 Hinn geðþekki sjónvarpsmaður, Sigmundur Ernir Rúnarsson, hefur loksins náð þangað sem hann hefur stefnt að áratugum saman. Hann er orðinn fréttastjóri sjónvarpsfrétta. Sigmundur Ernir var á sínum tíma varafréttastjóri Stöðvar 2. Þegar staða fréttastjóra losnaði lýsti hann sig reiðubúinn til að takast á við verkefnið. Þá vitnaði hann í Elvis Presley og sagði „Now or never“. Hann hlaut ekki náð...
SlúðurTommi fann til fátæktar Veitingamaðurinn Tómas Tómasson, eða Tommi, mætti í viðtal til Sölva Tryggvasonar þar sem hann fór yfir lífshlaup sitt. Þar fjallar hann um tinda og dali í lífi sínu. Hann hvarf frá því að vera auðugur hóteleigandi í það að glíma við fátækt. „Ég notaði alltaf tvo eyrnapinna eftir sturtu á morgnana, en ég var orðinn svo blankur þarna að ég...
SlúðurSláturtíð hjá Vinstri-grænum Vinstri-grænir fengu 11 þingmenn kjörna árið 2017. Af þeim sem ekki urðu ráðherrar hafa nú tveir, Rósa Brynjólfsdóttir og Andrés Ingi Jónsson, gengið úr flokknum og þremur, Kolbeini Óttarssyni Proppé, Ólafi Þór Gunnarssyni og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur verið hafnað af grasrót flokksins í prófkjörum. Þeim tveimur starfsmönnum flokksforystunnar sem stukku í prófkjör var líka hafnað. Það er því sannkölluð sláturtíð...
SlúðurLukkuriddari kveður Samfylkingu Ein helsta bylgjan í stjórnmálum á Íslandi hefur undanfarið verið að forsmáðir lukkuriddarar hafa yfirgefið Samfylkinguna eða að minnsta kosti spjallhóp flokksins á Facebook. Sá sem síðast tók hatt sinn og staf er Pétur Markan, sá umdeildi stallari Agnesar Sigurðardóttur biskups. Pétur hefur fundið upp á einu og öðru með Agnesi, eins og að setja brjóst á Jesú Krist, sem...
SlúðurKlámhögg Brynjars Brynjar Níelsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokks, er einn allra skemmtilegasti þingmaður þjóðarinnar þótt hann sé kannski ekki alltaf á dýptina. Fjölmargar stöðufærslur hans á Facebook hafa ratað í fréttir. Svo er einnig núna þegar hann vegur að Degi B. Eggertssyni borgarstjóra fyrir að hann hefði fengið boð í bólusetningu. „Ég hef ekki fengið boðun í bólusetningu, eins og Borgarstjórinn, þótt ég hafi...
SlúðurAkureyringar gegn Samherja Ásakanir á hendur Þorsteini Má Baldvinssyni um mútur, lögbrot og siðleysi hrannast upp í Namibíu, Færeyjum og á Íslandi. Færeyskur sjónvarpsþáttur leiddi fram hvernig svindlað var á Namibíumönnum með því að lögskrá íslenska sjómenn á skipum þaðan í Færeyjum og sleppa við skatta. Þrátt fyrir eldana eru forsvarsmenn Samherja hinir bröttustu og nota heimasíðu fyrirtækisins aðallega til að ráðast á...
SlúðurStofnandinn spáir dauða Fréttablaðsins Gunnar Smári Egilsson, einn stofnenda Fréttablaðsins, spáir blaðinu ekki langra lífdaga eftir að hrun hefur orðið í lestri þess undir ritstjórn Jóns Þórissonar. Gunnar Smári setti fram þennan spádóm í viðtali á hlaðavarpi Sölva Tryggvasonar þegar hann rifjaði upp stofnun blaðsins og aðkomu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar athafnamanns að rekstrinum. Svo fellur dómurinn. „Ég held að Fréttablaðið hljóti að hætta á...
SlúðurÞingmaður sleginn kaldur Margir eru í forundran vegna úrslita í forvali Vinstri-Grænna í Suðurkjördæmi. Nokkrar stórkanónur höfðu auðmjúklega boðist til að verða leiðtogar við brotthvarf Ara Trausta Guðmundssonar alþingismanns sem markaði sín spor með því að vinna þingsæti í kjördæmi sem hafði verið einskonar pólitísk eyðimörk VG. Kolbeinn Óttarsson Proppé, sitjandi þingmaður VG, Róbert Marshall, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, og Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, varaþingmaður og...
SlúðurKjörískona ruglar í körlum Nær öruggt þykir að við brotthvarf Páls Magnúsonar, sem leiðtoga Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, munu Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri Kjöríss, hreppa sætið. Reyndar stóð Páll það tæpt í kjördæminu að staða hans þótti vonlaus. Klofningurinn og fall meirihlutans í Eyjum varð á hans vakt og ábyrgð. Sjálfstæðismenn gleðjast yfir því að kona taki við keflinu. Aftur á móti verður með þessu mikil...
Slúður„Minn maður“ í Namibíu Það er vinsæll samkvæmisleikur þessa dagana að velta fyrir sér framtíð Kristjáns Þórs Júlíussonar, fráfarandi sjávarútvegsráðherra, á vinnumarkaði. Kristján Þór hefur verið í afar þröngri stöðu vegna tengsla hans við það illa þokkaða fyrirtæki Samherja. Þetta er jafnframt ástæðan fyrir því að hann gefur ekki kost á sér til þingsetu áfram. Fræg var sú frásögn í Stundinni þegar þrír Namibíumenn,...
SlúðurHitnar undir Svandísi Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra er í miklum vanda vegna reglugerðarklúðursins með sóttkvíarhótel eða fangelsi eins og sumir kalla það. Reglugerðin, sem gerði ráð fyrir nauðungarvistun fólks, var úrskurðuð ómerk fyrir undirrétti og landsréttur vísaði málinu frá. Þegar ráðherra fékkst loks til að afhenda gögn sem lögð voru til grundvallar reglugerðinni kom í ljós að ekki var að að finna álit lögmanna....
SlúðurSársaukafull sýnataka hjá Brynjari Brynjar Níelsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, gerði góða reisu til Spánar í tvær vikur, þvert á tilmæli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis sem vill að fólk haldi sig heima á landinu bláa og helst sem mest afsíðis. Það var fast skotið hjá Kára Stefánssyni í Kastljósi þegar hann uppnefndi Brynjar sem Trump og taldi það vera hið mesta glapræði að þvælast í útlöndum. Sigríður...