Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Vendingar á vinstri vængnum

Séra Davíð Þór Jónsson
Séra Davíð Þór Jónsson Mögulega að taka slag­inn af krafti í stjórn­mál­unum

Séra Davíð Þór Jónsson er talinn líklegur til að leiða stjórn­málaflokk á vinstri vængnum eftir því sem heimildir Mannlífs herma.

Er talið líklegt að hugmyndin hafi sprottið upp eftir að sundrung í Sósíalista­flokknum kom upp, og þá var fylgis­hrun Vinstri grænna og Pírata sem vatn á myllu þeirra sem vilja sameiningu vinstri flokkanna undir öðru heiti.

Hvort Gunnar Smári Egilsson standi á bakvið Davíð Þór er enn óljóst en margt sem bendir til þess.

Nú um stundir er Davíð Þór í fríi á Spáni með fjöl­skyldu sinni og vildi ekkert tjá sig um stöðuna.

Davíð Þór var á meðal þeirra er lýst hafa yfir óánægju með gang mála hjá Sósíalista­flokknum en hann var sjálfur í fyrsta sæti á framboðs­lista flokksins í Suðvestur­kjördæmi í alþingis­kosningunum í nóvember síðastliðnum.

Hann sagði eftir allt rótið hjá Sósíal­istum að „það sem kom fyrir var að ákveðnir einstaklingar höfðu gert tossa­lista yfir það hvernig ætti að kjósa. Allar kosningar fóru upp á punkt og prik eftir þessum tossa­lista og það var náttúru­lega til höfuðs ákveðnum einstaklingi skulum við segja“ sagði Davíð Þór á sínum tíma og staðfesti að umræddi maðurinn væri „Gunnar Smári.“

Sagði Davíð Þór einnig að „hann [Gunnar Smári Egilsson, innskot blm] náði ekki kjöri, og einstaklingar sem höfðu starfað of náið með honum náðu ekki kjöri, þrátt fyrir að það séu einstaklingar sem flokkurinn á líf sitt að launa. Þau guldu þess að vera ekki í ónáð hjá Gunnari Smára.“

Davíð Þór sagðist ekki vita „hvernig þetta fólk ætlar að fara reka þennan flokk eftir að hafa hafnað einstaklingum sem hann stendur í svona mikilli þakkar­skuld við.“

Hann sagði líka að „það verða eftir­málar af þessum skrípa­leik sem ungliða­hreyfingin bauð upp á undir yfir­skrift lýðræðis. En það mun koma í ljós hver þau verða.“

Þótt Davíð Þór baði sig á ylvolgum ströndum Spánar þar sem glampar sólarinnar gefa ákveðnum litbrigðum lífsins mögulega meiri snerpu segir hann þó sjálfur að hann liggi undir feldi og þurfi að hugsa sinn gang.

Fari svo að Davíð Þór og Gunnar Smári stofni stjórn­málaflokk saman er ljóst að sá flokkur verður hávær, umdeildur og hugmynda­ríkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Slúður