SlúðurLeyniupptökur Hildar Borgarstjórnarflokksins í Reykjavík er í uppnámi eftir að flokkurinn reyndist vera þríklofinn í atkvæðagreiðslu um uppfærða Borgarlínu. Hildur Björnsdóttir, leiðtogi sjálfstæðismanna, skrapp erlendis áður en til atkvæðagreiðslunnar kom en varamaður hennar, Sandra Hlíf Ocares, greiddi atkvæði með sáttmálanum. Eftir heimkomu Hildar brutust út hörkuátök á fundi minnihlutans þar sem brigslyrði fuku á vígsl. Sandra fékk það óþvegið frá félögum sínum....
SlúðurSvik Sigurðar Inga Allir stjórnarflokkarnir glíma við fylgishrun eftir stjórnarsamstarf sem sumum þykir subbulegt en aðrir telja vera til háborinnar fyrirmyndar. Verst er staða Vinstri grænna sem eru í útrýmingarhættu eftir að hafa svínað á flestum sínum stefnumálum til að tryggja gott samstarf við Sjálfstæðisflokkinn sem nú er að umbreytast í smáflokk. Staða Framsóknarflokksins undir stjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar er afar snúin. Fylgishrun...
SlúðurHalla horfir til himins Halla Hrund Logadóttir, fyrrverandi orkumálstjóri, er þessa dagana að hugsa sinn gang og horfir til himins og veltir fyrir sér pólitík. Hermt er að hún ætli að skella sér í stjórnmálin eftir þá lífsreynslu að hafa reynt við forsetaembættið. Halla hafði ekki árangur sem erfiði þótt um tíma virtist sem svo að hún væri í miklum meðbyr á leið til...
SlúðurHrækt á Áslaugu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra vísinda, hefur ekki átt sjö dagana sæla á lífsleiðinni. Hún rekur raunir sínar í færslu á Facebook þar sem hún hvetur fólk til að grandskoða pólitíska stöðu sína og hvort það eigi heima í Sjálfstæðisflokknum. Í því samhengi reifar hún þá erfiðleika sem hún hefur þurft að fást við vegna þátttöku sinnar í stjórnmálum. „Ég hef...
SlúðurSlökkt á Bjarna Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarin misseri. Flokkur hans mælist með fylgi sem er undir fylgi Miðflokksins og langt undir Samfylkingunni sem enn fer með himinskautum. Ofan þetta bætist að stjórnarslit liggja í loftinu eftir að Vinstri-grænir uppgötvuðu nýverið að þeir eru til vinstri og aðhyllast náttúruvernd. Bjarni hefur sýnilega notið þess að vera forsætisráðherra....
SlúðurAtli er fokinn Þau visna nú kærleiksblómin innan Pírata. Ekki er langt síðan Atli Þór Fanndal var ráðinn sem einskonar samskiptasjóri þingflokks Pírata. Voru miklar væntingar bundnar við störf hans. Atli hefur víða komið við á ferli sínum og þykir vera í senn slóttugur og klókur í pólitískri refskák. Hann starfaði um tíma með Vinstri- grænum en lagði svo fyrir sig blaðamennsku. Áður...
SlúðurHildur svarar af hörku Gríðarleg ólga er í þríklofnum borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins sem fundaði í gærmorgun. Hörkudeilur voru á fundinum þar sem Hildur Björnsdóttir liggur undir hörðu ámæli vegna jákvæðrar afstöðu til Borgarlínunnar auk fleiri mála. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi sagði blákalt við Mannlíf í gær að ekki hafi verið um að ræða krísufund og Hildur sé ennþá með umboð sem leiðtogi. Hann gerði lítið úr...
SlúðurLágkúra Brynjólfs Mikil reiði er í garð Ríkisútvarpsins vegna fréttaflutnings af andláti Benedikts Sveinssonar athafnamanns og föður Bjarna Benedikssonar formanns. Fyrsta frétt RÚV um málið birtist í á fimmtudagsmorgun. Þar stakk fólk að nafn hins látna var nefnt í sömu andrá og barnaníðingur var nefndur til sögunnar. Var þar vísað til þess að hinn látni hafði mælt með því að níðingurinn fengi...
SlúðurTýndu milljónir Haraldar Pawel Bartoszek, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, er ekki vinsæll hjá mörgum íslenskum knattspyrnuaðdáendum þessa stundina. Ástæðan er sú að hann taldi það væri ekki sanngjarnt að skattgreiðendur greiddu 50 milljónir króna til þess að knattspyrnuliðs Víkings gæti leigt ljós til að spila heimaleiki í Evrópukeppni seint á kvöldin um hávetur. Pawel stakk meðal annars upp á því að Víkingur eða UEFA myndi...
SlúðurHildur missir tökin Uppnámið innanborgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins vegna Borgarlínunnar hefur vakið mikla athygli. Flokkurinn er þríklofinn í málinu og hver höndin upp á móti annarri. Þetta kom í ljós þegar greidd voru atkvæði um uppfæröa Borgarlínu. Þetta er ekki síst skondið í því ljósi að Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, og allir helstu áhrifamenn flokksins í nágrannasveitafélögum Reykjavíkur styðja áform um Borgarlínu. Leiðtogi borgarstjórnarflokksins, Hildur...
SlúðurBrynjar segir bless Brynjar Níelsson, fyrrverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, hhefur sagt af sér varaþingmennsku og hyggst reyna fyrir sér í einkageiranum eftir eftir að hafa verið á framfæri hins opinbera um árabil. Brynjar þykir vera einhver allra fyndnasti sþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann hefur reglulega skrifað hnyttnar athugasemdir á Facebook sem hafa kætt marga og sumar jafnvel haft skýran boðskap. Hann hefur átt erfitt uppdráttar í...
SlúðurBjórkvöld Stefáns E Björn Leví Gunnarsson, alþingismaður Pírata, gefur Stefáni E. Stefánssyni blaðamanni Moggans ekki háa einkunn og kallar hann lygara. Einkunn þingmannisins er tilkomin vegna þess að Stefán fékk hann í þátt til sín í Moggasjónvarpinu og vitnaði síðan til orða hans um Menntamálastofnun á bjórkvöldi í hlaðvarpi Þjóðmála og fór að sögn rangt með. Það sætir reyndar meiri furðu að þáttastjórnandinn...