Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Flott plott Þorgerðar

Flott plott Þorgerðar
Þor­gerður Katrín Morg­un­blaðið rann­sak­aði upp­lýs­inga­gjöf hennar. Mynd: Víkingur

Morg­un­blaðið hefur nú afhjúpað með rann­sókn sinni að utan­rík­is­ráðu­neytið hafi sent Rík­is­út­varp­inu óbirta skýrslu, eða „inn­an­hús­skjal“, án þess að laga­leg skylda hafi verið til.

Um var að ræða skýrsla sem afhjúpaði vand­ræða­lega gleymsku eða óheil­indi Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og unnin var í hans ráð­herra­tíð. Þar kom fram að Ísland hefði aldrei form­lega slitið við­ræðum um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, ólíkt því sem Guð­laugur hefur sagt nýverið í umræðum um end­ur­nýj­aðar aðild­ar­við­ræður. Skýrsl­unni, með rit­uðum inn­gangi Guðlaugs, hafði verið stungið ofan í skúffu.

Morg­un­blaðið fylgir eftir rann­sókn sinni með við­tali Hermanns Nökkva Gunn­ars­sonar, blaða­manns Morg­un­blaðs­ins, við Hjört J. Guð­munds­son alþjóða­stjórn­mála­fræð­ing, sem segir að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra hafi eflaust vitað af veit­ingu upp­lýs­ing­anna og án vafa borið ábyrgð á henni. Und­ir­liggj­andi er að þannig hafi mögu­lega verið um að ræða póli­tískt plott, þar sem til­vist skýrsl­unnar hafi verið lekið til Rík­is­út­varps­manna og gengið lengra en áður í upp­lýs­inga­gjöf.

Boð­leiðir rík­is­stjórn­ar­innar inn á Rík­is­út­varpið eru ekki langar, en Sigmar Guð­munds­son, þing­maður einn allra nán­asti banda­maður Þor­gerðar Katrínar, starf­aði þar um ára­bil.

Ljóst er að það er af sem áður var að upp­lýs­ingar láku frá stjórn­völdum til Morg­un­blaðs­ins, þegar þurfa þótti, heldur er það nú rík­is­mið­ill­inn. Vekur þetta eðli­lega gremju á Morg­un­blað­inu, sem hefur misst spón úr aski sínum. Margir kynnu að hafa áhyggjur af tengslum fram­kvæmda­valds og fjöl­miðla. Enn aðrir telja jákvætt að veita upp­lýs­ingar án þess að laga­leg skylda sé til, þótt það megi mis­nota.

Blaða­maður Morg­un­blaðs­ins sem afhjúpaði málið lenti í kröppum dansi í vetur þegar hann hafði sótt lands­fund Sjálf­stæð­is­flokks­ins og varð fyrir því á barnum Pedersen-svít­unni að kýla annan lands­fund­ar­gest sem studdi Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur í for­manns­kjör­inu, en sjálfur studdi hann Guðrúnu Haf­steins­dóttur. Hermann Nökkvi er ekki bara blaða­maður heldur fram­kvæmda­stjóri Sambands ungra Sjálf­stæð­is­manna.

Við­mæl­andi hans og álits­gjafi, Hjörtur J. Guð­munds­son, er reyndar fyrr­ver­andi blaða­maður Morg­un­blaðs­ins. Hann er síðan í utan­rík­is­mála­nefnd Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Þykir þessi atburða­rás ein­kenn­andi fyrir íslensk stjórn­mál og fjöl­miðla, þar sem mann­fæð og þétt­ofið tengsla­net mynda flétt­urnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Slúður