SlúðurStefán hættir í janúar Stefán Eiríksson útvarpsstjóri gaf það út fyrir nokkrum misserum að hann myndi ekki sækjast eftir endurráðningu þegar skipunartími hans rennur út. Samkvæmt því mun hann hætta í janúar næstkomandi þegar hann hefur setið í fimm ár. Fjöldi vandamála stofnunarinnar eru rakin til hans. Mikil óstjórn er á dagskrá allra miðla Ríkisútvarpsins þar sem hver endurtekningin rekur aðra og metnaðarleysið er...
SlúðurLágkúra Stefáns Ríkisútvarpið er um þessr mundir í litlum metum hjá áskrifendum sínum. Dagskráin er öll úr lagi gengin vegna Ólympíuleikanna í París sem tröllríða dagskránni með þeim afgerandi hætti að fréttir ríkismiðilsins hafa verið hraktar af hefðbundum stað og eru sendar úr tveimur tímum síðar. Þá vekur athygl það metnaðarleysi sem er í annari dagskrá. Á undanförnum laugardagskvöldum hafa Stefán Eiríksson...
SlúðurSteingrímur J. er vonarpeningur Vinstri-grænir glíma þessa dagana við þá örvæntingu sem er fylgifiskur þess að vera án foringja. Við brotthvarf Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra myndaðist tómarúm. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður og arftaki formannsins, þykir vera hinn vænsti maður en fjarri því að vera með þá hæfileika sem leiðtogi þarf að hafa í þeim háska sem flokkurinn stendur andspænis. Ný könnun Gallup undirstrikar að flokkurinn...
SlúðurKatrín verði sendiherra Velunnnarar Katrínar Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, leita nú logandi ljósi að boðlegu starfi fyrir hana. Katrín er á einskonar vergandi eftir að hafa tekið það heljarstökk að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands með alkunnri niðurstöðu. Meðal þess sem kemur til álita er að útvega Katrínu stöðu á erlendum vettvangi og hún fari því svipaða leið og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir...
SlúðurIngó stimplaður níðingur Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, er kominn með nóg af því að vera úthrópaður sem níðingur. Hann gerir þau örlög sín að umtalsefni á Facebook í gærkvöld þar sem hann rifjar upp að rúm þrjú ár eru síðan „einhver bylgja fór af stað“ um að hann um að hann væri níðingur. Ingó segir að herferðin hafi byggt á...
SlúðurLilja segist saklaus Ýmsir sjálfskipaðir sérfræðingar keppast um þessar mundir að finna sökudólg þegar kemur að meintum slæmum árangri íslenskra barna í PISA-könnunum undanfarna ára án þess þó að hafa til þess mikla sérfræðiþekkingu. Það vakti þó athygli margra að Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra Íslands frá 2017 til 2021, tók undir áhyggjur fólks af menntakerfinu en sagðist á sama tíma í samtali við Morgunblaðið...
SlúðurHæðist að Höllu Gísli Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri sölusviðs hjá Brimborg, steig fram í bílamáli Höllu Tómasdóttur, verðandi forseta Íslands, til að upplýsa að dyggiir viðskiptavinir fái gjarnan afslátt á borð við þann sem Halla fékk. Gísli Örn er gamansamur og sagði við Stöð 2 að nokkuð væri um að fólk færi fram á forsetaafslátt við kaup á umræddum Volvo-rafmagnsbíl. Þannig hefði fyrrverandi forseti...
SlúðurGunnar Smári sem Stalín Morgunblaðið gengur í dag lengra en oftast áður þegar blaðið líkir Gunnari Smára Egilssyni, foringja Sósialistaflokksins, og Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, við þann kaldrifjaða Jósep Stalín sem sagan skilgreinir gjarnan sem fjöldamorðingja. Tilefni umfjöllunar Davíð Oddssonar og félaga er að Ríkisútvarpið notaði hugtakið öfgavinstrimaður í hádegisfréttum þegar Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður fjallaði um að tiltekið verklag benti til þess að...
SlúðurSpjótin standa á Höllu Halla Tómasdóttir, verðandi forseti Íslands, á ekki upp á pallborðið hjá kjósendum sínum og öðrum þessa Íslendingum dagana. Dularfull bílakaup hennar og pósa þeirra hjóna með forstjóra Brimborgar hefur orðið til þess að efast er um siðferði forsetans. Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, hefur beðist afsökunar á því að hafa birt myndina sem setti allt af stað og segir misskilning hafa...
SlúðurHalla og rafmagnsbíllinn Halla Tómasdóttir, verðandi forseti Íslands, er í vandræðum vegna skynsamlegra kaupa á Volvo-rafmagnsbíl frá Brimborg. Við afhendingu bifreiðarinnar var tekin mynd af Höllu, Birni Skúlasyni, eiginmanni hennar, og Agli Jóhannssyni, forstjóra Brimborgar. Egill fullyrti eftir að myndin var birt að starfsfólk Brimborgar hefði beðið forsetann verðandi um leyfi fyrir myndbirtingu eftir að kaupin voru frágengin, eins og algengt sé við...
SlúðurEinar Örn kokhraustur Flugfélagið Play glímir við erfiðleika þessa dagana. Mikið tap er á rekstrinum sem samkvæmt áætlunum átti að vera kominn í jafnvægi. Innandyra hefur verið ólga og þess er skemmst að minnast að frumherjinn Birgir Örn Jónsson forstjóri hrökklaðist úr starfi og snéri sér aftur að trommuleik með hljómsveitinni Dimmu. Einar Örn Ólafsson, einn aðaleigenda félagsins og stjórnarformaður, tók sjálfur við...
SlúðurSiggi bendir á okrið Mikil umræða hefur átt sér stað var’ðandi það okur sem á sér stað innan ferðaþjónustunnar og þá helst hjá veitingastöðum. Veðurfræðingurinn og lífskúnstnerinn, Sigurður Þ. Ragnarsson, Siggi Stormur, var á ferð í Borgarnesi þegar hann sá, sér til undrunar, að fjórir erlendir ferðamenn norpuðu nokkrir saman í kringum einn súpudisk og einn skammt af fiski. Siggi horfði á þetta í...