SlúðurPíratar snúa aftur Eftir að hafa þurrkast út í þingkosningunum í nóvember eru Píratar nú aftur komnir á blað í könnunum. Ný skoðanakönnun Maskínu sýnir Pírata með 5% fylgi, á meðan hvorki Sósíalistaflokkurinn né Vinstri græn mælast inni á þingi. Píratar voru líka ofar Vinstri grænum og Sósíalistaflokki Íslands í þjóðarpúlsi Gallups í lok júní. Athygli vekur að Píratar njóta meira fylgis hjá...
SlúðurVendingar á vinstri vængnum Séra Davíð Þór Jónsson er talinn líklegur til að leiða stjórnmálaflokk á vinstri vængnum eftir því sem heimildir Mannlífs herma. Er talið líklegt að hugmyndin hafi sprottið upp eftir að sundrung í Sósíalistaflokknum kom upp, og þá var fylgishrun Vinstri grænna og Pírata sem vatn á myllu þeirra sem vilja sameiningu vinstri flokkanna undir öðru heiti. Hvort Gunnar Smári Egilsson...
SlúðurVeðmál Herdísar Það fór ekki framhjá mörgum að vörumerkið Stöð 2 var lagt niður í síðustu viku en stöðin heitir í dag Sýn, eins og fyrirtækið sjálft, og var kynnt með látum. Fengu allir fjölmiðlar fréttatilkynningu þess efnis og voru þeir hvattir til að ræða við Herdísi Dröfn Fjeldsted, forstjóra Sýnar, um breytingarnar. Mannlíf reyndi að setja sig í samband við forstjórann...
SlúðurÁnægja Sigmundar Davíðs Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Miðflokksins, skrifar reglulega á samfélagsmiðla eins og margir aðrir stjórnmálamenn en notar þá að vissu leyti öðruvísi en margir aðrir. Sigmundur setti inn færslu þar sem hann birti mynd af ráðhúsinu í Reykjavík í fyrradag og vakti athygli á að íslenska fánanum hafi verið flaggað og lýsti ánægju og undrun sinni á málinu....
SlúðurTengdasonur Bjarna Fyrrverandi forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, var dreginn inn í umræðuna um útifund þjóðernissinna á Austurvelli um helgina, þegar hann var beðinn að „setja tappa í tengdasoninn“, ClubDub-popparann Brynjar Barkarson. Einhverjum stuðningsmönnum Bjarna, eins og Elliða Vignissyni, bæjarstjóra Ölfuss, þótti ósmekklegt að nota fjölskyldutengsl gegn Bjarna, sem varð reyndar að hætta sem forsætisráðherra og aftur sem fjármálaráðherra vegna fjölskyldutengsla. Bjarni er ekki...
SlúðurFormaður með fortíð Nýr formaður Samtaka atvinnulífsins, Jón Ólafur Halldórsson, sem tók við 16. maí síðastliðinn, er strax orðinn að skotspæni fylgisfólks ríkisstjórnarinnar. Ástæðan er að Jón Ólafur tók afstöðu með útgerðinni í umræðum um veiðigjöld í Vikulokunum á Rás 1 um helgina. Vildi Jón Ólafur að stjórnvöld og sjávarútvegurinn ætti nánara samráð um málið og að veiðigjöldum yrði frestað fram á haust....
SlúðurPáll með Margréti Bloggarinn Páll Vilhjálmsson, er orðinn einn af sérmerktum höfundum vefmiðilsins Fréttarinnar.is, sem Margrét Friðriksdóttir heldur úti. Páll, sem er þekktur fyrir baráttu sína fyrir óheft og óheflað málfrelsi um þá sem gagnrýna eða fjalla um útgerðarrisann Samherja, fjallar meðal annars um „stolta fánabera“ á Austurvelli í mótmælum þjóðernissinna um helgina, þar sem Margrét hélt einmitt ræðu. Í ræðu sinni kynnti...
SlúðurEinkalíf Sæþórs Upprisudeild Sósíalistaflokks Íslands, sem náði öllum sætum í framkvæmdastjórn flokksins á aðalfundi um helgina, er nú að kynnast veruleika stjórnmálanna. Sæþór Benjamín Randalsson, nýkjörinn formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, sem tekur við stöðu Gunnars Smára Egilssonar, er kominn í fréttirnar vegna skjáskota af meintum kynferðislegum samskiptum hans við yfirlýstan 16 ára ungling á samfélagsmiðlinum Grindr. Sæþór segir í samtali við vefmiðilinn Nútímann,...
SlúðurÁhætta Garðars Einhverjir almennir borgarar ráku upp stór augu í síðustu viku þegar tilkynnt var að færsluhirðirinn Rapyd á Íslandi hefði skilað methagnaði á síðasta ári. Töldu sumir að fyrirtækið myndi finna fyrir því að hafa misst mörg hundruð viðskiptavini frá sér vegna sniðgöngu sem efnt var til þegar Arik Shtilman, forstjóri Raypd á heimsvísu, tilkynnti að fyrirtækið styddi aðgerðir Ísrael á...
SlúðurHitlisti Úlfars Nýrokinn lögreglustjóri á Suðurnesjum, sem rauk úr starfi eftir að Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra ákvað að auglýsa stöðuna til umsóknar, hellti úr skálum reiði sinnar og reynslu í viðtali við Stefán Einar Stefánsson á Morgunblaðinu í gær. Þar hefur hann notið góðs andrúmslofts, en Morgunblaðið lýsti því meðal annars í fyrirsögn á dögunum við mynd af Úlfari við eldsumbrot í...
SlúðurHeift Baldvins Óttast er að með brotthvarfi Þorsteins Más Baldvinssonar úr forstjórastóli Samherja muni yfirbragð þessa stærsta fyrirtækis Íslands ekki mildast, nema síður sé. Félagið hefur verið í hörðum deilum á fjölmörgum vígstöðvum, bæði gagnvart stjórnmálafólki á Íslandi, eftirlitskerfinu, fjölmiðlum og svo yfirvöldum í Namibíu, eða þeim hluta þeirra sem þáði ekki ráðgjafagreiðslur heldur lét rannsaka þær. Arftaki Þorsteins Más er sonur...
SlúðurAri Eldjárn hitti Jón Óttar Fyrrverandi rannsóknarlögreglumaðurinn, glæpabókahöfundurinn, afbrotafræðingurinn og njósnari Björgólfs Thors Björgólfssonar, Jón Óttar Ólafsson, var aðalleikarinn í umfjöllun Kveiks um gagnaleka, sem byggði á leyniupptökum Jóns Óttars sjálfs. Jón Óttar hefur verið sýnilegur í miðborg Reykjavíkur, þar sem hann býr. Ein slík nærvera átti sér stað á veitingastað í miðbænum fyrir örfáum vikum. Þar sat einn fremsti grínisti Íslands, og nýbakaður bæjarlistamaður...