Hörður flugstjóri varð vélarvana: ,,Ekkert annað að gera en að opna gluggann og stinga hausnum út!“
Gestur Mannlífsins er Hörður Guðmundsson flugstjóri en hann hefur átt ótrúlegan feril sem flugmaður. Hann hóf feril sinn fyrir vestan, í fyrstu á eins hreyfils vél en tildrög þess þegar hann fékk fyrstu tveggja hreyfla vélina má segja að hafi orðið til þess að hann varð hirðflugmaður Hannibals Valdimarssonar þegar hann náði kjöri á þing árið 1971.