Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Píratar snúa aftur

Píratar snúa aftur
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir Er gjald­keri fram­kvæmda­stjórnar Pírata og stóð í stafni í þing­kosn­ing­unum í nóv­em­ber. Mynd: Facebook

Eftir að hafa þurrkast út í þing­kosn­ing­unum í nóv­em­ber eru Píratar nú aftur komnir á blað í könn­unum. Ný skoð­ana­könnun Maskínu sýnir Pírata með 5% fylgi, á meðan hvorki Sós­í­alista­flokk­ur­inn né Vinstri græn mæl­ast inni á þingi. Píratar voru líka ofar Vinstri grænum og Sós­í­alista­flokki Íslands í þjóð­ar­púlsi Gallups í lok júní.

Athygli vekur að Píratar njóta meira fylgis hjá konum en körlum, eða 6,6% hjá konum en 3,5% hjá körlum. Það kemur kannski ekki á óvart í ljósi þess að sjö af átta með­limum fram­kvæmda­stjórnar eru konur. Auk þess ná Píratar betur til yngra fólks en eldra og eru með 7,6% fylgi hjá 30 til 39 ára.

Píratar sýna ágæta spretti þessa dag­ana, en Halldóra Mogensen og Björn Leví Gunn­ars­son eru dug­leg við greina­skrif og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir lætur heyra í sér á Facebook, svo eitt­hvað sé nefnt.

Samhliða upp­gangi þjóð­ern­is­hyggju, og póli­tískri hern­að­ar­á­ætlun Sam­fylk­ingar og Við­reisnar um að halda sig að mestu til hlés, leggja Píratar áherslu á fjöl­menn­ingu og frjáls­lyndi. Auk þess heldur Halldóra úti Samtökum um mann­væna tækni, sem ætlað er að gæta hags­muna mann­kyns­ins í örum tækni­breyt­ingum. Hún hefur meðal ann­ars lagt til tækni­lega inn­viði sem eru á for­ræði Íslend­inga eða Evr­ópu­búa, frekar en banda­rískra stór­fyr­ir­tækja. Að auki mælir hún fyrir lög­leið­ingu eða refsi­leysi fíkni­efna­neyslu.

Píratar eru síðan í borg­ar­stjórn í Reykja­vík. Þar er Dóra Björt Guð­jóns­dóttir óhrædd við að stökkva til varnar í hverju erf­iðu mál­inu á fætur öðru, nú síð­ast valdi hún að standa á prinsipp­inu í umræðu um þétt­ingu byggðar, sem þriðj­ungur Reyk­vík­inga styður.

Líklegt er að Dóra Björt, ásamt Alexöndru Briem, Sig­ur­björgu Erlu Egils­dóttur í Kópavogi og Álfheiði Eymars­dóttur í Árborg, fái tæki­færi til að halda Pírötum á korti íslenskra stjórn­mála í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Slúður