SlúðurReiðir stuðningsmenn Áslaugar Stuðningsmenn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur eru sagðir vera ævareiðir út í Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins, eftir að formaðurinn nefndi Áslaugu sérstaklega sem mögulegan oddvita flokksins í Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum í hlaðvarpsþættinum Sjókastið. Áslaug er sögð ekki hafa neinn einasta áhuga slíku í dag enda sé mikil áhætta fólgin í því að taka slíkt verkefni en flokkurinn hefur ekki átt borgarstjóra...
SlúðurAuglýsing Hildar Eins og slúðrað hefur verið um áður sækist Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, eftir því að verða næsti borgarstjóri Reykjavíkur en til þess að geti gerst þarf hann að koma Hildi Björnsdóttur, núverandi oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni, í burtu. Hildur mun hins vegar gera sitt besta til að halda oddvitasætinu en mikil óánægja hefur verið störf hennar hjá mörgum í...
SlúðurDóra kveður sviðið Mikið hefur verið rætt um breytingar á listanum stjórnmálaflokka í höfuðborginni fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og hafa flestir oddvitarnir svarað fyrirspurnum fjölmiðla um hvort þeir ætli að halda áfram eða ekki. Einn stjórnmálamaður sem ekki hefur svarað er Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata, en hún hefur verið borgarfulltrúi síðan árið 2018. Svo virðist vera að Dóra muni ekki bjóða sig aftur...
SlúðurRáðabrugg Sigmundar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er hörundsár maður, þetta vita allir sem þekkja til forsætisráðherrans fyrrverandi. Hann hefur ekki ennþá fyrirgefið þeim sem úthýstu honum úr Framsóknarflokknum þegar uppljóstrað var um hið vafasama Wintrismál Sigmundar. Síðan þá hefur hann stofnað eigin flokk og fylgdu margir Framsóknarmenn honum yfir í Miðflokkinn. Einn þeirra er Björn Ingi Hrafnsson, fyrrverandi borgarfulltrúi og núverandi aðstoðarmaður Sigmundar....
SlúðurÁframhaldandi valdabarátta Guðrúnar Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur frá því að hún var kjörin formaður gert ýmislegt til að tryggja sér örugg völd innan flokksins. Meðal þess sem hún hefur gert er að ýta Hildi Sverrisdóttur úr þingflokksformennsku í flokknum og skipt um framkvæmdastjóra hjá Sjálfstæðisflokknum. Nú er hins vegar komið að Sambandi ungra Sjálfstæðismanna en í gær tilkynnti Júlíus Viggó Ólafsson um...
SlúðurSanna hafnaði Vinstri grænum Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri Grænna, er þessa stundina leitandi allra leiða til að halda lífi flokknum eftir að hann datt út af Alþingi í kosningum á síðasta ári. Nú styttist í sveitarstjórnarkosningar og á stjórnmálaflokkurinn nokkra fulltrúa í sveitarstjórnum landsins, þó fáir séu. Þá hefur flokkurinn aðeins einn mann inni í Reykjavík og mögulegt er að hann falli út í...
SlúðurÓmarktæk aðför að Silju Báru Mikill meirihluti kennara og starfsmanna við Háskóla Íslands styður Silju Báru Ómarsdóttur, rektor HÍ, ef marka má umræðu sem fer fram á kaffistofum skólans en rektorinn hefur verið gagnrýndur fyrir þögn í máli þar sem hópur mótmælenda stöðvaði fyrirlestur erlends prófessors. Fyrirlesarinn var Gil S. Epstein, prófessor við Bar-Ilan-háskólann í Ísrael, en mótmælendurnir telja hann styðja við þjóðarmorð á Gaza...
SlúðurFramtíð Heiðu Nú er stutt í næstu sveitarstjórnarkosningar og eru baktjaldamenn allra flokka byrjaðir að skipuleggja næstu herferðir. Fyrst þarf þó að velja lista og er oddvitinn mikilvægastur. Sjálfstæðismenn í Reykjavík eru sennilega í mestu basli en líklega verður hart barist innanhúss um oddvitasætið en lítil trú er á Hildi Björnsdóttur, núverandi oddvita, hjá mörgum Sjálfstæðismönnum. Það eru þó ekki aðeins Sjálfstæðismenn...
SlúðurLeikflétta Guðlaugs Nú styttist óðum í sveitarstjórnarkosningar en þær verða haldnar næsta vor. Mesta spennan er hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík en flokkurinn er klofinn í að minnsta kosti tvær fylkingar. Sprengju var varpað fram í gær inn í flokkinn en þá greindi Halldór Halldórsson, fyrrverandi oddviti flokksins í Reykjavík, að Hildur Björnsdóttir ætti að leiða flokkinn áfram en hún hefur verið illa...
SlúðurFlott plott Þorgerðar Morgunblaðið hefur nú afhjúpað með rannsókn sinni að utanríkisráðuneytið hafi sent Ríkisútvarpinu óbirta skýrslu, eða „innanhússkjal“, án þess að lagaleg skylda hafi verið til. Um var að ræða skýrsla sem afhjúpaði vandræðalega gleymsku eða óheilindi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, og unnin var í hans ráðherratíð. Þar kom fram að Ísland hefði aldrei formlega slitið viðræðum um aðild að Evrópusambandinu,...
SlúðurÁstarbréf Davíðs Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur lengi haft trú á Donald Trump Bandaríkjaforseta og miðlað ágæti hans til lesenda Morgunblaðsins. Í leiðara Morgunblaðsins í dag, sem hann ritstýrir, tekur hann undir ásakanir Trumps gegn Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Trump hefur sett saman verkefnahóp til að rannsaka Obama og meðal annars sýnt gervigreindarmyndband af handtöku hans og fangelsun. Viðbrögðin í Hádegismóum eru...
SlúðurHjólað í Höllu Eins og búast mátti við situr Halla Hrund Logadóttir ekki á friðarstóli sem þingmaður, eftir að í ljós kom að hún tók aðra afstöðu en stjórnarandstaðan í mörgum þingmálum. Þannig ákvað Halla Hrund að taka ekki þátt í málþófi gegn veiðigjaldsfrumvarpinu í sumar og sagðist „styðja markmið ríkisstjórnarinnar“. Heimildin greindi síðan frá því að Halla Hrund hefði verið óvenjulega jákvæð,...