Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Flaug helsærðu fólki úr borgarastyrjöld: „Hérna lét Idi Amin kasta óvinum sínum fyrir krókódílana“

Nýjasti gestur Mann­lífs­ins er Hörður Guð­munds­son flug­stjóri en hann hefur átt ótrú­legan feril sem flug­maður.

Í nokkur ár flaug Hörður flug­vél í Kenía í sam­starfi við Rauða kross­inn en hann þurfti að fljúga nauð­synjum yfir til Suður Súdan en þar stóð yfir blóðug borg­ara­styrj­öld. Rauði kross­inn starf­rækti á svæð­inu sjúkra­hús sem Hörður segir að hafa varla verið hægt að kalla sjúkra­hús, þetta hafi verið leir­veggir með tjaldað yfir en þangað komu margir slas­aðir frá borg­ara­styrj­öld­inni. Sagði hann Reyni Trausta að hann geti ekki sagt frá því allra svaka­leg­ast sem hann lenti í úti í Afríku en sagði honum laus­lega frá einu. „Þá lentum við í því að þurfa að sækja sært fólk sem hafði flúið yfir landa­mæri frá Súdan yfir til Úganda. Og það var í litlu þorpi rétt sunnan við landa­mærin að Súdan. Og við vorum sendir eftir þessu fólki en það virt­ist eng­inn sér­stakur vin­skapur vera milli Úganda­mönnum og Ken­ía­mönnum þannig að við máttum ekki fara inn í landið nema á einum stað. Þannig að við urðum að lengja flugið og lenda í Kampala áður en við fórum svo norð­ur­eftir. Þegar við komum er komið myrkur en Úganda seldi raf­magn yfir til Kenía á þessum tíma þannig að borgin var algjör­lega myrkvuð, það var ekki ljóstíra í borg­inni. En það var einn stefnu­viti í lagi þannig að þegar við komum höfðum við sam­band við turn­inn en þá var hann raf­magns­laus líka og ljós­laus flug­völl­ur­inn. Þannig að við fórum í bið­flug yfir Vikt­or­íu­vatn og það vildi svo til að það var tung­skin og stjörnu­bjart þannig.“

Hörður segir að á meðan mað­ur­inn í turnum hafi fari niður til að trekkja ljósa­vél­ina til að fá raf­magn á flug­völl­inn, hafi hann flogið yfir Vikt­or­íu­vatni í um hálf­tíma. „Við lendum svo og það tekur Rauða kross fólk við okkur þessa nótt í Kampala. Daginn eftir verðum við að fara norð­ur­eftir að sækja fólkið sem átti að fara á spít­ala. Og þegar við komum þangað, þá var þarna einn með okkur sem var kunn­ugur stað­háttum. Og við erum að fara yfir einn stað hjá Níl og þá segir hann okkur „Hérna lét Idi Amin kasta óvinum sínum fyrir krókó­díl­ana.“ En við sem sagt lendum þarna norður á svona leir­braut. Þá bíða eftir okkur 14 sjúk­lingar. Sumir voru með skotsár, önnur voru með sár eftir jarð­sprengjur. Það var búið að taka fót af einum, um hné. Svo var þessir 14 settir í 19 sæta flug­vél og það var bara setið í sætum. En við máttum ekki fara beint yfir á spít­al­ann sem hefði bara verið rúm­lega klukku­tíma flug, heldur þurftum við að fljúga frá þessum stað og suður til Kampala í tvo tíma. Og þegar við komum þangað þá er sagt að það sé ekk­ert grænt ljós frá yfir­völdum til að halda áfram með hóp­inn. Þarna erum við með, í 40 stiga hita, alveg hel­sært fólk. Lyktin og allt svaka­legt í vél­inni. En við höfðum náð í Rauða kross­inn í Kampala og þau komu upp­eftir og gáfu fólk­inu vatn og annað slíkt. En þarna þurftum við að bíða til að fá leyfi til að halda áfram með sjúk­ling­ana. Það var engin með­aumkun með lið­inu. En svo fór Rauði kross­inn í málið og það er nú bara svo­leiðis í þessum löndum að það þurfti bara að borga ein­hverja upp­hæð til að fá að halda áfram. Þarna vorum við búin að bíða meiri part­inn af deg­inum og orðnir drullu­hræddir um að ná ekki á flug­völl­inn okkar fyrir myrkur vegna þess að hann var óupp­lýstur. Þegar við nálg­umst þá er nán­ast að gera myrkur en það ger­ist mjög fljótt þarna nálægt mið­baug. Við gátum fylgt veg­a­spotta sem við vissum að lægi við flug­valla­end­ann og þegar það kæmi á hann beygja, þá pass­aði það akkurat, þá værum við nán­ast á flug­vell­inum. Og við sáum hatt­ana á flug­vell­inum frá ljós­unum á flug­vél­inni. Og við skil­uðum af okkur sjúk­ling­unum.“

Hörður sagði að þetta væri ein af þessum sjúkra­flugs­sögum frá Afríku sem hann gæti sagt frá en þær væru fleiri og hrika­legri en biðu kannski betri tíma.

Þáttinn má sjá í heild sinni hér, á efn­isveitu Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við